Í gær birti Danska ríkisútvarpið (DR) umfjöllun um landsliðið og ræddi við Nikolaj Jacobsen, þjálfara heimsmeistara Dana, og leikmenn danska liðsins um mótið og hverjir séu líklegastir til afreka. Óhætt er að segja að Ísland sé ofarlega í huga þeirra.
Jacbosen sagðist sjá marga spennandi takta hjá íslenska liðinu. „Í þetta sinn höfum við „the usual suspects“ meðal þeirra sigurstranglegustu: Svíþjóð, Frakkland, Spán og Danmörku. Og síðan höfum við Ísland. Þetta eru þau fimm lönd sem eiga mestan möguleika á að sigra á HM,“ sagði hann og bætti síðan við:
„Það eru ekki mörg lönd sem hafa miðju eins og Ísland, þeir eru með góða hornamenn og svo er hinn mjög svo hæfileikaríki markmaður þeirra, Viktor Gísli Hallgrímsson, orðinn enn betri og stabílli. Þeir hafa einnig duglega og vinnusama línumenn, svo þeir hafa allt sem þarf til að ná langt. Þess vegna geta þeir einnig náð alla leið.“
Þessari skoðun deilir Mathias Gidsel, ein af stóru stjörnum heimsmeistaranna, með þjálfara sínum. Hann sagðist hissa á hversu fáir tali um Ísland sem lið sem eigi möguleika á heimsmeistaratitlinum: „Þetta er frábært lið í mjög góðu formi. Gísli Þorgeir Kristjánsson er hugsanlega heitasti leikmaðurinn í heiminum í dag. Þetta er mjög, mjög gott lið og það verður óþægilegt fyrir marga.“
Varnarjaxlinn Henrik Møllgaard sagðist varla geta beðið eftir að sjá Ísland spila sinn fyrsta leik: „Þetta er svo sannarlega það lið sem ég hlakka mest til að sjá á HM. Þeir voru virkilega spennandi áður en kórónuveiran eyðilagði EM fyrir þeim á síðasta ári. Ég hlakka virkilega til að sjá þá á þessu ári. Þeir, sem eiga að draga vagninn fyrir Ísland, það eru allra, allra bestu handboltahausarnir.“
Lasse Møller hafði einnig bara jákvæða hluti að segja um liðið: „Þeir hafa hæfileikann til að setja eitthvað saman sem ég veit ekki hvernig þú átt að geta tekist á við. Það eru engir veikleikar í þessu liði. Spurningin er bara hvort þeir halda þetta út alla leið því hópurinn er lítill. En það eru nokkrir farnir að koma upp sem geta stutt við þá, svo ég hlakka mjög til að fylgjast með þeim. Þeir geta allt. Svo þekkja íslensku leikmennirnir svo vel til hvers annars.“