Íþróttabandalag Akraness (ÍA) og Terra hafa hafið formlegt samstarf um markvissari úrgangsflokkun á íþróttaviðburðum, með sérstakri áherslu á Norðurálsmótið sem fram fer á Akranesi þessa viku og komandi helgi. Markmiðið er að stuðla að hreinni og umhverfisvænni framkvæmd mótsins með bættri aðstöðu til flokkunar úrgangs.
,,Eins og gengur og gerist þar sem fjöldi fólks kemur saman fellur til mikið magn úrgangs. Til að mæta þessari áskorun hafa ÍA og Terra fjölgað flokkunartunnum víða á svæðinu meðal annars á íþróttasvæðum, tjaldsvæðum og skólum þar sem keppendur dvelja. Þar verður nú hægt að flokka úrgang í fjóra meginflokka: blandaðan úrgang, pappír, plast og skilagjaldsskyldar umbúðir,“ segir Erna Björk Häsler, markaðsstjóri Terra í tilkynningu.
Einnig verður flokkunarílát fyrir matarleifar staðsett í matsal Íþróttamiðstöðvarinnar á Jaðarsbökkum, þar sem morgun-, hádegis- og kvöldverður er framreiddur. Þjálfarar, iðkendur og fararstjórar eru hvattir til að skila matarafgöngum í viðeigandi ílát. Allur úrgangur sem fellur til á mótinu verður vigtaður að því loknu. Það er sameiginlegt markmið mótshaldara og Terra að minnka hlutfall blandaðs úrgangs frá fyrri árum og skapa þannig fordæmi fyrir aðra viðburði.
Erna Björk segir að þetta sé í fyrsta skipti sem óskað er eftir flokkun á úrgangi á íþróttaviðburði. ,,Hingað til hefur bara verið ein tunna sem allur úrgangur hefur farið í. Þetta eru mikil gleðitíðindi í okkar huga og við erum ákaflega stolt og ánægð að svara ákalli barna og foreldra. Ég á ekki von á öðru en fleiri íþróttafélög muni fylgja þessu fordæmi,“ segir hún og bætir við:
,,Við hvetjum alla gesti og þátttakendur á Norðurálsmótinu til að sýna ábyrgð og flokka rétt. Með réttri flokkun tryggjum við að úrgangurinn nýtist sem auðlind og fari í endurvinnslu. Þetta skiptir máli fyrir náttúruna og framtíðina. Börn eru þegar vön að flokka úrgang í skólum og heima og nú höldum við því áfram á mótum. Þetta er mikilvægt skref í átt að sjálfbærari íþróttaviðburðum.“
„Við hjá ÍA erum afar stolt af því að taka þátt í þessari mikilvægu vegferð með Terra. Norðurálsmótið er einn stærsti viðburður ársins á Akranesi og með markvissari úrgangsflokkun sýnum við samfélagslega ábyrgð og gefum börnunum sem taka þátt gott fordæmi. Þetta samstarf er skref í rétta átt og við vonum að fleiri íþróttaviðburðir fylgi í kjölfarið,“ segir Ingimar Elí Hlynsson, framkvæmdastjóri knattspyrnufélags ÍA.