fbpx
Miðvikudagur 11.mars 2026
Fréttir

Ekkja kennara sem lést eftir hrekk kallar eftir vægð fyrir gerendurna – „Þetta er skelfilegur harmleikur“

Kristinn H. Guðnason
Miðvikudaginn 11. mars 2026 15:30

Laura Hughes hefur kallað eftir vægð eftir að eiginmaður hennar Jason lést. Mynd/GoFundMe

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Eiginkona kennara sem lést eftir hrekk unglinga hefur biðlað um vægð fyrir þá. Segir hún að hann hefði aldrei viljað að lífum þeirra yrði rústað út af slysi.

Breska blaðið The Independent greinir frá þessu.

Föstudaginn 27. febrúar lést hinn fertugi kennari, Jason Hughes, í hræðilegu slysi í bænum Gainsville í Georgíufylki í Bandaríkjunum.

Höfðu nemendurnir hans í framhaldsskólanum North Hall High School kastað klósettpappírsrúllum yfir heimili hans. En sá hrekkur hefur verið stundaður í mörgum skólum í Bandaríkjunum áratugum saman.

Jason stökk út og elti fimm nemendur sem höfðu kastað rúllunum en hann féll í götuna í þann mund sem þeir voru að keyra í burtu. Lenti hann undir bílnum og lést.

Hinn 18 ára Jayden gæti átt langan fangelsisdóm yfir höfði sér. Mynd/Sýslumaðurinn í Hall County

Í kjölfarið voru nemendurnir fimm handteknir og ákærðir fyrir að valda dauða kennara síns.

Eiginkona hans, Laura Hughes, hefur nú stigið fram og beðið um vægð fyrir nemendurna. Segir hún að þetta hafi verið slys og það hefði ekki verið vilji eiginmanns síns að þeir sætu lengi í fangelsi vegna þess.

„Þetta er skelfilegur harmleikur og fjölskylda okkar er staðráðin í að koma í veg fyrir að annar eins harmleikur eigi sér stað, að líf nemendanna verði eyðilagt,“ sagði Laura. „Það myndi ganga gegn því sem Jason helgaði líf sitt, að styrkja framtíð þessara krakka.“

Ökumaður bílsins, hinn 18 ára Jayden Ryan Wallace, hefur verið ákærður fyrir manndráp og gæti átt yfir höfði sér 15 ára fangelsisdóm. Hinir fjórir unglingarnir, Elijah Owens, Aiden Hucks, Ana Katherine Luque og Ariana Cruz eru ákærð fyrir minni afbrot, það er að kasta rusli og fara í óleyfi inn á lóð.

 

 

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

Fréttir
Fyrir 7 klukkutímum

Pönkgoðsögn og Íslandsvinur fékk heilablóðfall – „Vinstri fóturinn féll saman undan mér“

Pönkgoðsögn og Íslandsvinur fékk heilablóðfall – „Vinstri fóturinn féll saman undan mér“
Fréttir
Fyrir 7 klukkutímum

Svala um heimilisofbeldið – „Ég ætla ekki að segja mína sögu núna en hún er löng og eins og lifandi martröð og ég var oft í lífshættu!“

Svala um heimilisofbeldið – „Ég ætla ekki að segja mína sögu núna en hún er löng og eins og lifandi martröð og ég var oft í lífshættu!“
Fréttir
Fyrir 20 klukkutímum

Bölvað basl fyrir lögregluna á Austurlandi – Sakborningur lét elta sig á röndum í rúma þrjá mánuði

Bölvað basl fyrir lögregluna á Austurlandi – Sakborningur lét elta sig á röndum í rúma þrjá mánuði
Fréttir
Fyrir 21 klukkutímum

Kristinn vill vita hvaða íslenska áhrifafólk er í tengslum við Ronald Lauder – Náinn bandamaður Trump og Netanyahu

Kristinn vill vita hvaða íslenska áhrifafólk er í tengslum við Ronald Lauder – Náinn bandamaður Trump og Netanyahu
Fréttir
Í gær

Mistökin sem við gerum í matvöruversluninni sem geta gert innkaupin enn dýrari

Mistökin sem við gerum í matvöruversluninni sem geta gert innkaupin enn dýrari
Fréttir
Í gær

Blóðug aðkoma í Edition-málinu – Lýsti sjálfri sér sem skrímsli og sagði fjölskylduna hafa ætlað að deyja saman

Blóðug aðkoma í Edition-málinu – Lýsti sjálfri sér sem skrímsli og sagði fjölskylduna hafa ætlað að deyja saman