fbpx
Fimmtudagur 07.maí 2026
Fréttir

Sigmar sendir neyðarkall: „Hverskonar þvæla er eiginlega í gangi?“

Ritstjórn DV
Þriðjudaginn 27. febrúar 2024 11:00

Sigmar Guðmundsson Mynd: Heiða Helgadóttir

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Sigmar Guðmundsson, þingmaður Viðreisnar, segir að eitt allra alvarlegasta meinið sem samfélagið glímir við í dag sé áfengis- og vímuefnavandinn. Sigmar hefur fjallað ítarlega um þessi mál að undanförnu og hann heldur uppteknum hætti í aðsendri grein sem birtist á vef Vísis í morgun. Mætti segja að um sé að ræða einskonar neyðarkall vegna þessar stöðu sem er uppi.

„Við sem samfélag erum merkilega áhugalaus gagnvart þeirri staðreynd að um 100 einstaklingar deyja árlega úr þessum sjúkdómi. Á bak við þessa 100 einstaklinga er svo gríðarlegur fjöldi annarra sem syrgir. Enn stærri er svo hópurinn sem glímir við fíkn á hverjum einasta degi. Þetta fólk er talið í tugþúsundum,“ segir hann og er gagnrýninn á það hversu mikið aðgerðarleysi ríkir í þessum málaflokki.

„Samfélagið er steinsofandi og svo samdauna vandanum, að við kippum okkur ekki lengur upp við að 18 ára gamall drengur látist úr ofskömmtun. 18 ára drengur er dáinn úr alkóhólisma löngu áður en hann hefur aldur til að kaupa brennivín í ríkinu!“

Svo samdauna að fórnarlömbin gleymast

Sigmar segir að vandinn hafi vissulega verið að vaxa með okkur í gegnum árin. Staðreyndin sé samt sú að við getum ekki leyft okkur að verða svo samdauna vandanum að fórnarlömb faraldursins gleymist.

„Í hvert einasta sinn sem ég færi þetta í tal, hvort sem það er á Alþingi, í fjölmiðlum eða á samfélagsmiðlum þá rignir yfir mig skilaboðum frá fólki sem á eitt sameiginlegt. Örvæntingu,“ segir hann og heldur áfram:

„Örvæntingu yfir því að börnin þeirra komast ekki í meðferð. Örvæntingu vegna þess úrræðaleysis sem þau upplifa í svokölluðu velferðarsamfélagi sem var byggt upp til að grípa okkar veikasta fólk. Á meðal aðstandenda er sú tilfinning djúpstæð að fólkið þeirra sé gleymt og grafið þótt það sé enn á lífi. Lifandi dáið,“ segir Sigmar sem spyr hvort það sé svona erfitt fyrir okkur að tengja við örvæntingarfulla foreldra sem horfa upp á fárveikt barnið sitt og óttast á hverjum degi að barnið deyi áður en það losnar pláss í meðferð.

Hvar tíndum við þræðinum?

„Ég skil ekki alveg hvar við náðum að tína þræðinum svona hressilega í þessari baráttu. Á meðan eldarnir brenna þarna úti þá erum við slíkt aumingjasamfélag að kerfin okkar keyra ekki einu sinni á fullum afköstum. Við erum ekki að fullnýta plássin sem við þó höfum, á sama tíma og biðlistar lengjast og lengjast. Vandinn fer ekki neitt. Vogur keyrir ekki á fullum afköstum og það á við um fleiri meðferðarstöðvar. Ástæðan? Fjárskortur.“

Sigmar spyr hvort við ætlum bara að sætta okkur við þessa stöðu.

„Þetta er auðvitað algerlega glatað og hreint virðingarleysi gagnvart þeim hundruðum aðstandenda sem bíða á milli vonar og ótta eftir því að fá pláss fyrir sitt veika fólk. Að ekki sé talað um sjálfa sjúklingana sem eiga rétt á þessari heilbrigðisþjónustu. Ætlum við bara að sætta okkur við að um það bil tveir einstaklingar deyja í hverri einustu viku á meðan sjúkrarúmin eru tóm? Hverskonar þvæla er eiginlega í gangi?“

Sigmar segir ekkert skrýtið að fólk sé örvæntingarfullt. Hann segist ekki ætla að þykjast eiga öll svörin við því hvað sé best að gera. En hann er þó með ráð til ríkisstjórnarinnar.

„Við búum svo vel á Íslandi að hér er til ótrúlega öflug sérfræðiþekking á meðferðarstarfi og öllu því sem við kemur þessum sjúkdómi. Hlustið á þetta fólk. Vel og vandlega og takið mark á því sem það segir ykkur. Það væri ágætis byrjun.“

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

Fréttir
Fyrir 17 klukkutímum

Þröstur er með nýrnabilun á lokastigi – Óskar eftir aðstoð til að halda reisn og sjálfstæði „síðustu ár ævi minnar“

Þröstur er með nýrnabilun á lokastigi – Óskar eftir aðstoð til að halda reisn og sjálfstæði „síðustu ár ævi minnar“
Fréttir
Fyrir 18 klukkutímum

Heimir Már segir hægri menn býsnast yfir innflytjendum – „Staðið undir öllum hagvexti Íslands undanfarin 10-15 ár“

Heimir Már segir hægri menn býsnast yfir innflytjendum – „Staðið undir öllum hagvexti Íslands undanfarin 10-15 ár“
Fréttir
Fyrir 23 klukkutímum

Ákærður fyrir hótanir gegn unnustu – „Ég ræðst beint á það sem þér þykir vænst um“

Ákærður fyrir hótanir gegn unnustu – „Ég ræðst beint á það sem þér þykir vænst um“
Fréttir
Fyrir 23 klukkutímum

Lögreglan birtir gervigreindarmynd til að auglýsa skotvopnaeftirlit – Loka fyrir athugasemdir

Lögreglan birtir gervigreindarmynd til að auglýsa skotvopnaeftirlit – Loka fyrir athugasemdir
Fréttir
Í gær

Yoko Ono lét stöðva framleiðslu John Lennon bjórs

Yoko Ono lét stöðva framleiðslu John Lennon bjórs
Fréttir
Í gær

Sagði lögreglumenn á höfuðborgarsvæðinu hafa beitt sér harkalega gegn ólögráða syni sínum – Dagbók lögreglunnar sagði allt aðra sögu

Sagði lögreglumenn á höfuðborgarsvæðinu hafa beitt sér harkalega gegn ólögráða syni sínum – Dagbók lögreglunnar sagði allt aðra sögu