fbpx
Laugardagur 02.maí 2026
Fréttir

Danska konan skuldar Gunnari um 11 milljónir – „Ég er alveg brjálaður yfir þessu“

Ágúst Borgþór Sverrisson
Fimmtudaginn 30. apríl 2026 14:30

Samsett mynd. Mynd af Gunnari tók Víðir Sigurðsson.

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Gunnar Árnason hljóðmaður segist eiga inni ellefu milljónir króna auk virðisaukaskatts hjá framleiðendum þáttaraðarinnar Dönsku konunnar. Hann segir Benedikt Erlingsson, höfund og leikstjóra þáttanna, fara með rangt mál í viðtali við DV í morgun, þar sem Benedikt hélt því fram að það væri klassískt í íslenskri kvikmyndagerð að starfsfólk frestaði laununum sínum. Gunnar bendir á að Benedikt sé einn framleiðenda þáttanna og sitji því beggja vegna borðsins.

Sjá einnig: Benedikt á inni greiðslur hjá Dönsku konunni – „Því miður klassískt í íslenskri kvikmyndagerð að fólk fresti laununum sínum“

Morgunblaðið greindi frá því í morgun að framleiðendur Dönsku konunnar, þær Marianne Slot og Carine Leblanc, skulduðu enn launagreiðslur vegna framleiðslu þáttanna. Meðal þeirra sem enn hafa ekki fengið greitt er fólk sem vann við hljóðvinnslu, kvikmyndatöku, tónlist og eftirvinnslu. Þá staðfesti Benedikt Erlingsson, höfundur og leikstjóri þáttanna, að hann hefði sjálfur ekki fengið greitt.

Benedikt sagði hins vegar í viðtali við DV að framleiðendur hefðu gert mjög flotta og gagnsæja samninga við starfsfólk sem tryggi þeim vexti og vaxtavexti ofan á launin þegar greiðslur skila sér. Benedikt sagði: „Það er því miður klassískt í íslenskri kvikmyndagerð að fólk fresti laununum sínum. Við lentum í erfiðleikum en það er allt mjög gegnsætt, flott og heiðarlegt hjá framleiðendunum. Það er sátt á milli framleiðendanna og mín og allra þeirra sem framleiðendurnir skulda. Það gerðu allir mjög flotta, gegnsæja samninga þar sem menn fá launin sín bæði með vöxtum og vaxtavöxkum – og bónus þegar peningarnir koma.“

Segir Benedikt ekki fara með rétt mál

Gunnar segir það rangt hjá Benedikt að þessi dráttur á greiðslum sé dæmigerður fyrir íslenska kvikmyndagerð. Hann segist vissulega hafa stundum beðið eftir greiðslum í nokkra mánuði en þetta sé stærra dæmi. Verkefni hans við eftirvinnslu þáttanna hafi numið samtals 15 milljónum króna, fyrir utan virðisaukaskatt, og af þeim hafi hann fengið fjórar milljónir greiddar. Ellefu milljónir standi eftir, plús vsk.

„Á meðan á lokavinnslunni stóð sögðu framleiðendurnir við mig að þær gætu ekki borgað fyrr en 1. júlí 2025, þegar ég myndi afhenda allt efnið tilbúið til sýningar. Þegar því var lokið sögðust þær ekki geta greitt. Þetta finnst leikstjóranum og framleiðandanum Benedikt mjög gegnsætt, flott og heiðarlegt,“ segir Gunnar, og segir það af og frá að þetta sé í samræmi við venjur í kvikmyndabransanum.

Sp: Þú ert væntanlega ekki sáttur við framleiðendurna?

„Ég er alveg brjálaður yfir þessu. Fyrir tíu árum kaupi ég mér lóð hérna upp við Elliðavatn og byggi mér fullkomnasta stúdíó á landinu til að geta sinnt svona verkefnum og öllum verkefnum. Það eru til um tíu svona stúdíó á öllum Norðurlöndunum. Ég hef lagt allan metnað minn í þetta. Svo bætist það við að kvikmyndaiðnaðurinn er á algjörri niðurleið með þessa ríkisstjórn.“

Aðspurður segist Gunnar óttast að fá aldrei greiddar þessar 11 milljónir sem framleiðendur Dönsku konunnar skulda honum.

„Við fáum engar upplýsingar. Og já, það er eiginlega búið að ráðleggja mér að vera ekki að búast við því að fá þetta greitt.“ – Segir hann að búið sé að selja þættina eitthvert en efast um að það dugi til.

Uppfært kl. 19:35 – Leiðrétting hjá Benedikt Erlingssyni:

Benedikt Erlingsson hafði samband við DV og óskaði eftir að leiðrétti ummæli sín þess efnis að það væri klassískt í íslenskri kvikmyndagerð að fólk frestaði laununum sínum. Þessi fullyrðing hans vísar eingöngu til höfunda og leikstjóra og hefði því átt að hljóma svo: „Það er því miður klassískt í íslenskri kvikmyndagerð að höfundar og leikstjórar fresti laununum sínum.

Benedikt segir enn fremur að það sé rangt hjá Gunnari að hann, Benedikt, sé einn af framleiðendum þáttanna, Danska konan. Gunnar hefur einnig haft samband við DV, tekið þessi ummæli til baka og beðist velvirðingar á þeim. 

Benedikt fór yfir málið í umræðum við Gunnar á Facebook og skrifaði eftirfarandi:

„Kæri Gunnar. Hér er ég að tala um minn veruleika sem höfundur og leikstjóri. Og kannski hef ég ekki verið nógu skýr við blaðamann eða hann misskilið mig. Við höfundar sem erum í þeirri stöðu er iðulega boðið upp á að fresta launum eða hluta af þeim og taka þannig áhættu ásamt framleiðandanum. Oft er þetta úrslitaatriðið svo framleiðsla sé möguleg. Þetta var raunin með stuttmyndir mínar og mína fyrstu mynd. Og var framlag mitt ríflega það að lokum í þeim tilfellum. Þetta má segja að sé klassík í íslenskri kvikmyndagerð og svo eru þeir sem hafa veðsett húsin sín. En auðvitað er þetta ekki venjan með aðra í framleiðslunni. Og mér finnst það miður að þetta hafi komið þannig út og í raun ansi sjálfhvert af mér eins og blaðamaðurinn setur þetta fram. Ég veit að þetta var mikið högg fyrir þig og okkur en ég verða að fá að vera ósammála þér að því leiti að mér finnst framleiðendur okkar af Dönsku konunni bæði þær frönsku og þeir íslensku hafa barist eins og ljón og lagt sitt undir og komið heiðarlega fram í þessum ólgusjó sem þessi óvænta ágjöf olli. Þessi staða Dönsku Konunnar varpa ljósi á hversu viðkvæmur og áhættusamur bransi kvikmyndagerð er á þessu ör-tungumáli og hversu berskjölduð við erum þegar framlag íslenskan sjóðsins er svona lítið miðað við heldarkostnað og þegar endu-greiðslukerfið okkar ágæta, hikstar eins og gerðist í fyrra. Þeir sem byggja lífsafkomu sína á íslenskri kvikmyndgerðar eru eins og ferðamenn sem hafa valið sér magran og óstyrkan hest til reiðar yfir brattan heiðarveg.“

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

Fréttir
Fyrir 2 dögum

Áhlaup gerð á nafngreiningasíðu og birtar tilhæfulausar ásakanir um fólk – Íslenskir stjórnmálamenn á meðal nafngreindra

Áhlaup gerð á nafngreiningasíðu og birtar tilhæfulausar ásakanir um fólk – Íslenskir stjórnmálamenn á meðal nafngreindra
Fréttir
Fyrir 2 dögum

Segja fjárhagsstöðu Seltjarnarness enn versna – Handbært fé um áramót dugði fyrir 3 daga rekstri

Segja fjárhagsstöðu Seltjarnarness enn versna – Handbært fé um áramót dugði fyrir 3 daga rekstri
Fréttir
Fyrir 2 dögum

Ævintýri Tinna í dómsal – Belgískt félag stefndi Pennanum fyrir brot gegn höfundarrétti

Ævintýri Tinna í dómsal – Belgískt félag stefndi Pennanum fyrir brot gegn höfundarrétti
Fréttir
Fyrir 2 dögum

Samstarfið byggir undir sterka og heilbrigða framtíðarkynslóð

Samstarfið byggir undir sterka og heilbrigða framtíðarkynslóð