fbpx
Sunnudagur 19.apríl 2026
Fréttir

Gunnar Smári útskrifaður af sjúkrahúsi: „Líkast því að vera vakandi í eigin útför”

Ritstjórn DV
Föstudaginn 6. mars 2026 09:11

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Gunnar Smári Egilsson, ritstjóri Samstöðvarinnar, er útskrifaður af sjúkrahúsi og kominn heim eftir að hafa glímt við nokkuð alvarleg veikindi.

Hann greindi frá því þann 25. febrúar síðastliðinn að hann hefði greinst með blóðtappa í fæti, lungum og hjarta.

„Ég vil þakka starfsfólkinu á Landspítalanum fyrir að sjá vel um mig þegar mig rak á fjörur þess, svolítið beyglaður og úr lagi genginn,“ segir hann og kveðst einnig þakklátur fyrir allar þær góðu kveðjur sem hann hefur fengið.

„Þetta hefur verið líkast því að vera vakandi í eigin útför, um mig voru sögð svo mörg falleg orð að mér finnst hálfgert frat að hafa ekki dáið, það voru farnar að spretta út um eyrun á mér hvítar orkídeur og liljur, hefði helst vilja moka yfir mig mold eins og Jacques Brel syngur í kvæðinu,“ segir hann og heldur áfram:

„En ég lifði þetta af og fram undan er leið að skárri heilsu og nýjum kafla lífsins, sem mig grunar að verði gjöfull,“ segir hann meðal annars í færslunni sem má lesa í heild sinni hér að neðan.

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

Fréttir
Í gær

Gufunesmálið í Landsrétti: Verjendur segja dómana allt of þunga

Gufunesmálið í Landsrétti: Verjendur segja dómana allt of þunga
Fréttir
Í gær

Nýja húsnæðið henti ekki Samhjálp og eigi að vera tímabundið

Nýja húsnæðið henti ekki Samhjálp og eigi að vera tímabundið
Fréttir
Í gær

Sjá fjármálin ekki sömu augum – „Rekstur Kópavogsbæjar er ekki sjálfbær“ – „Árangurinn af góðum rekstri er augljós“

Sjá fjármálin ekki sömu augum – „Rekstur Kópavogsbæjar er ekki sjálfbær“ – „Árangurinn af góðum rekstri er augljós“
Fréttir
Í gær

Ólafur svarar Guðna fullum hálsi og hvetur hann til að hringja í Þórólf

Ólafur svarar Guðna fullum hálsi og hvetur hann til að hringja í Þórólf
Fréttir
Fyrir 2 dögum

SÁÁ og Landspítalinn undirrita samning um sérnám lækna

SÁÁ og Landspítalinn undirrita samning um sérnám lækna
Fréttir
Fyrir 2 dögum

Svona telur Róbert að borgin gæti sparað mörg hundruð milljónir

Svona telur Róbert að borgin gæti sparað mörg hundruð milljónir