fbpx
Sunnudagur 03.maí 2026
Fréttir

„Ljóst er að gríðarlegt tjón er á bænum okkar“

Ragna Gestsdóttir
Mánudaginn 13. nóvember 2023 12:47

Grindavík

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Fjöldi Grindvíkinga er nú á leið til Grindavíkur þar sem Lögreglustjórinn á Suðurnesjum tók ákvörðun um að hleypa íbúum inn á skilgreint svæði í bænum til að sækja eigur af heimilum sínum. Síðar barst önnur tilkynning þar sem fleiri íbúum var gefin heimild ti að fara inn í bæinn. 

Sjá einnig: Uppfært Fleiri íbúar komast heim – Hluti Grindvíkinga fær að fara heim og sækja eigur sínar

Björgunarsveitin Þorbjörn sem starfar í Grindavík segir í færslu á Facebook að hópur á þeirra vegum hafi farið í bæinn í morgun til að meta tjón og undirbúa verðmætabjörgun. Segir þar að ljóst sé að gríðarlegt tjón er á bænum og verði íbúar að undirbúa sig undir það. Biður sveitin alla um að fara varlega, virða lokanir og virða þann tíma sem þeim er gefinn.

„Kæru íbúar,

Við björgunarsveitarfólk í Grindavík höfum sinnt okkar fjölskyldum eins og aðrir Grindvíkingar síðustu daga.

Snemma í morgun fór stór og vel útbúinn hópur frá okkur til Grindavíkur til þess að meta tjón á vegum og öðrum innviðum. Markmiðið er að undirbúa verðmætabjörgun frá heimilum og reyna eftir fremsta megni tryggja öryggi íbúa við það.

Ljóst er að gríðarlegt tjón er á bænum okkar og gott að fólk undirbúi sig undir það.

Tjónin eru samt misjöfn og virðast staðbundin við fyrstu skoðun. Vegir eru víða í sundur og höfum við lagt kapp á það að loka þeim svo ekki sé hætta af.

Við viljum biðja alla sem hingað koma að fara varlega og virða þær lokanir sem við höfum sett upp. Til þess að flýta fyrir opnun höfum við notast við garðbekki, blómapotta og fleira slíkt sem fundum og vonumst við til þess að fólk sýni því skilning. Við höfum einnig farið með vinnuvélar yfir allar sprungur og þær sprungur sem ekki er búið að loka fyrir teljum við óhætt að aka yfir.

Að lokum viljum við biðja íbúa að virða þann tíma sem þeim er gefin til að sækja verðmæti svo fleiri geti komist til síns heima.

Það væri gott ef þessi póstur myndi rata til allra Grindvíkinga.

Baráttukveðjur

Björgunarsveitin Þorbjörn.“

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

Fréttir
Fyrir 2 dögum

Svara Jóni fullum hálsi – „Ég kaus hann“

Svara Jóni fullum hálsi – „Ég kaus hann“
Fréttir
Fyrir 2 dögum

Úthúða Ara og vara Reykvíkinga við því að kjósa Miðflokkinn – „Hefur sýnt konum kvenfyrirlitningu bara frá því ég kynntist honum fyrst“

Úthúða Ara og vara Reykvíkinga við því að kjósa Miðflokkinn – „Hefur sýnt konum kvenfyrirlitningu bara frá því ég kynntist honum fyrst“
Fréttir
Fyrir 2 dögum

Krafðist þess að fá hlutdeild í séreign látins sambýlismanns á grundvelli erfðaskrár – Hæstiréttur hefur nú lagt línurnar

Krafðist þess að fá hlutdeild í séreign látins sambýlismanns á grundvelli erfðaskrár – Hæstiréttur hefur nú lagt línurnar
Fréttir
Fyrir 2 dögum

Ein helsta stjarna breskra stjórnmála sökuð um að taka málstað hryðjuverkamanns

Ein helsta stjarna breskra stjórnmála sökuð um að taka málstað hryðjuverkamanns