fbpx
Fimmtudagur 12.mars 2026
Fréttir

Segir vexti stappa nærri sturlun og vaxtamunur hvergi meiri í Evrópu

Ritstjórn DV
Mánudaginn 10. nóvember 2025 15:30

Breki Karlsson, formaður Neytendasamtakanna.

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Hvergi annars staðar í Evrópu eru bankar með meiri vaxtamun en á Íslandi. Breki Karlsson, formaður Neytendasamtakanna, telur að bankar gætu hæglega minnkað vaxtamuninn. RÚV greinir frá.

Breki segir íslensku bankana telja sig þurfa þrefalt hærri vaxamun á fasteignalánum en tíðkast í nágrannaríkjunum. Hann segir vaxtastigið stappa nærri sturlun.

„Og það er náttúrulega eitthvað sem við getum ekki unað við. Stóra spurningin er, og það er eitthvað sem stjórnvöld verða að svara, og hún er sú hversu háa húsnæðisvexti telja stjórnvöld æskilegt og þolanlegt að íslenskir lántakendur greiði. Háir vextir á Íslandi stappa nærri sturlun og við þá verður ekki unað.“

Tilefni ummæla Breka eru þau tíðindi að nú eru bankarnir byrjaðir að veita verðtryggð húsnæðislán á ný eftir stopp í kjölfar hins svokallaða vaxtadóms Hæstaréttar. Íslandsbanki veitir nú verðtryggð lán á föstum vöxtum til fimm ára og eru vaxtakjörin byggð á vaxtaviðmiði Seðlabankans. Lánin bjóðast öllum fasteignakaupendum, fyrstu kaupendum og öðrum.

Neytendasamtökin skoða hvaða áhrif vaxtaviðmið Seðlabankans og Íslandsbanka hafa á lántakendur. Samkvæmt lögum verða viðmiðin að vera skýr, aðgengileg og hlutlæg og það verður að vera hægt að sannreyna þau.

„Það gæti verið að skilmálinn sé löglegur með tilliti til gagnsæis en þá verður líka að gæta jafnvægis milli bankans og lántakenda,“ segir Breki. Segir hann að samkvæmt skilmálanum taki neytendur á sig alla hækkun vaxta en njóti ekki lækkunar nema að takmörkuðu leyti.

Sjá nánar á vef RÚV.

 

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

Fréttir
Fyrir 21 klukkutímum

Svala um heimilisofbeldið – „Ég ætla ekki að segja mína sögu núna en hún er löng og eins og lifandi martröð og ég var oft í lífshættu!“

Svala um heimilisofbeldið – „Ég ætla ekki að segja mína sögu núna en hún er löng og eins og lifandi martröð og ég var oft í lífshættu!“
Fréttir
Fyrir 22 klukkutímum

Brynja Ýr er stúlkan sem var rænd á Tenerife – „Ég hélt hann ætlaði að kýla mig og drepa mig“

Brynja Ýr er stúlkan sem var rænd á Tenerife – „Ég hélt hann ætlaði að kýla mig og drepa mig“