fbpx
Fimmtudagur 13.nóvember 2025
Fréttir

Bæjarfulltrúi Sjálfstæðisflokksins styður ekki Coda Terminal verkefnið við Vellina – Þyrfti aðkomu minnihlutans til að koma málinu í gegn

Kristinn H. Guðnason
Mánudaginn 15. júlí 2024 12:30

Kristínu lýst ekki á framkvæmdina eins og hún lítur út í dag.

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Kristín Thoroddsen, bæjarfulltrúi Sjálfstæðisflokksins í Hafnarfirði, segist ekki geta stutt Coda Terminal verkefnið eins og það lýtur út í dag. Þar með gæti meirihlutinn í bæjarstjórn ekki komið málinu í gegn nema með aðstoð minnihlutans.

DV greindi frá því að ólga væri á meðal íbúa í Vallahverfinu í suðurhluta Hafnarfjarðar vegna fyrirhugaðrar niðurdælingar koldíoxíðs sunnan við hverfið. Coda Terminal er í eigu Carbfix, fyrirtækis sem  fangar koldíoxíð úr andrúmsloftinu. Fyrirtækið skrifaði undir viljayfirlýsingu við Hafnarfjarðarbæ og Rio Tinto árið 2022.

„Tilraunaverkefni nálægt byggð“

Efnið á ekki aðeins að koma frá Íslandi heldur yrði meirihluta þess siglt hingað frá útlöndum í sérsmíðuðum tankskipum. Stækka þyrfti höfnina í Straumsvík til þess að geta tekið á móti skipunum.

Margir íbúar eru óttaslegnir við að koldíoxíðinu yrði dælt niður svo nálægt byggð en stefnt er að því að reisa tíu borteiga. Dæla þarf grunnvatni upp í staðinn fyrir koldíoxíðið og því getur vatnsbúskapurinn raskast í jörðinni sem og hugsanlega spenna og burðarþol jarðvegsins.

„Svona verkefni hefur aldrei verið framkvæmt af þessari stærðargráðu í heiminum, hvað þá í tilraunaskyni svona nálægt íbúabyggð,“ segir í tilkynningu hóps íbúa sem mótmælir þessum fyrirhuguðu framkvæmdum.

Hagsmunir Hafnarfjarðar og Carbfix fari ekki saman

Kristín lýsti því yfir um helgina á samfélagsmiðlum að henni litist ekki á verkefnið eins og það lítur út í dag.

„Það hefur ekki farið fram hjá neinum umræðan um Carbfix og hugmyndir fyrirtækisins um niðurdælingu í landi Hafnarfjarðar,“ segir Kristín. „Ég ákvað sem bæjarfulltrúi að mæta til leiks með opinn huga og studdi að skoða alla þætti málsins. Íbúar hafa jafnframt haft tækifæri að kynna sér málið og komið skoðunum sínum vel á framfæri og lýst yfir áhyggjum.“

Segist Kristín taka undir ýmislegt sem komi þar fram.

„Af þeim gögnum sem nú liggja fyrir hef ég efasemdir um að hagsmunir Hafnarfjarðar fari saman við fyrirætlanir fyrirtækisins og á því erfitt með að styðja verkefnið eins og það lítur út í dag,“ segir Kristín.

Tekur hún það fram að hún hafi ekkert á móti fyrirtækinu Carbfix. Hún trúi á tæknina sem liggi að baki verkefninu og dáist að hugvitinu. Hún ítrekar einnig að þó að bæjarstjórn hafi skrifað undir viljayfirlýsingu þá hafi bæjarstjórn ekki tekið afstöðu í málinu. Viljayfirlýsingin þýði að vilji standi til að verkefnið yrði skoðað og það hafi hún stutt.

Fulltrúar Rio Tinto, Hafnarfjarðarbæjar, Coda Terminal og Carbfix undirrita viljayfirlýsingu í desember árið 2022. Mynd/Carbfix

Sjálfstæðisflokkur og Framsóknarflokkur eru með 6 af 11 fulltrúum í bæjarstjórn. Ljóst er því að bæjarstjórn þyrfti aðkomu minnihlutans til þess að koma málinu í gegn eins og staðan er núna.

Vill íbúakosningu

Rósa Guðbjartsdóttir bæjarstjóri hefur sagt að hún skilji áhyggjur íbúa og að verkefnið verði ekki keyrt í gegn í mikilli andstöðu við íbúa. Málið verði skoðað til hlýtar.

Sjá einnig:

Ólga í Hafnarfirði – „Svona verkefni hefur aldrei verið framkvæmt af þessari stærðargráðu í heiminum, hvað þá í tilraunaskyni svona nálægt íbúabyggð“

Áður en andstaða íbúa kom fram hafði Hafnarfjarðarbær skoðað 9 milljarða króna lántöku fyrir stækkun hafnarinnar í Straumsvík. Nú hefur það verið slegið út af borðinu. Coda Terminal verði í staðinn að fá fjárfesta að borðinu til að stækka höfnina.

Jón Ingi Hákonarson, fulltrúi Viðreisnar í minnihluta bæjarstjórnar, hyggst leggja fram tillögu um íbúakosningu um framkvæmdina. Hana megi ekki gera í andstöðu við vilja íbúa.

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

Fréttir
Fyrir 17 klukkutímum

Starfslokasamningar upp á 50 milljónir vegna tveggja stjórnenda

Starfslokasamningar upp á 50 milljónir vegna tveggja stjórnenda
Fréttir
Fyrir 17 klukkutímum

Segir kynjajafnrétti og aukna þátttöku karla í umönnun barna hafa breytt orðasambandinu „eiga von á barni“

Segir kynjajafnrétti og aukna þátttöku karla í umönnun barna hafa breytt orðasambandinu „eiga von á barni“
Fréttir
Í gær

Bónus og viðskiptavinir styrkja Krabbameinsfélagið um 5 milljónir króna

Bónus og viðskiptavinir styrkja Krabbameinsfélagið um 5 milljónir króna
Fréttir
Í gær

Betur fór en á horfðist hjá ungum börnum í Reynisfjöru

Betur fór en á horfðist hjá ungum börnum í Reynisfjöru
Fréttir
Í gær

Guðni svarar Halldóri: „Hneisa að nefna fyrirtæki starfandi á Íslandi enskum nöfnum“

Guðni svarar Halldóri: „Hneisa að nefna fyrirtæki starfandi á Íslandi enskum nöfnum“
Fréttir
Í gær

Helgi Magnús lætur allt flakka – „Fyrirgefðu frönskuna mína“

Helgi Magnús lætur allt flakka – „Fyrirgefðu frönskuna mína“