Á mánudaginn fagna Rússar sigrinum yfir Þjóðverjum í síðari heimsstyrjöldinni en þetta er einn stærsti hátíðisdagurinn þar í landi. Stjórnmálaskýrendur og sérfræðingar bíða margir hverjir spenntir eftir ræðu Pútíns á mánudaginn og hvort hann muni nota tækifærið til að lýsa yfir stríði þar sem hernaður Rússa í Úkraínu hefur ekki gengið eins og þeir stefndu að. Hernaðaraðgerð sem átti aðeins að standa í nokkra daga hefur nú staðið vel á þriðja mánuð án þess að Rússar hafi náð markmiðum sínum.
CNN segir að bandarískar og breskar leyniþjónustustofnanir telji nú sífellt líklegra að Pútín lýsi yfir stríði. Það gerist í ljósi vaxandi vandamála þeirra hvað varðar hernaðinn í Úkraínu.
Ben Wallace, varnarmálaráðherra Bretlands, sagði nýlega á útvarpsstöðinni LBC að hann telji að Pútín muni lýsa yfir stríði. Hann sé búinn að leggja grunninn að því að geta sagt „sjáið nú til, þetta er stríð gegn nasistum og það sem ég hef þörf fyrir, er fleira fólk. Ég hef þörf fyrir rússneskt fallbyssufóður“. Þarna vísaði hann til vilja Pútíns um að „afnasistavæða“ Úkraínu þar sem forsetinn er gyðingur.
CNN hefur eftir ónafngreindum embættismönnum hjá bandaríska varnarmálaráðuneytinu að stríðsyfirlýsing muni væntanlega auka stuðning almennings við innrásina og muni um leið gera Pútín kleift að kalla varaliðshermenn til starfa sem og senda þá sem gegna herskyldu til Úkraínu en Rússa bráðvantar hermenn þar því mannfall þeirra hefur verið mjög mikið.
Um 280.000 bardagafærir hermenn eru í rússneska hernum. Þar af er talið að 65% þeirra séu í Úkraínu. Breska varnarmálaráðuneytið telur að fjórðungur rússnesku hersveitanna sé ekki lengur bardagafær eftir hrakfarirnar í Úkraínu.
The Independent hefur eftir heimildarmönnum, sem standa nærri æðstu yfirmönnum rússneska hersins, að háttsettir embættismenn hafi grátbeðið Pútín um að lýsa yfir stríði til að hægt sé að hefna fyrir hrakfarir rússneska hersins.