fbpx
Mánudagur 09.mars 2026
Fréttir

UNiO er ný stafræn markaðsstofa

Ragna Gestsdóttir
Þriðjudaginn 16. september 2025 11:34

UNiO teymið þau Georg Bjarnason, Darri Már Garðarsson, Embla Líf Hallsdóttir, Jón Gísli Ström. Jón Gísli Ström, framkvæmdastjóri UNiO.

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

UNiO er ný stafræn markaðsstofa sem var stofnuð nýlega. Þótt UNiO sé nýtt nafn á markaðinum byggir stofan á traustum grunni. Hjá UNiO starfa fjórir sérfræðingar með sameiginlega áratuga reynslu í stafrænni markaðssetningu, bæði á innlendum og erlendum mörkuðum.

,,Stafrænn markaður hefur aldrei verið jafn kvikur og samkeppnin jafn hörð og í dag. Fyrirtæki, stór sem smá, þurfa að nýta öll tiltæk tól til að tryggja að þau nái til réttu markhópanna og standi sterk í þeirri grósku sem nú ríkir á markaðnum. Þar kemur UNiO inn sem ný stafræn markaðsstofa sem leggur áherslu á árangur, einfaldleika og gagnadrifna nálgun,“ segir Jón Gísli Ström, framkvæmdastjóri UNiO.

Hann segir að teymið hjá UNiO sameini djúpa þekkingu á helstu auglýsingakerfum, neytendahegðun og stefnumótandi markaðsráðgjöf. ,,Reynslan hefur sýnt að það sem virkar í dag er ekki endilega það sem virkar á morgun og að stöðug aðlögun og greining sé lykillinn að árangri.“ 

Skýr sýn á framtíðina

UNiO býður upp á heildstæðar stafrænar þjónustur, allt frá auglýsingum á Meta, TikTok og Google Ads yfir í umsjón samfélagsmiðla og framleiðslu á markaðsefni. Sérstaklega er lögð áhersla á að þjónusta netverslanir og minni fyrirtæki sem vilja hámarka árangur án þess að tapa fókus eða fjármagni.

,,Sérstaðan liggur í því að bjóða þjónustupakka sem sameina auglýsingastjórnun og djúpa greiningu á hegðun notenda. Þannig fá fyrirtæki ekki aðeins auglýsingar sem skila árangri heldur líka innsýn sem hjálpar þeim að skilja betur viðskiptavini sína og taka upplýstari ákvarðanir. Hjá UNiO er markmiðið einfalt, að hjálpa fyrirtækjum að taka næstu skref í sinni vegferð. Við leggjum mikla áherslu á gagnadrifna ákvarðanatöku og sérsniðnar lausnir sem skila raunverulegum árangri. Fyrir okkur er árangur ekki einungis mældur í smellum og fjölda birtinga heldur í raunverulegu virði fyrir viðskiptavinina,“ segir Jón Gísli.

UNiO vinnur nú þegar með fjölbreyttum hópi fyrirtækja og hefur sýnt fram á mælanlegan árangur í að efla sýnileika, auka sölu og styrkja vörumerkjavitund. ,,Með sameiginlegri reynslu, víðtækri þekkingu og skýrri sýn hefur stofan sett sér það markmið að vera traustur samstarfsaðili fyrir fyrirtæki sem vilja vaxa í gegnum stafrænar lausnir.“ 

 

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

Fréttir
Fyrir 2 dögum

Varað við eldingum á Höfuðborgarsvæðinu og Suðurlandi

Varað við eldingum á Höfuðborgarsvæðinu og Suðurlandi
Fréttir
Fyrir 2 dögum

Lýst eftir Marijus vegna handtökuskipunar

Lýst eftir Marijus vegna handtökuskipunar
Fréttir
Fyrir 2 dögum

Laufeyland opnar í takmarkaðan tíma – Stemning og upplifun fyrir alla aðdáendur

Laufeyland opnar í takmarkaðan tíma – Stemning og upplifun fyrir alla aðdáendur
Fréttir
Fyrir 2 dögum

Vísbendingar um aðkomu Rússa að stríðinu í Miðausturlöndum

Vísbendingar um aðkomu Rússa að stríðinu í Miðausturlöndum
Fréttir
Fyrir 2 dögum

Einar tekur við af Birni sem ritstjóri DV – Ari ráðinn aðstoðarritstjóri

Einar tekur við af Birni sem ritstjóri DV – Ari ráðinn aðstoðarritstjóri
Fréttir
Fyrir 2 dögum

Haukur lýsir áhyggjum sínum: „Enginn einn atburður myndi kosta þjóðina meira“

Haukur lýsir áhyggjum sínum: „Enginn einn atburður myndi kosta þjóðina meira“
Fréttir
Fyrir 3 dögum

Jón Gnarr svarar skrifum Sifjar fullum hálsi og af mikilli hæðni – „Kannski hef ég sjálfur gerst sekur um hugsunarglæp?“ 

Jón Gnarr svarar skrifum Sifjar fullum hálsi og af mikilli hæðni – „Kannski hef ég sjálfur gerst sekur um hugsunarglæp?“ 
Fréttir
Fyrir 3 dögum

Arkitekt dauðans sendi yfir 500 skilaboð á Tinder – Vefleit sýnir viðurstyggilegt klám tengt pyntingum og nauðgunum

Arkitekt dauðans sendi yfir 500 skilaboð á Tinder – Vefleit sýnir viðurstyggilegt klám tengt pyntingum og nauðgunum