fbpx
Miðvikudagur 11.mars 2026
Fréttir

Diljá minnist barnanna sem féllu frá langt fyrir aldur fram – „Þau voru öll dýrmætar manneskjur“

Ragna Gestsdóttir
Miðvikudaginn 11. mars 2026 14:30

Diljá Ámundadóttir Zöega

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

„Mér verður hugsað til barnanna:

Ölmu,

Nóa,

Geirs,

Maríu,

Adrían,

Þorleifs,

Úlfars,

Kristjáns,

Bergs,

Perlu,

Hávarðs,

Fannars,

Sölva,

Thelmu,

Baldurs,

Kristófers

og Jóhanns.

Sem hafa, ásamt öðrum börnum, dáið úr fíkni- og geðsjúkdómi á síðastliðnum árum. Blessuð sé minning þeirra. Þau voru öll dýrmætar manneskjur sem voru og verða elskaðar af foreldrum sínum, vinum sínum og öðrum aðstandendum,“

segir Diljá Ámundadóttir Zoëga varaþingkona Viðreisnar í grein sinni og jafnframt ræðu hennar á Alþingi í gær.

Vísar hún í orðatiltækið að það þurfi heilt þorp til að ala upp barn, foreldrar þurfi jafnan stoð frá fleiri einstaklingum þegar þau ali börn sín upp og komi þeim til manns. Því foreldrar geti þetta ekki einir. Diljá segir þó sum börn þurfa stærra þorp en önnur, og veltir því upp hvort samstarf við fleiri þorp á meginlandi Evrópu geti aukið aðgengi að úrræðum fyrir börn hérlendis. Úrræðum sem veita samhliða geð- og fíknimeðferð fyrir börn og jafnvel með sérstakri fyrir einhverf börn.

„Að minnsta kosti þangað til við sjáum slík úrræði rísa hér á landi. Með markvissu samstarfi gætum við hlúð að öryggistilfinningu þessara fjölskyldna og dregið úr þessum viðvarandi og sársaukafulla ótta um að missa barnið sitt. Það er vitað mál að taugakerfi foreldra barna með sjúkdóma á borð við þessa eru að fuðra upp, mæður og feður eru komin í algjöra örmögnun og dottin út af vinnumarkaði. Sum tímabundið, önnur á örorku til frambúðar.“

Diljá segir málaflokkinn kosta samféllagið gríðarlega fjármuni, jafnvel um tvær milljónir á dag fyrir eina manneskju og vísar Diljá þar til umfjöllunar um mál hins 18 ára Gauta Einarssonar og foreldra sem hafa stigið fram og sagt reynslusögu sína.

„Við þurfum að ræða um hvernig við getum stækkað okkar þorp (eða með öðrum orðum; okkar kerfi), þá sérstaklega fyrir þau börn sem mest þurfa á því að halda. Í minningu þeirra sem þurftu mest á því að halda.“

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

Fréttir
Fyrir 4 klukkutímum

Ásakanir ganga á víxl milli bæjarstjóra og bæjarfulltrúa í Kópavogi – Fullyrðingar um trúnaðarbrot og ósannsögli

Ásakanir ganga á víxl milli bæjarstjóra og bæjarfulltrúa í Kópavogi – Fullyrðingar um trúnaðarbrot og ósannsögli
Fréttir
Fyrir 5 klukkutímum

Kópavogsbær gerir óuppsegjanlegan samning um rekstur „chillout“-rýmis í Smáralind – „Það er gott að vera Halldór Benjamín í Kópavogi“

Kópavogsbær gerir óuppsegjanlegan samning um rekstur „chillout“-rýmis í Smáralind – „Það er gott að vera Halldór Benjamín í Kópavogi“
Fréttir
Fyrir 7 klukkutímum

Svala um heimilisofbeldið – „Ég ætla ekki að segja mína sögu núna en hún er löng og eins og lifandi martröð og ég var oft í lífshættu!“

Svala um heimilisofbeldið – „Ég ætla ekki að segja mína sögu núna en hún er löng og eins og lifandi martröð og ég var oft í lífshættu!“
Fréttir
Fyrir 8 klukkutímum

Brynja Ýr er stúlkan sem var rænd á Tenerife – „Ég hélt hann ætlaði að kýla mig og drepa mig“

Brynja Ýr er stúlkan sem var rænd á Tenerife – „Ég hélt hann ætlaði að kýla mig og drepa mig“
Fréttir
Fyrir 9 klukkutímum

Segist skorta þekkingu til að athuga frekar aðkomu Matvælastofnunar að málum sem varða slæma meðferð á dýrum

Segist skorta þekkingu til að athuga frekar aðkomu Matvælastofnunar að málum sem varða slæma meðferð á dýrum
Fréttir
Fyrir 21 klukkutímum

Kristinn vill vita hvaða íslenska áhrifafólk er í tengslum við Ronald Lauder – Náinn bandamaður Trump og Netanyahu

Kristinn vill vita hvaða íslenska áhrifafólk er í tengslum við Ronald Lauder – Náinn bandamaður Trump og Netanyahu
Fréttir
Fyrir 21 klukkutímum

Moka inn peningum með því að veðja á stríðsátökin

Moka inn peningum með því að veðja á stríðsátökin
Fréttir
Í gær

Blóðug aðkoma í Edition-málinu – Lýsti sjálfri sér sem skrímsli og sagði fjölskylduna hafa ætlað að deyja saman

Blóðug aðkoma í Edition-málinu – Lýsti sjálfri sér sem skrímsli og sagði fjölskylduna hafa ætlað að deyja saman
Fréttir
Í gær

Nýir eigendur að Hamborgarafabrikkunni

Nýir eigendur að Hamborgarafabrikkunni