fbpx
Miðvikudagur 11.mars 2026
Fréttir

Ákall frá fjölskyldu Möggu Stínu: „Við höfum misst allt samband“ – Var í skipi sem var stöðvað í nótt

Ritstjórn DV
Miðvikudaginn 8. október 2025 07:06

Margrét Kristín Blöndal

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Aðstandendur Margrétar Kristínar Blöndal, sem er betur þekkt sem Magga Stína, hafa biðlað til íslenskra stjórnvalda að beita sér með öllum mætti fyrir því að ísraelsk stjórnvöld leysi hana úr haldi tafarlaust sem og aðra í áhöfn Frelsisflotans.

„Aðfaranótt 8.október 2025 var áhöfn skipsins Conscience og átta annarra báta sem sigldu undir merkjum Frelsisflotans (e.Freedom Flotilla) áleiðis til Gaza rænt af Ísrael á alþjóðlegu hafsvæði. Þeirra á meðal er móðir okkar, systir og dóttir, Margrét Kristín Blöndal, betur þekkt sem Magga Stína,“ segir í tilkynningu frá Elsu Maríu Blöndal, Salvör Gullbrá Þórarinsdóttur og Sólveigu Hauksdóttur, dóttur, systur og móður Möggu Stínu.

„Þeim er nú siglt áleiðis til Ashdod hafnar, en við höfum misst allt samband við Möggu Stínu og aðra skipverja,“ segir enn fremur í tilkynningunni.

„Við fjölskyldan biðlum til íslenskra stjórnvalda að beita sér með öllum mætti fyrir því að ísraelsk yfirvöld leysi hana úr haldi tafarlaust, sem og aðra í áhöfn Frelsisflotans.“

Í tilkynningunni kemur fram að um borð í The Conscience, skipinu sem Magga Stína sigldi með, voru hátt í hundrað heilbrigðisstarfsmenn, blaðamenn og friðarsinnar í fullkomlega lögmætum erindagjörðum: að koma neyðaraðstoð og heilbrigðisstarfsfólki til þjáðra og sveltandi íbúa Gaza.

„Um borð voru lífsnauðsynjar á borð við lyf, hjúkrunarvörur og mataraðstoð upp á 13 milljónir króna, hjálpargögn sem er kerfisbundið haldið frá Gazasvæðinu af ísraelskum stjórnvöldum.“

Þá kemur fram að Ísrael standi engin ógn af þeim skipum sem sigla undir merkjum Frelsisflotans.

„Engu að síður hafa ísraelsk stjórnvöld gert skipin sem á undan sigldu upptæk með ofbeldi og ógnunum, rænt skipverjum og fargað matvælum og lyfjum sem um borð voru. Fréttir bárust í kjölfarið af illri meðferð Ísraels á fólkinu sem haldið er í Ktzi’ot-fangelsinu. Þeim hefur verið misþyrmt, neitað um næringu, vatn, svefn og lífsnauðsynleg lyf tekin af þeim. Mannréttindi þeirra eru virt að vettugi, rétt eins og Ísrael hefur virt mannréttindi palestínsku þjóðarinnar að vettugi allt frá byrjun hernáms og þjóðarmorðs Ísraels í Palestínu.

Áhyggjur okkar fjölskyldu Möggu Stínu og vina hennar eru eðlilega miklar af framvindu mála. Einkum þegar hugað er að þeirri meðferð sem hún kemur að öllum líkindum til með að verða fyrir af hendi Ísraelshers.“

Skora aðstandendur Möggu Stínu á á íslensku ríkisstjórnina og almenning að fordæma handtöku Ísraela á almennum borgurum og krefjast þess að allir sjálfboðaliðar verði látnir lausir tafarlaust.

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

Fréttir
Fyrir 4 klukkutímum

Ásakanir ganga á víxl milli bæjarstjóra og bæjarfulltrúa í Kópavogi – Fullyrðingar um trúnaðarbrot og ósannsögli

Ásakanir ganga á víxl milli bæjarstjóra og bæjarfulltrúa í Kópavogi – Fullyrðingar um trúnaðarbrot og ósannsögli
Fréttir
Fyrir 4 klukkutímum

Kópavogsbær gerir óuppsegjanlegan samning um rekstur „chillout“-rýmis í Smáralind – „Það er gott að vera Halldór Benjamín í Kópavogi“

Kópavogsbær gerir óuppsegjanlegan samning um rekstur „chillout“-rýmis í Smáralind – „Það er gott að vera Halldór Benjamín í Kópavogi“
Fréttir
Fyrir 7 klukkutímum

Svala um heimilisofbeldið – „Ég ætla ekki að segja mína sögu núna en hún er löng og eins og lifandi martröð og ég var oft í lífshættu!“

Svala um heimilisofbeldið – „Ég ætla ekki að segja mína sögu núna en hún er löng og eins og lifandi martröð og ég var oft í lífshættu!“
Fréttir
Fyrir 7 klukkutímum

Brynja Ýr er stúlkan sem var rænd á Tenerife – „Ég hélt hann ætlaði að kýla mig og drepa mig“

Brynja Ýr er stúlkan sem var rænd á Tenerife – „Ég hélt hann ætlaði að kýla mig og drepa mig“
Fréttir
Fyrir 8 klukkutímum

Segist skorta þekkingu til að athuga frekar aðkomu Matvælastofnunar að málum sem varða slæma meðferð á dýrum

Segist skorta þekkingu til að athuga frekar aðkomu Matvælastofnunar að málum sem varða slæma meðferð á dýrum
Fréttir
Fyrir 20 klukkutímum

Kristinn vill vita hvaða íslenska áhrifafólk er í tengslum við Ronald Lauder – Náinn bandamaður Trump og Netanyahu

Kristinn vill vita hvaða íslenska áhrifafólk er í tengslum við Ronald Lauder – Náinn bandamaður Trump og Netanyahu
Fréttir
Fyrir 21 klukkutímum

Moka inn peningum með því að veðja á stríðsátökin

Moka inn peningum með því að veðja á stríðsátökin
Fréttir
Í gær

Blóðug aðkoma í Edition-málinu – Lýsti sjálfri sér sem skrímsli og sagði fjölskylduna hafa ætlað að deyja saman

Blóðug aðkoma í Edition-málinu – Lýsti sjálfri sér sem skrímsli og sagði fjölskylduna hafa ætlað að deyja saman
Fréttir
Í gær

Nýir eigendur að Hamborgarafabrikkunni

Nýir eigendur að Hamborgarafabrikkunni