Um er að ræða þætti sem segja frá baráttu venjulegs fólks við aukakílóin en þátttakendur eru yfirleitt að minnsta kosti 270 kíló þegar þeir hefja vegferð sína í átt að léttara lífi.
Óhætt er að segja að líf Schulze hafi tekið stakkaskiptum síðan þá en hann tók þátt í 11. þáttaröðinni sem sýnd var í fyrra. Óhætt er að segja að Schulze hafi tekið verkefnið alvarlega því hann er búinn að léttast um 180 kíló frá því hann var hvað þyngstur.
Daily Star segir frá stöðu mála hjá Schulz en hann léttist um rétt rúm hundrað kíló meðan á tökum stóð. Hann hefur haldið uppteknum hætti og lést um 80 kíló til viðbótar. Hefur þetta meira að segja gert það að verkum að hann getur nú spennt á sig bílbelti þegar hann fer á flakk.
Schulze sýndi fylgjendum sínum á Instagram breytingarnar sem hafa orðið á líkama hans undanfarin misseri. Eins og gefur að skilja er mikil umframhúð á líkama hans og leiddi hann fylgjendur sína í allan sannleikann um stöðu mála.
Hann segist ekki vera hættur og enn sé langur vegur fyrir höndum. „En þetta er eitthvað sem ég get gert. Ég er mjög þakklátur fyrir að hafa ykkur öll með mér í þessari vegferð,“ sagði hann.
View this post on Instagram