fbpx
Fimmtudagur 16.október 2025
Fréttir

Þorvaldur Davíð kallar eftir að virðing sé borin fyrir börnunum okkar

Ritstjórn DV
Fimmtudaginn 16. október 2025 10:30

Þorvaldur Davíð Kristjánsson. Mynd/Ernir

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Þorvaldur Davíð Kristjánsson, leikari og þriggja barna faðir í Laugardalnum, segir að ýmislegt mætti bæta þegar kemur að skólamálum í borginni og viðhaldi á húsnæði borgarinnar.

Þorvaldur Davíð skrifar grein um þetta á Vísi.

„Ég er faðir og fjölskyldumaður sem býr í Laugardal og á þrjú börn sem öll hafa gengið í leik- og grunnskóla í Reykjavík. Í gegnum árin hef ég séð hversu mikilvægt það er að börnin okkar séu í skólaumhverfi sem er bæði öruggt og heilbrigt. Margt hefur verið vel gert í skólamálum, og ég vil sérstaklega hrósa því starfsfólki sem hefur sinnt börnunum okkar af einlægni og alúð, bæði í leikskólum og grunnskólum. Hins vegar blasir við að það er ýmislegt sem mætti bæta þegar kemur að almennri umsýslu málaflokksins og í viðhaldi á húsnæði borgarinnar,“ segir hann í grein sinni.

Þorvaldur bendir á að eins og margir aðrir foreldrar í Reykjavík hafi hann upplifað að þurfa að bíða eftir leikskólaplássi, óvissu um hvar börnin hans fá að vera og áhyggjur af húsnæði skólans sem þau sækja daglega.

„Í mínu hverfi, Laugardalnum, og víða annars staðar í borginni, hafa foreldrar til dæmis rætt um raka og myglu í skólahúsnæði. Þetta eru ekki bara sögur, þetta eru raunveruleg vandamál sem hafa komið upp víða í Reykjavík. Samkvæmt fréttum hefur mygla fundist í tugum leik- og grunnskóla á undanförnum árum, og í sumum tilfellum hefur þurft að loka húsnæði eða flytja kennslu. Þannig er staðan í mínu hverfi og það býr til enn eitt flækjustigið í hversdeginum,“ segir hann í grein sinni.

Kerfið sé sífellt að reyna að ná andanum

Þorvaldur Davíð segir að þetta séu ástæður sem hafa áhrif á líðan barna, starfsfólk og foreldra. Enginn vilji senda barnið sitt í skóla þar sem lyktin af myglu fylgir því heim í fötunum.

„Við viljum að börnin okkar læri í hreinu og öruggu umhverfi, þar sem þau geta einbeitt sér að því sem skiptir máli: að læra, leika og þroskast. Að sama skapi vill ekkert foreldri láta rífa barnið sitt úr því umhverfi sem það þekkir og finnur fyrir öryggi í,“ segir hann.

Hann nefnir einnig að leikskólaplássin séu stundum af skornum skammti og hans upplifun sé sú að kerfið sé sífellt að reyna að ná andanum. Þegar fjölskyldur þurfa að skipuleggja vinnu og daglegt líf út frá óvissu um leikskólapláss eða hvert barnið þarf að sækja grunnskóla þá sé eitthvað ekki í lagi.

„Þetta er ekki flókið mál þegar allt er talið til“

„Oft finnst mér umræðan um þessi mál hverfast um það sem ekki sé hægt að gera. Um ómöguleikann í stað þess sem hægt er að gera. Þetta er nefnilega ekki flókið mál þegar allt er talið til. Börn þurfa heilbrigt húsnæði, faglega kennslu og örugga vistun. Foreldrar þurfa að geta treyst því að leik- og grunnskólar borgarinnar séu í lagi, að starfsfólkið sé ánægt, að loftræsting virki, að viðhald sé í forgangi og að upplýsingagjöf sé skýr. Við viljum vita ef vandamál koma upp og hvernig á að leysa þau, ekki bara þegar þau verða að stórfrétt í blöðunum,“ segir hann.

Þorvaldur segir að lokum að í grunninn snúist þetta um ábyrgð og virðingu fyrir börnunum okkar.

„Reykjavík getur verið borg sem bregst hratt við þegar skemmdir koma upp, borg sem tryggir faglegt og gott starfsumhverfi fyrir fólkið sem vinnur í leik- og grunnskólunum, borg sem tryggir að húsnæði sé ekki bara til staðar heldur sé virkilega gott. Við byggjum ekki bara borg fyrir börnin okkar með samgöngum og skipulagsmálum í huga, heldur líka með góðum skólum. Þegar við sjáum til þess að þau hafi heilbrigt rými til að læra og þroskast, þá erum við að gera það sem skiptir raunverulega máli og þannig byggjum við betri borg til framtíðar.“

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

Fréttir
Fyrir 16 klukkutímum

Dómur fallinn í stóra skiltamáli Ormsson – „Böl verður ekki bætt með því að benda á eitthvað annað“

Dómur fallinn í stóra skiltamáli Ormsson – „Böl verður ekki bætt með því að benda á eitthvað annað“
Fréttir
Fyrir 17 klukkutímum

Flosi afar svartsýnn eftir komu á Landspítalann – „Þá tók ég stjórnina“

Flosi afar svartsýnn eftir komu á Landspítalann – „Þá tók ég stjórnina“