fbpx
Sunnudagur 19.apríl 2026
Fréttir

Kalon nýtt vörumerki fyrir heilsu- og íþróttasvið Icepharma 

Ragna Gestsdóttir
Föstudaginn 6. mars 2026 12:20

Ragnhildur Rósa Guðmundsdóttir, deildarstjóri Kalon Sport, Hörður Þórhallsson, forstjóri Icepharma og Davíð Berg Ragnarsson, deildarstjóri Kalon Heilsu.

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Icepharma kynnti í gær nýtt heiti og ásýnd fyrir heildsölustarfsemi heilsu- og íþróttasviðs fyriræksins. Nýja vörumerkið fær heitið Kalon.

Undir Kalon fellur markaðs- og sölustarf fjölda rótgróinna vörumerkja á sviði heilsu og íþrótta, þar á meðal Nike, NOW, MUNA, Speedo, Sonett og Curaprox.

,,Kalon er hugsað sem skýr og nútímaleg umgjörð utan um starfsemi sviðsins og styður við vöxt og framtíðarsýn þess. Með sameiginlegri ásýnd einföldum við samskipti við birgja, viðskiptavini og starfsfólk, og styrkjum um leið heildarmyndina svo hvert vörumerki fái enn betur notið sín,“ segir Hörður Þórhallsson, forstjóri Icepharma. Kalon byggir starfsemi sína á traustum innviðum, áratuga langri reynslu og sterkum tengslum við birgja og viðskiptavini með sérstaka áherslu á heilsu, hreyfingu og vellíðan.

Heiti vörumerkisins Kalon á rætur að rekja til gríska hugtaksins καλόν sem merkir „hið fagra“. Hugtakið vísar þó ekki aðeins til ytri ásýndar heldur einnig til innri gæða og heildrænnar fegurðar. Sú merking endurspeglar nálgun starfseminnar þar sem heilsa, hreyfing og vellíðan fara saman.

Vörumerkið var þróað og hannað af Aton, þar sem Sigurður Oddsson leiddi hönnunarvinnu teymisins. Sigurður er margverðlaunaður hönnuður og hönnunarstjóri Aton. Við þróun þess var lögð áhersla á skýra og nútímalega framsetningu, og byggja grafískar einingar Kalon á hugmyndum um útgeislun, orku og innri styrk.

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

Fréttir
Í gær

Gufunesmálið í Landsrétti: Verjendur segja dómana allt of þunga

Gufunesmálið í Landsrétti: Verjendur segja dómana allt of þunga
Fréttir
Í gær

Nýja húsnæðið henti ekki Samhjálp og eigi að vera tímabundið

Nýja húsnæðið henti ekki Samhjálp og eigi að vera tímabundið
Fréttir
Í gær

Sjá fjármálin ekki sömu augum – „Rekstur Kópavogsbæjar er ekki sjálfbær“ – „Árangurinn af góðum rekstri er augljós“

Sjá fjármálin ekki sömu augum – „Rekstur Kópavogsbæjar er ekki sjálfbær“ – „Árangurinn af góðum rekstri er augljós“
Fréttir
Í gær

Ólafur svarar Guðna fullum hálsi og hvetur hann til að hringja í Þórólf

Ólafur svarar Guðna fullum hálsi og hvetur hann til að hringja í Þórólf
Fréttir
Fyrir 2 dögum

SÁÁ og Landspítalinn undirrita samning um sérnám lækna

SÁÁ og Landspítalinn undirrita samning um sérnám lækna
Fréttir
Fyrir 2 dögum

Svona telur Róbert að borgin gæti sparað mörg hundruð milljónir

Svona telur Róbert að borgin gæti sparað mörg hundruð milljónir