fbpx
Laugardagur 02.maí 2026
Fréttir

Virtur miðill fjallar um sundlaugamenningu Íslands og greinir frá áhyggjum Íslendinga – „Við viljum halda þessu út af fyrir okkur“

Ritstjórn DV
Fimmtudaginn 30. apríl 2026 14:38

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Einn elsti fjölmiðill Bandaríkjanna, The New York Times, fjallar í dag um sundlaugamenningu Íslendinga sem miðlinum þykir nokkuð merkileg. Þar lýsir blaðamaðurinn Amelia Nirenberg reynslu sinni hér á landi.

„Ískaldur vindurinn nísti mig inn að mergi og beini í Reykjavík, höfuðborg Íslands, rétt eftir klukkan sjö á vetrarmorgni, langt fyrir sólarupprás. Pollarnir voru gegnfreðnir. Kuldinn sveið í nasirnar, enda ellefu gráðu frost (sem eru um 12 fahrenheit gráður).

Það er kalt, jafnvel á íslenskan mælikvarða.

En þarna, undir berum himni á bökkum Vesturbæjarlaugar, voru um 20 einstaklingar staddir á sundfötunum að gera sprellikarla í takt. Gufuna lagði frá andardrætti þeirra á meðan þau töldu og fögnuðu og lögðust svo á bakkann til að gera armbeygjur. Nokkrir voru að taka sundsprett. Þessir harðgerðu félagar tróðu sér saman í heitan pott og hlógu þegar lafandi húðin, broshrukkurnar og skurðörin sukku undir yfirborðið“

Ekki leyndarmál lengur

Blaðamaðurinn segir að þarna hafi ekki verið nokkurn aðkomumann að finna, fyrir utan hana sjálfa. Einn sundgestur sem miðillinn ræddi við lýsti því að það væri einmitt ástæðan fyrir því að hópurinn mætir í sund eldsnemma á morgnana. „Við erum út af fyrir okkur“

Tekið er fram að þrátt fyrir fjölda sundlauga á Íslandi hafi þær meira og minna farið fram hjá ferðamönnum, þrátt fyrir að hingað komi milljónir ferðamanna á ári hverju. Íslendingar óttast að nú, eftir að sundlaugarmenning landsins hefur hlotið viðurkenningu hjá UNESCO sem óáþreifanlegur menningararfur, muni staðan breytast.

„Skyndilega er best geymda leyndarmál Íslendinga komið fram í dagsljósið. Síðan þessi heiður var veittur hafa sumir fastagestir þegar tekið eftir fjölgun ferðamanna.“

Viðmælendum miðilsins þótti þegar nóg um þessa fjölgun. Hætt sé við að sundlaugarnar glati sérstöðu sinni sem menningarhefð Íslendinga.

„Við viljum halda þessu út af fyrir okkur“

Viðurkenning sem getur valdið skaða

Blaðamaður segir að sundlaugarmenningin eigi rætur að rekja til öryggisráðstafana. Sjómenn hafi margir drukknað nærri landi en þar sem nánast enginn kunni að synda hafi ekki verið hægt að bjarga þeim. Því hafi sundlaugarnar risið og þess vegna sé sundkennsla skylda í grunnskólum landsins. Miðillinn segir að sundlaugarnar hafi hlotið stöðu sem „þriðji staður“ landsmanna, eða með öðrum orðum vettvangur sem er hvorki heimili né skóli/vinna þar sem fólk kemur saman og á í félagslegum samskiptum. Þetta sé sambærilegt við gufumenninguna í Finnlandi og pöbbamenninguna í Bretlandi.

„Eldra fólk hittist þarna til að slúðra. Vinnandi fólk mætir eftir vinnudaginn til að slappa af. Foreldrar koma með börnin sín þangað snemma á kvöldin til að busla eftir kvöldmatinn. Og seinna um kvöldið, þegar heimavinnu er lokið og norðurljósin dansa á himninum, mæta unglingarnir í sund, stundum, til að daðra.“

Það sem geri sundlaugarnar aðlaðandi sé meðal annars verðið. Þetta sé einn ódýrasti staðurinn fyrir samveru í landi þar sem verðbólga er mikil. Á veturna þegar sólarstundir eru fáar sé þetta einn bærilegasti staðurinn til að njóta útiveru.

Síðan útskýrir blaðamaður venjur og góða siði í sundmenningunni. Allar sundferðir byrja á sturtu. Allir þurfa að þrífa sig rækilega áður en haldið er í laugina.

The New York Times leitaði svara hjá UNESCO hvort að viðurkenningar á menningarhefðum gætu stundum valdið auknum sýnileika eða aukinni aðsókn. Svarið var að það væri vissulega svo og slíkt gæti valdið samfélögum skaða. Sumir Evrópubúar hafa meira að segja óskað eftir því að viðurkenningar á menningarhefðum þeirra eða náttúruminjum verði afturkallaðar, enda stafi hætta af offerðamennsku. Viðmælendur miðilsins óttast að ferðamenn taki nú yfir sundlaugarnar.

 

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

Fréttir
Fyrir 2 dögum

Áhlaup gerð á nafngreiningasíðu og birtar tilhæfulausar ásakanir um fólk – Íslenskir stjórnmálamenn á meðal nafngreindra

Áhlaup gerð á nafngreiningasíðu og birtar tilhæfulausar ásakanir um fólk – Íslenskir stjórnmálamenn á meðal nafngreindra
Fréttir
Fyrir 2 dögum

Segja fjárhagsstöðu Seltjarnarness enn versna – Handbært fé um áramót dugði fyrir 3 daga rekstri

Segja fjárhagsstöðu Seltjarnarness enn versna – Handbært fé um áramót dugði fyrir 3 daga rekstri
Fréttir
Fyrir 2 dögum

Ævintýri Tinna í dómsal – Belgískt félag stefndi Pennanum fyrir brot gegn höfundarrétti

Ævintýri Tinna í dómsal – Belgískt félag stefndi Pennanum fyrir brot gegn höfundarrétti
Fréttir
Fyrir 2 dögum

Samstarfið byggir undir sterka og heilbrigða framtíðarkynslóð

Samstarfið byggir undir sterka og heilbrigða framtíðarkynslóð