fbpx
Sunnudagur 19.apríl 2026
Fréttir

Sakfelldur fyrir ofbeldi gegn barni: Barði stúlkuna með belti í læri

Ágúst Borgþór Sverrisson
Fimmtudaginn 5. mars 2026 20:00

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Maður á fertugsaldri var í Héraðsdómi Vesturlands sakfelldur fyrir brot gegn barnaverndarlögum og líkamsárás með því að hafa slegið barnunga stúlku með belti í læri hennar og með því sýnt af sér ósiðlegt og ruddalegt athæfi gagnvart stúlkunni.

Ofbeldið átti sér stað á heimili mannsins og stúlkunnar, ekki kemur fram staðfest hver tengsl þeirra eru en ráða má af texta dómsins að ákærði sé faðir barnsins en á einum stað segir í dómnum:

„Hins vegar verður ekki hjá því litið að brotið var framið á sameiginlegu heimili brotaþola og ákærða, en heimili á að vera griðastaður þeirra sem þar búa og standa skyldur ákærða m.a. til þess að svo geti verið. Þá eiga börn að njóta verndar og umönnunar af hálfu foreldra og ber foreldrum að sýna börnum sínum umhyggju og virðingu og vernda þau gegn ofbeldi og annarri vanvirðandi háttsemi…“

Maðurinn játaði brotið og sýndu iðrun. Var það virt honum til refsilækkunar, sem og það að hann hefur ekki áður gerst brotlegur við lög.

Hins vegar var maðurinn talinn hafa sýnt af sér einbeittan brotavilja en samkvæmt gögnum málsins sótti hann beltið sem hann sló stúlkuna með sérstaklega inn í skáp.

Niðurstaðan var 30 daga skilorðsbundið fangelsi.

Dóminn má lesa hér.

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

Fréttir
Í gær

Gufunesmálið í Landsrétti: Verjendur segja dómana allt of þunga

Gufunesmálið í Landsrétti: Verjendur segja dómana allt of þunga
Fréttir
Í gær

Nýja húsnæðið henti ekki Samhjálp og eigi að vera tímabundið

Nýja húsnæðið henti ekki Samhjálp og eigi að vera tímabundið
Fréttir
Í gær

Sjá fjármálin ekki sömu augum – „Rekstur Kópavogsbæjar er ekki sjálfbær“ – „Árangurinn af góðum rekstri er augljós“

Sjá fjármálin ekki sömu augum – „Rekstur Kópavogsbæjar er ekki sjálfbær“ – „Árangurinn af góðum rekstri er augljós“
Fréttir
Í gær

Ólafur svarar Guðna fullum hálsi og hvetur hann til að hringja í Þórólf

Ólafur svarar Guðna fullum hálsi og hvetur hann til að hringja í Þórólf
Fréttir
Fyrir 2 dögum

SÁÁ og Landspítalinn undirrita samning um sérnám lækna

SÁÁ og Landspítalinn undirrita samning um sérnám lækna
Fréttir
Fyrir 2 dögum

Svona telur Róbert að borgin gæti sparað mörg hundruð milljónir

Svona telur Róbert að borgin gæti sparað mörg hundruð milljónir