Hertogahjónin af Sussex, Harry Bretaprins og Meghan Markle, hafa opnað heimili sitt í Montecito í Kaliforníu fyrir vinum og ástvinum sem þurft hafa að yfirgefa heimili sín vegna gróðureldanna í Los Angeles.
Hjónin búa um 150 km norður af Los Angeles svæðinu. Svæðið hefur ekki verið rýmt, en íbúum hefur verið tilkynnt að rýma þyrfti með stuttum fyrirvara.
Sjá einnig: Heimili Harry og Meghan á hááhættusvæði – Gætu þurft að rýma tafarlaust
Auk þess að aðstoða ástvini sína, hafa hjónin einnig stutt við samfélagið í gegnum samtök sín Archewell Foundation til að ákvarða áhrifamestu leiðirnar til að styðja samfélagið í því áfalli sem það gengur nú í gegnum.Samtökin hafa þegar auglýst eftir sjálfboðaliðum sem veitt geta íbúum sálrænan stuðning. Að auki hafa öll framlög í gegnum samtökin verið lögð til hjálparstarfs.
Hjónin vinna ásamt kokkinum José Andrés’ sem starfrækir World Central Kitchen að hjálparstarfi og hafa hjónin einnig gefið nauðsynlegar vistir, svo og fatnað og barnavörur.
Fimmtudaginn 9. janúar gáfu þau út yfirlýsingu sem ber titilinn „Southern California Fires“ á vefsíðunni sussex.com, þar sem lögðu eru fram úrræði og hugmyndir fyrir einstaklinga sem vilja hjálpa íbúum sem orðið hafa fyrir tjóni vegna eldanna.
Robert Luna, lögreglustjóri í Los Angeles-sýslu, segir að fjöldi látinna af völdum eldanna í sé óþekktur eins og er, þrátt fyrir fyrri fregnir. Á blaðamannafundi fimmtudaginn 9. janúar sagði Luna að hann væri „ekki sáttur“ með bráðabirgðaupplýsingarnar sem hann fékk en tók fram að fólk „geri sitt besta“ í erfiðum aðstæðum.
Varaforseti Bandaríkjanna, Kamala Harris, hefur bent á að mörg tryggingafélög hafi sagt upp tryggingu hjá einstaklingum sem urðu fyrir tjóni vegna gróðureldanna, sem mun „leggja aukna byrði á getu þeirra til að jafna sig.“ Kallar hún eftir því að málið verði tekið fyrir.
@cbsnews Many insurance companies have canceled insurance for a lot of the families affected by the Los Angeles-area wildfires, which will „place an added burden on their ability to recover,“ says Vice President Kamala Harris, calling for the issue to be addressed. #news #Kamala #Biden #fires #wildfires #losangeles #California #Palisades ♬ original sound – cbsnews
Wall Street Journal greinir frá því að gróðureldarnir séu þeir kostnaðarsömustu í sögu Bandaríkjanna. Heildartjón vegna eldanna er um 50 milljarða bandaríkjadala, eða um 7 billjónir íslenskra króna að mati tryggingasérfræðings fjármálafyrirtækisins J.P. Morgan, Jimmy Bhullar,