Dagbjört Elín Pálsdóttir, sjúkraliði og fyrrverandi bæjarfulltrúi á Akureyri, er látin aðeins 43 ára að aldri. Akureyri.net greinir frá andlátinu.
Dagbjört, sem var fædd þann 1. september 1980, varð bráðkvödd á heimili sínu aðfaranótt 18. október síðastliðinn.
Dagbjört gekk að eiga Jóhann Jónsson árið 2000 og eignuðust þau saman fjögur börn. Þau eru Margrét Birta (fædd 2000), Elín Alma (2001), Jón Páll (2005) og Hólmfríður Lilja (2009). Dagbjört og Jóhann skildu árið 2018. Eftirlifandi eiginmaður Dagbjartar er Þórarinn Magnússon. Þau giftust í desember árið 2020.
Dagbjört var sjúkraliði að mennt en hún sat í bæjarstjórn Akureyrar fyrir Samfylkinguna frá 2016 til 2019.
Hún starfaði til síðasta dags á Hjúkrunarheimilinu Lögmannshlíð.