

Einar segir að Framsóknarflokkurinn vilji mynda meirihluta frá miðju til hægri.
„Það þýðir að við útilokum Samfylkinguna. Það kom nefnilega í ljós á þessu kjörtímabili að Samfylkingin er ófær um að breyta kerfinu sem hún byggði upp,” segir Einar í grein sinni en í byrjun kosningabaráttunnar útilokaði hann að flokkurinn færi í samstarf með Samfylkingu eftir kosningar enda væri það fullreynt.
„Það er áhyggjuefni að hvorki Sjálfstæðisflokkur né Viðreisn hafa talað jafn skýrt um þetta og við í Framsókn. Atkvæði greitt Framsókn mun auka líkurnar á því að hægt sé að mynda nýjan meirihluta um nýjar áherslur þar sem við mætum þörfum borgarbúa en erum ekki sífellt að reyna að breyta því hvernig fólk lifir lífi sínu,” segir hann í grein sinni.
Einar bendir á í grein sinni að hann hafi verið kallaður „þrotabússtjórinn“ þegar hann tók við sem borgarstjóri.
„Það var brandari sem eltist ekki vel. Með aga og ráðdeild í rekstri tókst undir minni stjórn að snúa rúmlega 16 milljarða halla yfir í 5 milljarða í afgang. Ég var fyrsti borgarstjórinn í 5 ár til að skila afgangi. Það tók vinstri meirihlutann aðeins eitt ár að breyta því í 5 milljarða halla á ný.“
Einar segir að traustur rekstur sé grunnurinn að því að bæta þjónustuna og vel sé hægt að ná enn meiri árangri.
„Ráðast í stærri kerfisbreytingar sem bæta þjónustu en skila um leið hagræðingu. Þær tillögur eru tilbúnar en við þurfum að komast í meirihluta til að koma þeim til framkvæmda,“ segir hann.
Einar segir í grein sinni að Framsókn vilji færa meira fjármagn út í hverfin og styðja betur við barnafjölskyldur, eldri borgara og íþróttafélög. Meðal áherslumála flokksins eru gjaldfrjáls frístund fyrir öll börn, sérstakur stuðningur við tekjulága eldri borgara til heilsueflingar og aukinn stuðningur við íþróttastarf í hverfunum.
Þá leggur hann áherslu á að létta álagi af kennurum með því að stofna móttökudeildir fyrir börn af erlendum uppruna og efla íslenskukennslu. Einnig gagnrýnir hann húsnæðisstefnu borgarinnar fyrir að hafa aukið ójöfnuð og segir þörf á fleiri minni og ódýrari íbúðum, auk fjárfestinga í samgöngum án þess að ganga gegn hagsmunum íbúa og fyrirtækja.