fbpx
Föstudagur 26.apríl 2024
Fréttir

Flutningar á umdeildri malbikunarstöð borgarinnar til Hafnarfjarðar hafinn – Kanna möguleika á sölu

Ágúst Borgþór Sverrisson
Fimmtudaginn 20. janúar 2022 18:00

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Reykajvíkurborg kannar nú möguleika á því að selja malbikunarstöð í eigu sinni, Höfða hf. Athygli vakti – og deilur – er fréttist að samið hefið verið um flutning stöðvarinnar til Hafnarfjarðar þar sem borgin hefur keypt land undir stöðina. Hefur það mælst illa fyrir meðal stórnmálamanna og íbúa í Hafnarfirði.

Í tilkynningu frá borginni um málið í dag kemur jafnframt fram að flutningur malbikunarstöðvarinnar til Hafnarfjarðar er hafinn:

„Borgarráð samþykkti í dag að fjármála- og áhættustýringarsviði yrði falið að meta kosti þess og galla að selja Malbikunarstöðina Höfða hf. og að leitað yrði til óháðra ráðgjafa vegna verkefnisins. Þá var staðfest samkomulag Reykjavíkurborgar við malbikunarstöðina um brottflutning hennar frá Sævarhöfða 6-10 í Reykjavík.

Malbikunarstöðin Höfði hf. hefur haft afnot af lóðinni við Sævarhöfða 6-10 á grundvelli óskráðs ótímabundins afnotasamnings við Reykjavíkurborg. Borgin og malbikunarstöðin hafa nú gert með sér samkomulag um brottflutning malbikunarstöðvarinnar vegna fyrirhugaðrar uppbyggingar á nýju 20 þúsund manna hverfi á Ártúnshöfða og við Elliðaárvog, þar sem gert er ráð fyrir blandaðri byggð með íbúðum og léttri þjónustustarfsemi.

Hefur Malbikunarstöðin Höfði hf. keypt lóð á iðnaðarsvæði við Álfhellu í Hafnarfirði fyrir starfsemi sína og er flutningur þegar hafinn. Samkvæmt meirihlutasáttmála núverandi borgarstjórnarmeirihluta var lögð áhersla á að leggja Malbikunarstöðinni Höfða fyrst til nýja lóð og kanna í kjölfarið kosti og galla þess að selja fyrirtækið.“

Pawel Bartoszek, borgarfulltrúi Viðreisnar, fagnar áformum um sölu malbikunarstöðarinnar í Faceook-færslu í dag. Segist hann vera þeirrar skoðunar að hið opinbera eigi ekki að standa í samkeppnisrekstri:

„Borgarráð samþykkti rétt áðan að láta ytri ráðgjafa skoða kosti og galla þessa að selja Malbikunarstöðina Höfða. Ég hef lengi verið þeirrar skoðunar að hið opinbera ætti ekki að standa í samkeppnisrekstri. Viðreisn setti málið á dagskrá fyrir seinustu kosningar, það rataði í meirihlutasáttmála og það er mjög ánægjulegt að sjá það vera komið á næsta stig. Spennandi tímar!“

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

Fréttir
Í gær

Spáir ekki dropa úr lofti í Reykjavík fyrr en í maí – Sumarið lítur sérstaklega vel út

Spáir ekki dropa úr lofti í Reykjavík fyrr en í maí – Sumarið lítur sérstaklega vel út
Fréttir
Í gær

Stofna góðgerðarfélag til minningar um Þuríði Örnu – Blásið til tónleikaveislu 1. maí

Stofna góðgerðarfélag til minningar um Þuríði Örnu – Blásið til tónleikaveislu 1. maí
Fréttir
Fyrir 2 dögum

Manndrápsmálið á Suðurlandi – Hinn látni sagður hafa hringt í kærustu sína skömmu fyrir andlátið og sagst hafa fallið úr stiga

Manndrápsmálið á Suðurlandi – Hinn látni sagður hafa hringt í kærustu sína skömmu fyrir andlátið og sagst hafa fallið úr stiga
Fréttir
Fyrir 2 dögum

Snorri furðar sig á Byggðastofnun – Sagður gera lítið úr þeim sem ekki tala íslensku

Snorri furðar sig á Byggðastofnun – Sagður gera lítið úr þeim sem ekki tala íslensku
Fréttir
Fyrir 2 dögum

Íbúar brjálaðir út í Hafnarfjarðarbæ: „Þetta er til háborinnar skammar og engin lausn“

Íbúar brjálaðir út í Hafnarfjarðarbæ: „Þetta er til háborinnar skammar og engin lausn“
Fréttir
Fyrir 2 dögum

Réðst á dreng sem ætlaði að gera dyraat

Réðst á dreng sem ætlaði að gera dyraat