Fjölskyldan sem um ræðir, frá Haywood County í Norður-Karólínu, var stödd í Bláa lóninu á laugardagskvöld þegar eldgos hófst skammt frá.
Fjölskylduföðurnum, Tom Roberts, hafði lengi dreymt um að fá að sjá norðurljósin og í fyrstu ætlaði hann að fara til Alaska í þeim tilgangi.
„Við hugsuðum sem svo að það væri alveg eins gott að sjá þau á Íslandi,“ segir hann en úr varð að öll fjölskyldan fór með til Íslands. En fjölskyldan sá enga ljósasýningu á himni, en þess í stað öllu tilkomumeiri sýningu sem átti rætur í iðrum jarðar en allt hófst þetta fjölskyldan var að borða kvöldmat í Bláa lóninu.
„Við sáum þarna örugglega í 5-10 sekúndur, horfðum í kringum okkur og hugsuðum: „Þetta er í alvörunni að gerast núna.“ Svo áttuðum við okkur betur á hvað væri í gangi og hugsuðum með okkur að við þyrftum að fara strax,“ segir Shaun Sandefur í viðtali við WLOS ABC 13.
„Það var súrrealískt að ganga út af veitingastaðnum og sjá rauðan himininn. Þegar við komum út heyrðum við hljóðin í gosinu. Þetta var eins og hljóðið í sjónum nema hærra og meira ógnvekjandi,“ segir hann.
Viðvörunarbjöllur byrjuðu að óma í kjölfarið og segir Shaun að gestir hótelsins hafi drifið sig í að taka föggur sínar saman. „Starfsfólk Bláa lónsins var mjög rólegt og yfirvegað,“ segir Kelly Reece, kærasta Shaun. „Þau voru dugleg að reka á eftir okkur og vildu að þetta gengi hratt fyrir sig.“
Gestum var smalað í rútur sem flutti fólkið í burtu og á annað hótel.
„Þetta er móðir náttúra og það fær ekkert stöðvað hana. Þetta var eitt það ótrúlegasta sem ég hef upplifað og ég efast um að eitthvað muni toppa þessa reynslu“ segir Shaun.