Það var fasteignasalinn Marina Orlova sem ræddi þetta fyrst allra. Hún stundar fasteignasölu í Tomsk í Síberíu. Í hlaðvarpi um konur á fertugsaldri, sem kaupa sér fasteignir, kom hún inn á þetta mál
„Þetta er auðvelt. Þú finnur mann, sem tekur þátt í hinni sérstöku hernaðaraðgerð (það er það sem rússnesk stjórnvöld kalla innrásina, innsk. blaðamanns). Ef hann kemur ekki heim aftur, þá færðu 8 milljónir rúblna – 95.000 dollara – í bætur,“ sagði hún.
Þetta svarar til um 12,2 milljóna króna.
Orlova sagði að margar konur leggi leið sína að víglínunni til að finna hermann til að giftast. Þar er lífið hættulegt og mörg hundruð hermenn falla daglega.
Til að fá fleiri til að skrá sig í herinn hefur Vladímír Pútín hækkað bæturnar sem hermenn fá ef þeir særast og dánarbæturnar, sem eru greiddar til fjölskyldu hins látna. Það er þarna sem gráðugu konurnar koma til sögunnar.
IntelliNews skýrir frá þessu og segir að ummæli Orlova í hlaðvarpinu hafi náð eyrum þjóðernissinnaðra rússneskra bloggara og fjölmiðla í byrjun apríl
„Spurningin er hvort þessi fasteignasali frá Tomsk vilji taka á sig sameiginlega sök fyrir það svindl sem gerir að verkum að konur á fertugsaldri geta keypt fasteign,“ skrifaði bloggarinn Gaspariian.
Orlova hefur fengið að finna fyrir því eftir að hún sagði frá gráðugu konunum í hlaðvarpinu. Toronto Sun segir að hún hafi sent frá sér myndband þar sem hún biðst afsökunar á að hafa hugsanlega kveikt hugmynd hjá konum um hvernig þær geta orðið sér úti um peninga.
Áður hafði hún verið dæmd í 80 klukkustunda samfélagsþjónustu fyrir ummælin.
Rússneskir fjölmiðlar kalla konurnar „svartar ekkjur“ og segja eina markmið þeirra vera að finna hermenn sem þær geta táldregið og fengið til að giftast sér. Því næst þurfi hermaðurinn að deyja eins fljótt og unnt er.