fbpx
Fimmtudagur 14.maí 2026
Fréttir

Beta gefst upp á að innheimta tjón á íbúð sem skemmdist í útleigu borgarinnar – „Ég er ekki að sakast við fólkið“

Ágúst Borgþór Sverrisson
Fimmtudaginn 14. maí 2026 16:00

Elísabet Reynisdóttir, Beta Reynis. Mynd: Stefán Jón Ingvarsson

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Elísabet Reynisdóttir næringarfræðingur, einnig þekkt sem Beta Reynis, segir farir sínar ekki sléttar af samskiptum og samskiptaleysi við Reykjavíkurborg, en Beta hefur í tvö ár árangurslaust reynt að sækja bætur fyrir hluta af því tjóni sem varð á íbúð hennar er borgin tók hana á leigu og hýsti þar flóttamenn í fjölskyldusameiningu.

Beta segir á Facebook-síðu sinni:

„Síðustu tvö ár hef ég staðið í baráttu við að innheimta tjón sem varð á íbúð í minni eigu eftir að Reykjavíkurborg leigði hana undir fjölskyldusameiningu.

Ég ætla ekki einu sinni að fara út í það í hvaða ástandi íbúðin var eftir aðeins þrjá mánuði í leigu. Tjónið sem varð var verulegt — líklega um 2 milljónir króna. Ég krafði Reykjavíkurborg hins vegar aðeins um 600 þúsund krónur.

Á þessum tveimur árum hef ég skrifað bréf, sent tölvupósta og hringt endalaust. Ég hef verið send á milli starfsfólks, fengið engin svör eða lent í því að „enginn sé við“. Það toppaði svo allt þegar starfsmaður hjá borginni sagði einfaldlega:

„Svona er áhættan við að leigja út íbúðina.“

Þessi framkoma, ábyrgðarleysi og afskiptaleysi gagnvart fólki sem reynir að leysa mál sín með eðlilegum hætti er með ólíkindum. Þetta er mannskemmandi ferli að standa í.

Ég hef því ákveðið að hætta að eyða meiri orku í að berjast við kerfi sem virðist hvorki taka ábyrgð né sýna vilja til að leysa málin. Í raun er ég þá að styrkja borgina um 600 þúsund — eða jafnvel 2 milljónir.

Þið sem gangið að kjörkassanum á laugardaginn næsta 16 maí: hugsið ykkur vel um áður en þið kjósið það sama yfir ykkur aftur.

Ég ætla að taka sénsinn og kjósa nýtt líf í borgina — og vona að þú gerir það líka.

Megi Reykjavík vakna með nýja borgarstjórn á sunnudagsmorgun, okkur öllum til heilla.“

Útmigin rúm og ónýtir munir

Beta ræddi málið við DV og upplýsir að um hafi verið að ræða stóra íbúð sem hún átti í Fellsmúla.

„Hún var nýuppgerð en ég ákvað að selja hana þar sem þetta var of stór biti fyrir mig. Þá gaf sig fram aðili sem bauðst til að leigja hana af mér og reka hana í Airbnb-útleigu í þrjá mánuði. Af því það var mjög hæg sala á fasteignum á þessum tíma þá féllst ég á þetta. Hann hringir síðan í mig og segir mér að Reykjavíkurborg bráðvanti íbúð undir fjölskyldusameiningu. Borgin var til í að borga það sama og leiga í Airbnb kostar.“

Íbúðin var því leigð með öllum húsgögnum og flestum þeim gögnum og gæðum sem fylgja hótelíbúðum eða Airbnb-gistingu, t.d. handklæðum og eldhúsáhöldum.

Beta segist einstaka sinnum hafa litið á aðstæður en almennt treysti því að starfsfólk Velferðarsviðs borgarinnar hefði eðlilegt eftirlit með leigjendunum og veitti þeim nauðsynlega leiðsögn.

Hún segist hafa undrast allan þann fjölda af fólki sem hún sá í íbúðinni. „Þarna voru rosalega mörg börn, mörg lítil börn og það voru greinilega einhverjir fleiri þarna en þessi fjölskylda sem átti að búa þarna.“

„Þegar ég tek síðan við íbúðinni aftur, 3-4 mánuðum síðar, þá bað ég vinkonu mína, sem býr þarna í stigaganginum, að huga að henni og hún bauðst til að byrja að þrífa. Svo hringir hún í mig og segir: „Ég held þú ættir að koma.““

Tjónið var margvíslegt: Ryksuga og handþeytari voru ónýt, eldhúsveggir voru útataðir í steikingarolíu, heitar pönnur höfðu verið lagðar á Fanntófell-eldhúsbekkinn og valdið skemmdum á honum og búið var að útmíga tvö hjónarúm.

„Ég þurfti að henda öllum handklæðum og viskustykkjum og við vorum í einhverja daga að þrífa íbúðina.“

Svarleysi og ósannindi

Beta segir að ein fyrstu viðbrögð starfsmanns borgarinnar við umkvörtunum hennar hafi verið: „Já, þetta var nú dýr leiga þannig að það kemur bara upp í það.“ Segist hún hafa hugsað með sér að vonandi væri konan að grínast. 

„Svo var einhver yfirmaður sem sagði við mig: „Já, svona er bara að leigja, það er bara sjens sem maður tekur.““

Hún segir að lögfræðingur á vegum borgarinnar hafa svarað erindi hennar á þann veg að Reykjavíkurborg hafi ekki séð um þessa leigu. En Reykjavíkurborg hafði borgað leiguna og hún sendi honum afrit af þremur reikningum og nótum sem sönnuðu það. Þá svaraði lögfræðingurinn henni ekki aftur.

En það sem helst hefur einkennt viðmót borgarinnar þessi tvö ár sem liðin eru frá því Beta tók aftur við íbúðinni, eftir 3-4 mánaða útleigu, eru þögn og svaraleysi.

Þó að Beta meti tjónið á tvær milljónir króna ákvað hún að freista þess einungis að fá 600 þúsund bættar. „Ég ætlaði að kaupa eitt nýtt rúm, ný handklæði og rúmföt. Ég lét slæda þetta með skemmdirnar á eldhúsborðplötunni, hugsaði að það væri mögulega hægt að slípa hana upp. Það þurfti síðan náttúrulega að mála allt aftur.“

En tómlæti og þvermóðskan í borgarkerfinu hefur dregið allan baráttuvilja úr henni. „Ég hugsaði bara með mér að ég sé ekki að fara í þetta stríð sko. Mér hefur verið ráðlagt að sleppa þessu ef ég ætla að halda hugarró.“ – Hefur fólk haft samband við hana í kjölfar Facebook-færslunnar og ráðið henni frá því að fara í dómsmál enda muni það útheimta gífurlega orku og kostnað.

„Þú getur ekki ímyndað þér hvað ég er búin að reyna mikið að ná sambandi við einhverja hjá borginni sem gætu hjálpað mér áfram í þessu, en án árangurs,“ segir hún.

Hún segir ennfremur: „Ég ákvað að gefa þetta frá mér, sjálfrar mín vegna, en ég ætla svo sannarlega að vara fólk við að kjósa þetta sama fólk og þessa sömu flokka yfir sig aftur.“

Beta hefur jafnframt fengið ábendingar um að öðruvísi sé brugðist við svona uppákomum í nágrannasveitarfélögunum. Segist hún meðal annars vita um eitt dæmi í Mosfellsbæ þar sem „bærinn reddaði fólkinu annarri íbúð á meðan hann gerði upp húsnæði þeirra.“

Ekki fólkinu sjálfu að kenna

„Ég vil ítreka að ég er ekki að ásaka fólkið sem bjó þarna. Þau voru mjög indæl, en það er borgin sem axlar ekki sína ábyrgð,“ segir Beta. Hún segir að engin skemmdarverk hafi verið unnin þarna með vilja en fólkið hafi skort leiðsögn frá borginni auk þess sem allt of margir hafi verið í húsnæðinu, meðal annars urmull af börnum.

„Ég er ekki að segja að við eigum ekki að hjálpa flóttamönnum. Ég er bara að segja að það fylgir því ábyrgð að gera það. Velferðarsvið Reykjavíkuborgar var að leigja íbúðina og hefði auðvitað átt að taka ábyrgð á henni.“

Hún bendir á að í hugum flestra sé það öruggt að leigja borginni húsnæðið sitt og aldrei hafi hvarflað að henni er hún gerði samninginn við borgina að hún myndi standa í þessum sporum.

 

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

Fréttir
Í gær

Hildur María sýnir reikninginn: „Það kostar mikið að eiga barn í Kópavogi, hvað þá fleira en eitt“

Hildur María sýnir reikninginn: „Það kostar mikið að eiga barn í Kópavogi, hvað þá fleira en eitt“
Fréttir
Í gær

Segir enga þörf á að fækka akreinum á Suðurlandsbraut – „Mátt ekki láta hugmyndafræði einhvers grenjandi minnihluta ráða“

Segir enga þörf á að fækka akreinum á Suðurlandsbraut – „Mátt ekki láta hugmyndafræði einhvers grenjandi minnihluta ráða“
Fréttir
Fyrir 2 dögum

Segja áætlanir borgarinnar um nýtt mannvirki í Vogabyggð allt of dýrar og íburðarmiklar – Gert ráð fyrir allt að 19,3 milljarða kostnaði

Segja áætlanir borgarinnar um nýtt mannvirki í Vogabyggð allt of dýrar og íburðarmiklar – Gert ráð fyrir allt að 19,3 milljarða kostnaði
Fréttir
Fyrir 2 dögum

Gylfi blæs á kjaftasögurnar – „Ég vil ekki búa til óvini til að slá pólitískar keilur“

Gylfi blæs á kjaftasögurnar – „Ég vil ekki búa til óvini til að slá pólitískar keilur“