fbpx
Föstudagur 20.júní 2025
Fréttir

Magga Stína svarar Rósu fullum hálsi: „Annað hvort segir þú viljandi ekki satt og rétt frá eða þú varst ekki á staðnum”

Ritstjórn DV
Föstudaginn 20. júní 2025 12:30

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Margrét Kristín Blöndal, einnig þekkt sem Magga Stína, sendir þingmanninum Rósu Guðbjartsdóttur tóninn eftir að sú síðarnefnda gagnrýndi framgöngu mótmælenda á Austurvelli þann 17. júní.

Í ræðu á Alþingi sagði Rósa að það væri „óboðlegt“ að hópar fólks komi saman á þessum degi við hátíðarhöld við þinghúsið, veifandi fána annars lands og hrópandi ókvæðisorð að ráðamönnum og öðrum viðstöddum. „Í gær urðum við vitni að því að þjóðhátíðardeginum okkar var sýnd mikil vanvirðing hér við Austurvöll og um leið þjóðfána okkar Íslendinga. Eigum við bara að láta slíkt viðgangast?”

Sjá einnig: Rósa ósátt:Óboðleg hegðun mótmælenda í gær – „Eigum við bara að láta slíkt viðgangast?“

„Til hamingju með frelsið“

Í langri grein sem birtist á vef Vísis í morgun svarar Margrét Kristín, sem hefur haft hátt fyrir hönd Palestínumanna, þingkonunni og segir að ýmsar spurningar hafi vaknað þegar hún las gagnrýni Rósu.

Við lesturinn vöknuðu upp hjá mér spurningar eins og þessi: Hver erum þessi við, sem þú talar um, við, sem klæðum okkur upp og um hvaða frelsi ert þú að tala?

Er það hið margfræga, frelsi til athafna?

Getur verið, að þú eigir einkum og sér í lagi við þitt eigið frelsi?

Frelsi Rósu Guðbjartsdóttur?

Er það, það frelsi, sem er til umfjöllunar hjá þér?

Ég get vel skilið, háttvirti þingmaður, að þú viljir fá að fagna frelsi þínu. Kona í þinni stöðu, sem þiggur laun af almenningi. Það er aldeilis ástæða til að fagna.

Því jafnvel þótt þú standir fyrir það gildismat sem þingmaður, um að hvetja til aukinnar misskiptingar þá skil ég fögnuð þinn á einhvern hátt.

Til hamingju með frelsið Rósa.

Til aðeins minni hamingju með frelsið, þú sem skúrar klósettið á alþingi en stendur eins og klettur undir launaseðlinum hennar Rósu.”

Margrét Kristín beinir orðum sínum áfram að Rósu og segir að hún vilji fá að fagna mannréttindum á þjóðhátíðardaginn.

„En samt bara aðeins að þagga niður í nokkrum óþolandi einstaklingum sem trufla þig í þjóðhátíðarstemningunni. Einstaklingum sem kunna ekki að halda kjafti í „mannréttindalandinu þínu” í “jafnréttisparadísinni” þar sem þú nýtur lífsins og smjör drýpur af hverju strái, eitthvað lið, sem hefur ekki einu sinni lyst á þjóðhátíðarköku þegar verið er að svelta fólk í hel og brenna það lifandi í leiðinni.”

Sjá einnig: Egill fékk skammir fyrir að gagnrýna mótmælendur – „Og þú móðgast yfir Palestínskum fána á 17 júní!!!???”

Enginn hrópaði eitt einasta ókvæðisorð

Hún segir það rangt að fólk hafi sýnt íslenska fánanum óvirðingu og að hróp hafi verið gerð að ráðamönnum. Vísar hún í þessi ummæli Rósu:

„Að hópar fólks skuli koma saman á þessum degi og það við hátíðarhöld við Alþingishúsið veifandi fána annars lands og hrópa ókvæðisorð að ráðamönnum og öðrum viðstöddum, er óboðlegt.”

„En þarna hleypur þú á þig Rósa! Ég var einmitt þarna stödd og tilheyrði “hópnum” sem þú talar um. Annaðhvort segir þú viljandi ekki satt og rétt frá eða þú varst ekki á staðnum. Kannski léstu þér nægja að lesa lygimál Andrésar Magnússonar “blaðamanns” á Morgunblaðinu en lýsingar hans á atvikum voru eins fjarri sannleikanum og annað sem stendur í því sorpriti. Staðreyndin er sú, að enginn úr þessum hópi hrópaði eitt einasta ókvæðisorð að nokkurri manneskju.”

Hún segir að hópurinn hafi staðið prúður og kurteis og hlýtt á ræðu forsetans og Fjallkonunnar. Þegar ráðafólk þjóðarinnar stóð upp hafi skilaboðum verið komið á framfæri við „elítuna“ eins og vera ber. „Ekki, með einu einasta ókvæðisorði.“

Hún segir svo að lokum að þjóðhátíðardagurinn, fæðingardagur Jóns Sigurðssonar, sé rétti vettvangurinn til að vekja athygli á „svikum“ íslenskra stjórnvalda við Palestínu.

„Austurvöllur, er almenningseign og hann er vettvangurinn, til að minna á svik stjórnvalda við sjálfstæðisbaráttu Jóns Sigurðssonar og hans hugsjóna. Það mætti segja mér að hann bærði allhressilega á sér þar sem hann er því sjálfstæðið, sem honum var svo umhugað um og hann barðist fyrir, hefur verið selt og margselt, af yfirvöldum, á kostnað almennings auðvitað. Það er gömul saga og ný.“

Lesa má allan pistil Margrétar Kristínar hér.

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

Fréttir
Fyrir 20 klukkutímum

Lindakirkju barst dularfullt bréf – „Olli þó smá vangaveltum“

Lindakirkju barst dularfullt bréf – „Olli þó smá vangaveltum“
Fréttir
Fyrir 21 klukkutímum

Guðmundur var sviptur lækningaleyfi en segist einfaldlega hafa tilkynnt símaþjónustu til landlæknis -„Þeir eiga að kunna lögin“

Guðmundur var sviptur lækningaleyfi en segist einfaldlega hafa tilkynnt símaþjónustu til landlæknis -„Þeir eiga að kunna lögin“
Fréttir
Í gær

Rúmri einni milljón fátækari eftir að hafa slegið 74 ára mann með flötum lófa

Rúmri einni milljón fátækari eftir að hafa slegið 74 ára mann með flötum lófa
Fréttir
Fyrir 2 dögum

ÍA og Terra sameina krafta til að bæta úrgangsflokkun á íþróttaviðburðum

ÍA og Terra sameina krafta til að bæta úrgangsflokkun á íþróttaviðburðum