fbpx
Sunnudagur 28.apríl 2024
Fréttir

Segir fjármálaráðherra ofmeta fjárhæðina sem það kostar að greiða alla Grindvíkinga út – „Ég held að þetta sé fjárhæð sem ríkissjóður fer léttilega með“

Ragna Gestsdóttir
Miðvikudaginn 17. janúar 2024 09:00

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

„Á fyrstu vikum og mánuðum eftir hrun tók ríkissjóður á sig líklega um 600 milljarðar króna vegna annars vegar „ástarbréfa“ hjá Seðlabankanum og hins vegar stofnfjár til nýrra banka. Af um 370 milljörðum króna í „ástarbréfunum“ voru um 270 milljarðar króna afskrifaðar með einu pennastriki og restin var afskrifuð 1-2 árum síðar. Ríkissjóður þurfti ekki að gera þetta, hafði ekki efni á því, en þetta var metið nauðsynlegt.

Spólum áfram rúm 15 ár. Þórdís Kolbrún Reykfjörð Gylfadóttir, fjármála- og efnahagsráðherra, nefndi á íbúafundinum í dag að það kostaði 115 milljarða króna að kaupa upp húsnæði Grindvíkinga. En er þetta virkilega sú fjárhæð sem þyrfti að greiða íbúum Grindavíkur, ef ríkissjóður tæki yfir allar íbúðareignir í eigu einstaklinga í bænum? Íbúðareignir í eigu lögaðila teljast atvinnueignir,

segir Marinó G. Njálsson, ráðgjafi og sérfræðingur í áhættustjórnun, öryggismálum og persónuvernd.

Fjölmennur íbúafundur

Íbúafundur fyrir Grindvíkinga fór fram í Laugardalshöll í gær. Fjölmargir fluttu erindi og sátu síðan í pallborði og svöruðu spurningum Grindvíkinga um hin ýmsu málefni sem á þeim brenna.

Óþarfi er að tíunda þær hörmungar sem dunið hafa yfir Grindavík og íbúa síðustu vikur, þær eru alþjóð kunnar, en íbúafundurinn var þéttsettinn og margir sem báru fram spurningar á fundinum sem er um 2,5 klst. að lengd.

Horfa má af upptöku af fundinum hér fyrir neðan:

Á meðal þeirra sem sátu í pallborði var Þórdís Kolbrún Reykfjörð Gylfadóttir, fjármála- og efnahagsráðherra og tók hún til máls og sagði að það kostaði 120-140 milljarða króna að kaupa upp húsnæði Grindvíkinga (athugið sem er hærri upphæð en Marinó tilgreinir í færslu sinni á Facebook):

Marinó segir fjármálaráðherra ofmeta fjárhæðina sem það kostar að greiða alla Grindvíkinga út þegar kemur að íbúðarhúsnæði. Fer hann nánar yfir útreikning:

1) Samkvæmt upplýsingum frá Húsnæðis- og mannvirkjastofnun (HMS) er heildarfasteignamat íbúðareigna 72,8 milljarðar króna vegna ársins 2024 (sjá meðfylgjandi mynd). (Tekið fram, að ég er eingöngu að skoða íbúðareignir. Aðrar eignir eru með fasteignamat upp á rúmlega 33,6 milljarða króna).

2) Brunabótamat eignanna sveiflast talsvert (byggt á upplýsingum fyrir árin 2018-2023 í Kaupskrá fasteigna, sem HMS heldur utan um, er munurinn að meðaltali rúm 9%). Forstjóri Náttúruhamfaratrygginga Íslands (NTÍ) greindi frá því, að gera mætti ráð fyrir að bótafjárhæð væri um 10-12% lægri en brunabótamatið. Þetta þýðir í raun, að bótafjárhæð vegna altjóns er ca. 2-3% lægri en fasteignamatið fyrir 2024.

3) Samkvæmt tölum úr skattskýrslum vegna tekjuársins 2022 og finna má á vef Skattsins, var meðalskuldsetning fasteigna einstaklinga um 30% fyrir landið allt í árslok 31.12.2022. Af 72,8 milljarða króna fasteignamati, þá má því búast við að skuldir nemi 22 milljörðum króna.

4) Sé gert ráð fyrir, að ofangreindar upplýsingar séu nokkuð nærri lagi, stæðu þá um 50 milljarðar króna eftir, sem væri sú fjárhæð sem ríkið þyrfti að greiða út til íbúðareigenda í Grindvík, það er einstaklinga. Hún er nokkuð nærri þeirri fjárhæð sem endurtryggingar NTÍ ná til. Hvort ríkið velji síðan, að taka yfir áhvílandi lán eða greiða þau upp, kemur núverandi eigendum ekkert við. Gleymum svo ekki að ríkið eignast húsnæðið á móti.

5) Þegar hefur einhver fjöldi íbúðareigna orðið fyrir altjóni. Mjög margar hafa orðið fyrir miklu tjóni. Fjárhæð þessa tjóns þarf NTÍ hvort eð er að greiða út og kemur því til frádráttar 50 milljarðar króna að ofan. Enn lækkar því fjárhæðin sem þyrfti að greiða út án þess að burðarvirki húsa hafi eyðilaggst.

Segir auðveldara að fá úrlausn fyrir Grindvíkinga þegar tölur eru í samræmi við opinber gögn

Ég ætla að leyfa mér að treysta upplýsingum NTÍ, HMS og Skattsins og met upphæðina upphæðina umtalsvert lægri en Þórdís Kolbrún og ráðuneytið. Helsti munurinn á mínum útreikningum og ráðuneytisins er að a) ráðuneytið virðist ekki draga frá kostnað vegna förgunar, sem NTÍ metur um 10-12% af brunabótamati; b) ekki er tekið tillit til þess, að fólk er skuldsett og við yfirtöku eigna, þá er það í valdi nýs eiganda að ákveða hvort áhvílandi lán eru greidd upp eða haldið áfram að greiða af þeim, sem væri kannski 2 milljarðar króna á ári; c) þar sem fundurinn var íbúafundur, þá horfi ég eingöngu til íbúðaeigna; d) greiða þarf bætur vegna tjóns á húsnæði út um alla Grindavík.

Við þetta fer upphæðin því úr 115 milljörðum króna niður í líklega um 40-45 milljarða króna, en það veltur á lánum sem hvíla á íbúðareignunum. Ég held að þetta sé fjárhæð, sem ríkissjóður fer léttilega með. Að minnsta kosti tafðist ekkert fyrir ríkissjóði að greiða álíka upphæð „til veitingastaða og annarra [fyrirtækja] sem þurftu að draga úr starfsemi í faraldrinum“, samkvæmt upplýsingum frá embætti ríkisskattstjóra í júlí 2022.

Ég átta mig á því, að eftir standa fasteignir með fasteignamat upp á 33,6 milljarða króna. Ég er ekki að gera lítið úr þeim eignum eða þörfum þeirra sem þær eiga. Íbúar Grindavíkur þurfa hins vegar úrlausn sinna mála og það er auðveldara, þegar tölur eru í samræmi við opinber gögn.“

Treystir Grindvíkingum sjálfum best til að koma með hugmyndir að lausn

Ljóst er að málefni Grindvíkinga og staðan sem langflestir íbúa eru í er Marinó hugleikin. Á mánudag fór hann einnig yfir stöðuna þar sem ljóst er að ekki búið í Grindavík í marga mánuði og jafnvel aldrei.
„Húseigendatrygging mín tryggir mér bætur vegna afnotamissis af heimilinu. Náttúruhamfaratrygging gerir ekkert slíkt, þrátt fyrir að hús séu rýmd með boðvaldi til að tryggja öryggi íbúa meðan neyðarástand vegna náttúruhamfara varir. Auk þess þurfa hús að eyðileggjast til að tjón sé greitt út.
Nú stefnir í að ekki verður hægt að búa í hluta Grindavíkur í minnst marga mánuði eða jafnvel aldrei aftur. Húsin á þessu svæði eru ekki ónýt, en hættan á því að búa í þeim getur verið mikil. Þó sig myndi hætta í dag, þá gæti það haldið áfram eftir 1 ár, 5 ár eða 10 ár. Tæknilega séð eru húsin heil, en þau eru ónothæf. Breyta þarf lögum um náttúruhamfaratryggingar þannig að þær bæti líka húsnæði sem hefur orðið ónothæft vegna náttúruvár og þær eiga líka að bæta fólki afnotamissi þannig að fólk geti þó a.m.k. komið sér fyrir í leiguhúsnæði á meðan. Það er út í hött, að fólk eigi að vera komið upp á góðvild annarra,“ segir Marinó.
Segist hann átta sig á því, að reikningurinn er hár, „en hann lækkar ekkert við að draga hlutina á langinn. Þegar er byrjað að bætast við heilsutjón, eins og eftir hrun, þar sem fólk er að kikna undan álaginu. Talað er um fjárhagsörðugleika fólks, lítið sem ekkert húsnæðisöryggi, fólk býr þröngt, því er hent á milli hótela
Stjórnvöld verða að girða sig í brók. Koma með áætlanir sem hægt er að fylgja eftir, en ekki bíða og vona að allt bjargist af sjálfu sér. Ég treysti Grindvíkingum best að koma með hugmyndirnar um hvað þarf að gera.“
Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

Fréttir
Fyrir 22 klukkutímum
Enn einn Snapchat-perrinn
Fréttir
Í gær

Sjáðu myndbandið: Sverrir Einar handtekinn og leiddur út í járnum í miðbænum

Sjáðu myndbandið: Sverrir Einar handtekinn og leiddur út í járnum í miðbænum
Fréttir
Í gær

Snorri og Patrik vekja hneykslun: Konan hugsi um börnin og karlinn um peningana – „Gömlukallaraus í ungum mönnum“

Snorri og Patrik vekja hneykslun: Konan hugsi um börnin og karlinn um peningana – „Gömlukallaraus í ungum mönnum“
Fréttir
Í gær

Pálmatré raunhæft verkefni en aðeins eitt tré mun rísa

Pálmatré raunhæft verkefni en aðeins eitt tré mun rísa
Fréttir
Fyrir 2 dögum

Kári Hansen skilaði inn meðmælum til forseta Íslands rafrænt

Kári Hansen skilaði inn meðmælum til forseta Íslands rafrænt
Fréttir
Fyrir 2 dögum

Reiði vegna skemmdarverks á Suðurgötu: Málið verður tilkynnt lögreglu – Sjáðu myndina

Reiði vegna skemmdarverks á Suðurgötu: Málið verður tilkynnt lögreglu – Sjáðu myndina
Fréttir
Fyrir 2 dögum

Tveir Bretar hætt komnir á Íslandi: Grét þegar hann sagði frá slysinu – Vinur hans enn á spítala

Tveir Bretar hætt komnir á Íslandi: Grét þegar hann sagði frá slysinu – Vinur hans enn á spítala
Fréttir
Fyrir 2 dögum

Mótmælin á Tenerife – Vill ekki ferðamenn með „allt-innifalið“ armbönd

Mótmælin á Tenerife – Vill ekki ferðamenn með „allt-innifalið“ armbönd
Fréttir
Fyrir 2 dögum

Helga Þórisdóttir búin að ná meðmælendum

Helga Þórisdóttir búin að ná meðmælendum