fbpx
Föstudagur 10.apríl 2026
Pressan

Ógnvekjandi ummæli heits stuðningsmanns Pútíns – Þessar borgir verða fyrstu skotmörkin

Pressan
Sunnudaginn 8. mars 2026 12:00

Vladimir Putin, Rússlandsforseti. Mynd/Getty

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Rússneski sjónvarpsmaðurinn Vladimir Solovjov er þekktur stuðningsmaður Vladímír Pútíns og er iðinn við að láta það í ljós. Hann stýrir spjallþætti í rússnesku sjónvarpi og nýlega fór hann yfir lista yfir þær evrópsku höfuðborgir sem Rússar munu ráðast á ef heimsstyrjöld brýst út.

Ladbible skýrir frá þessu og segir að Solovjov hafi sérstaklega nefnt Berlín, París og Vín sem borgir sem Rússar þurfa að „hertaka“ aftur.  Hann sagði það ekki óskastöðu en nauðsynlegt ef Vesturlönd ögra Rússlandi.

„Við verðum enn einu sinni að eyðileggja Berlín og fara inn í þessa guðforlátnu borg. Enn einu sinni verðum við að fara inn í París. Enn einu sinni verðum við að frelsa Vín. Kannski skipta Austurríkismenn um skoðun,“ sagði hann.

Þessi ummæli hans komu á sama tíma og óttinn við að stríðið í Úkraínu breiðist út fer vaxandi. Margir atburðir á síðasta ári hafa aukið á þann ótta, meðal annars þegar rússneskum drónum var flogið inn í pólska lofthelgi sem og eistneska. Þetta hefur aukið spennuna á milli Rússlands og NATÓ.

Andrey Sidorov, starfsbróðir Solovjov, gekk enn lengra og sagði að nýlegt dauðsfall bresks manns í Úkraínu sé sönnun þess að Rússland og Bretland eigi í stríði. Hann sagðist telja að þetta geti réttlætt að beita kjarnorkuvopnum gegn Bretlandi.

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

Pressan
Fyrir 2 dögum

Dóttir krefst svara eftir dularfullt hvarf móður sinnar

Dóttir krefst svara eftir dularfullt hvarf móður sinnar
Pressan
Fyrir 2 dögum

Dularfull andlát og hvörf níu vísindamanna með tengsl við NASA og kjarnorkuleyndarmál vekja áhyggjur

Dularfull andlát og hvörf níu vísindamanna með tengsl við NASA og kjarnorkuleyndarmál vekja áhyggjur
Pressan
Fyrir 3 dögum

Beið í meira en hálfa öld eftir að ná fram hefnd eftir atvik í búningsklefa

Beið í meira en hálfa öld eftir að ná fram hefnd eftir atvik í búningsklefa
Pressan
Fyrir 4 dögum

Dreymir þig um að flytja út? Þessi átta lönd greiða þér fyrir það

Dreymir þig um að flytja út? Þessi átta lönd greiða þér fyrir það
Pressan
Fyrir 5 dögum

Sálfræðingur segir að fólkið í hamingjusömustu samböndunum tali daglega um þetta

Sálfræðingur segir að fólkið í hamingjusömustu samböndunum tali daglega um þetta
Pressan
Fyrir 5 dögum

Það hversu oft þú borðar getur haft áhrif á heilann

Það hversu oft þú borðar getur haft áhrif á heilann