fbpx
Föstudagur 26.apríl 2024
Fréttir

Lögreglan heimsótti Covid-smitaða Möggu Frikka og sakaði hana um að hanga í sameigninni – „Skammist ykkar segi ég bara“

Ritstjórn DV
Föstudaginn 14. janúar 2022 20:00

Margrét Friðriksdóttir

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Baráttukonan Margrét Friðriksdóttir losnar úr einangrun á morgun, laugardag, eftir að glímt við Covid-19 sjúkdóminn í rúma viku. Eins og DV greindi frá á dögunum náði Margrét loks að smitast af veirunni skæðu eftir að gert allt sem í hennar valdi stóð til að ná því fram. Meðal annars að drekka úr sama glasi og smituð dóttir sín og láta hana anda á sig.

Sjá einnig: Magga Frikka reyndi að smitast af Covid-19 en ekkert gekk

Sigrihrósandi hefur Margrét síðan tekist á við kórónuveirurnar með dyggri aðstoð ormalyfsins Ivermection sem hún á gnótt af og hefur skaffað ástvinum og öðrum sjúklingum einnig. Á Facebook-síðu sinni segir Margrét að hún hafi ekki heyrt múkk frá Covid-teymi yfirvalda á meðan veikindunum hefur staðið en í dag hafi hún fengið óvænta heimsókn.

Sjá einnig: Margrét gefur dætrum sínum ormalyfið Ivermectin

„Lögreglan bankaði upp á hjá mér áðan og spurði hvort ég væri að hanga í sameigninni,“ skrifar Margrét hneyksluð.

Heimsóknin hafi komið á versta tíma því að jarðaför ömmu Margrétar fór fram í morgun og gat hún eðli málsins ekki verið viðstödd athöfnina.

„Í alvöru Almannavarnir er ekki allt í lagi, nei greinilega ekki, ég losna úr einangrun á morgun og er þetta eina sem þið hafið að segja, spyrja mig hvort ég sé að leika mér á göngunum eins og smákrakki og komuð klukkutíma eftir að amma mín var jarðsungin, skammist ykkar segi ég bara,“ skrifar Margrét ósátt.

Færsla Margrétar:

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

Fréttir
Í gær

Spáir ekki dropa úr lofti í Reykjavík fyrr en í maí – Sumarið lítur sérstaklega vel út

Spáir ekki dropa úr lofti í Reykjavík fyrr en í maí – Sumarið lítur sérstaklega vel út
Fréttir
Í gær

Stofna góðgerðarfélag til minningar um Þuríði Örnu – Blásið til tónleikaveislu 1. maí

Stofna góðgerðarfélag til minningar um Þuríði Örnu – Blásið til tónleikaveislu 1. maí
Fréttir
Fyrir 2 dögum

Manndrápsmálið á Suðurlandi – Hinn látni sagður hafa hringt í kærustu sína skömmu fyrir andlátið og sagst hafa fallið úr stiga

Manndrápsmálið á Suðurlandi – Hinn látni sagður hafa hringt í kærustu sína skömmu fyrir andlátið og sagst hafa fallið úr stiga
Fréttir
Fyrir 2 dögum

Snorri furðar sig á Byggðastofnun – Sagður gera lítið úr þeim sem ekki tala íslensku

Snorri furðar sig á Byggðastofnun – Sagður gera lítið úr þeim sem ekki tala íslensku
Fréttir
Fyrir 2 dögum

Íbúar brjálaðir út í Hafnarfjarðarbæ: „Þetta er til háborinnar skammar og engin lausn“

Íbúar brjálaðir út í Hafnarfjarðarbæ: „Þetta er til háborinnar skammar og engin lausn“
Fréttir
Fyrir 2 dögum

Réðst á dreng sem ætlaði að gera dyraat

Réðst á dreng sem ætlaði að gera dyraat