fbpx
Laugardagur 11.apríl 2026
433Sport

Sindri fer frá Keflavík til að styðja við kærustu sína í Svíþjóð

Hörður Snævar Jónsson
Miðvikudaginn 11. mars 2026 19:26

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Keflavík og Sindri Kristinn Ólafsson hafa komist að samkomulagi um að Sindri láti af störfum hjá félaginu. Ástæðan fyrir brotthvarfinu er sú að unnusta Sindra er búsett erlendis og mun hann flytja búferlum til hennar.

Unnusta Sindra er Guðrún Arnardóttir, landsliðskona í knattspyrnu.

Sindri er uppalinn Keflvíkingur og hefur í gegnum tíðina verið hluti af félaginu bæði í yngri flokkum og með meistaraflokki. Hann lék um tíma með FH.

Guðrún t.h
Mynd: KSÍ

„Keflavík hefur verið stór hluti af mínu lífi og það er alltaf heiður að spila fyrir félagið. Þetta var ekki auðveld ákvörðun, en Guðrún hefur fengið gott tækifæri til að halda áfram sínum ferli í Svíþjóð og ákváðum við því að taka þetta skref saman;“ segir Sindri.

„Ég vil þakka liðsfélögum, þjálfurum og öllum í kringum félagið fyrir samstarfið og stuðninginn í gegnum árin. Vonandi liggja leiðir okkar saman í framtíðinni. Ég mun fylgjast vel með liðinu og óska Keflavík alls hins besta á komandi tímabili.“

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

433Sport
Fyrir 12 klukkutímum

Enzo og umboðsmaðurinn biðjast afsökunar

Enzo og umboðsmaðurinn biðjast afsökunar
433Sport
Fyrir 13 klukkutímum

Eigendur Liverpool telja að Slot eigi að halda áfram á næstu leiktíð

Eigendur Liverpool telja að Slot eigi að halda áfram á næstu leiktíð
433Sport
Fyrir 15 klukkutímum

Stuðningsmaður Forest lést eftir að hafa ferðast til Portúgal á leik

Stuðningsmaður Forest lést eftir að hafa ferðast til Portúgal á leik
433Sport
Fyrir 16 klukkutímum

Bruno fer yfir þá hluti sem Carrick hefur breytt

Bruno fer yfir þá hluti sem Carrick hefur breytt
433Sport
Fyrir 18 klukkutímum

Lést þegar hann fór út að hlaupa að morgni

Lést þegar hann fór út að hlaupa að morgni
433Sport
Fyrir 19 klukkutímum

Telur dómara reyna allt til þess að Ronaldo verði meistari

Telur dómara reyna allt til þess að Ronaldo verði meistari
433Sport
Fyrir 20 klukkutímum

Segir að skálað hafi verið í Fossvoginum yfir þessari umdeildu ákvörðun í Kópavogi í vetur

Segir að skálað hafi verið í Fossvoginum yfir þessari umdeildu ákvörðun í Kópavogi í vetur
433Sport
Fyrir 21 klukkutímum

Æfing Stelpnanna okkar á morgun opin öllum

Æfing Stelpnanna okkar á morgun opin öllum
433Sport
Í gær

Er að skrifa undir nýjan samning

Er að skrifa undir nýjan samning