fbpx
Miðvikudagur 18.júní 2025
Fréttir

Degi nóg boðið: „Mín fyrsta og síðasta grein um vinnubrögð á Alþingi“

Ritstjórn DV
Miðvikudaginn 18. júní 2025 12:30

Dagur B. Eggertsson.

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Dagur B. Eggertsson, þingmaður Samfylkingar og fyrrverandi borgarstjóri, segir að honum hafi alltaf leiðst greinar þingmanna um vinnubrögð á Alþingi og segir að þingmenn ættu að geta lagað verklag sitt í kyrrþey.

„Nóg er af öðrum mik­il­væg­um og áhuga­verðum álita­efn­um sem eiga er­indi við þjóðina. En málþóf rýr­ir traust til Alþing­is,” segir Dagur í aðsendri grein í Morgunblaðinu í dag en tilefnið er umræða síðustu daga um málþóf Miðflokksins vegna Bókunar 35.

Innihaldslítið málþóf

Í grein sinni vísar Dagur í ummæli sem Helgi Bernódusson, fyrrverandi skrifstofustjóri Alþingis, hélt í kringum starfslok sín árið 2019, en þar sagði Helgi meðal annars þetta:

„Einn draug­ur fer þó um þing­húsið og yggl­ir sig í þingsaln­um og er mik­il nauðsyn að kveðinn verði niður, rotaður í einu höggi, en það er málþóf. Í huga mín­um, sem hef unnið í þing­hús­inu í ára­tugi, og stund­um þurft að sitja sam­fellt yfir slík­um drauga­gangi, er hann til­ræði við heil­brigða skyn­semi og yf­ir­gang­ur sem er niður­lægj­andi fyr­ir þing­menn og hina virðulegu stofn­un, til­raun til að lama þingið, óbæri­leg­ur. All­ir flokk­ar eru sek­ir í þessu efni.“

Dagur segir að honum hafi fundist hressilegt að lesa þetta og textinn tali inn í þá tilfinningu sem bærist með flestum, gömlum og nýjum þingmönnum.

„Stjórn­ar­andstaðan eða Alþingi hlýt­ur eng­an sóma af yf­ir­stand­andi tafa­leikj­um. Stjórn­ar­liða klæj­ar í mál­beinið, að færa rök fyr­ir stefnu­mál­um sín­um og hug­sjón­um, heyra andsvör­in og eiga orðastað. Í staðinn er inni­halds­lítið málþóf,“ segir Dagur sem vísar aftur í orð Helga sem sagði:

„Málþóf hef­ur stund­um verið kallað „vopn“ stjórn­ar­and­stöðunn­ar og það mundi raska valda­jafn­vægi í þingi ef það yrði kveðið niður. En ég hef seint og um síðir áttað mig á því hví­lík­ur reg­in­mis­skiln­ing­ur það er. Jafn­vægið mun aðeins finna sér nýtt og heil­brigðara form, ef óhæfa þessi yrði lam­in niður með einu bylm­ings­höggi, bóta­laust.“

Hæglega hægt að breyta þessu

Dagur segir að þarna sé komist býsna nálægt kjarna málsins. Stjórnarandstaðan hafi ýmsar leiðir til að koma afstöðu sinni til skila án málþófs.

„Það sem Helgi er sjálfsagt að vísa í eru skýr, en nán­ast ekk­ert notuð, ákvæði í þing­skap­a­lög­um um að hægt sé að stöðva umræðu, tak­marka tíma sem hvert mál tek­ur, ým­ist að til­lögu for­seta þings eða níu þinga­manna. Ég held raun­ar að þetta þurfi ekki til,“ segir Dagur og bætir við að Alþingi ætti hæglega að geta sameinast um þann tíma sem ætlaður er til umfjöllunar hvers máls í upphafi hvers þingvetrar með samkomulagi allra þingflokka.

„Núna er samþykkt starfs­áætl­un sem skil­grein­ir hvaða daga þing stend­ur. Sjálfsagt er að út­færa þá dag­skrá mun ít­ar­leg­ar og út­hluta mál­um um­fjöll­un­ar­tíma og greiða um það at­kvæði. Meg­in­lín­an gæti verið tvær klukku­stund­ir fyr­ir hverja umræðu en meira í fjár­lög­um og til­tekn­um lyk­il­mál­um,“ segir Dagur sem spyr hvort þetta blasi ekki við. Nefnir hann að borgarstjórn hafi gert nákvæmlega þetta fyrir nokkrum misserum, ýmsir hafi lýst áhyggjum en nú vilji enginn fara til baka.

„Ég hvet því þing­menn og for­sæt­is­nefnd Alþing­is til dáða. Það færi vel á því að næsta þing yrði sann­kallað um­bótaþing. Og þetta þar með mín fyrsta og síðasta grein um vinnu­brögð á Alþingi.“

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

Fréttir
Fyrir 3 dögum

Sálfræðingur sem fékk ekki starfsleyfi á Íslandi fór aftur í sálfræðinám en það dugði ekki til

Sálfræðingur sem fékk ekki starfsleyfi á Íslandi fór aftur í sálfræðinám en það dugði ekki til
Fréttir
Fyrir 3 dögum

Akureyrarbær gerði ekkert vegna ófremdarástands á friðuðu húsi

Akureyrarbær gerði ekkert vegna ófremdarástands á friðuðu húsi