fbpx
Föstudagur 26.apríl 2024
Fréttir

Sölvi tjáir sig um rætnar slúðursögur um ofbeldi gegn vændiskonu – Leitaði niðurbrotinn og svefnlaus til lögmanns

Heimir Hannesson
Mánudaginn 3. maí 2021 15:06

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Sölvi Tryggvason segir rætnar kjaftasögur um að hann hafi verið handtekinn fyrir að ráðast á vændiskonu enga stoð eiga sér í raunveruleikanum. Þetta kemur fram í Instagram færslu Sölva nú rétt í þessu.

„Síðustu daga hafa gengið ótrúlega rætnar slúðursögur um mig í þjóðfélaginu sem eiga sér enga stoð í raunveruleikanum,“ skrifar Sölvi.

Þetta gekk meira að segja svo langt að einn fjölmiðill birti frétt um slúðursöguna án þess þó að nafngreina mig. Í frétt fjölmiðilsins kom fram að fyrri um tveimur vikum hefði þjóðþekktur einstaklingur, sem samkvæmt sögunni er ég, keypt sér kynlífsþjónustu, gengið í skrokk á vændiskonunni, verið handtekinn og fluttur í varðhald. Um þetta er bara eitt að segja, málið er þvættingur frá upphafi til enda.

Vísar Sölvi þarna í frétt Mannlífs um málið um helgina.

Þess má geta að DV hefur síðan í apríl kannað hvort sannleikur væri að baki sögusagnanna sem Sölvi gerir nú að umfjöllunarefni sínu, en án árangurs. Ræddi DV meðal annars við meintan þolanda Sölva, sem kannaðist ekki við málið og harðneitaði að tjá sig við fjölmiðla.

Sölvi skrifar:

Ég get ekki sagt ykkur hvað þessar sögur hafa haft mikil áhrif á mig, fjölskyldu mína og vini. Ég hef verið sem lamaður síðustu daga og neitaði lengi vel að trúa að fólk tæki þátt í að dreifa slúðursögum sem þessum. Frá því um helgina hefur síminn minn ekki stoppað vegna fyrirspurna frá fjölmiðlum um hvort að þessar sögur séu sannar. Þegar málið er komið á það stig verð ég að bregðast við. Niðurbrotinn og svefnlaus leitaði ég í gær til Sögu Ýr Jónsdóttur hæstaréttarlögmanns til að athuga stöðu mína og hvernig ég ætti að bregðast við.

Sölvi segir málaskrá sína autt blað og birtir afrit af henni með því til sönnunar. Það passar við athugun DV, en samkvæmt upplýsingum lögreglu passaði engin handtaka við „upplýsingarnar“ í kjaftasögunum.

Áfram skrifar Sölvi:

Hún sagði mér að auðvelt væri að afsanna þetta með því að kalla inn málaskrá mína hjá lögreglu undanfarin mánuð, þar sem ljóst væri að lögreglan hefði haft einhver afskipti af mér, beint eða óbeint, þá kæmi þau fram í málaskránni. Saga kallaði því eftir málaskránni og fengum við hana afhenta fyrir stundu og birti ég hana hér með. Eins og þarna kemur skýrt fram hefur lögreglan ekki haft nein afskipti af mér, bein eða óbein, á þeim tíma sem þessi atvik eiga að hafa átt sér stað. Þetta verður ekki skýrara. Það er ekkert til í þessum slúðursögum.

Ég óska engum að lenda í þeirri hakkavél sem slúðursögur eru. Þær eru mannskemmandi, niðurbrjótandi og hafa valdið mér og mínum meira hugarangri en ég hefði getað ímyndað mér. Ég verð alltaf jafn undrandi á því að fólk sé til í að tala illa um náungann; fólk af holdi og blóði með tilfinningar og fjölskyldu. Hættum þessu. 

„Raunar líður mér svo illa að ég treysti mér ekki til að tjá mig um málið og bið ég fjölmiðla um að virða þá ósk mína,“ skrifar hann þá að lokum.

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

Fréttir
Fyrir 13 klukkutímum

Yfirmaður úkraínsku leyniþjónustunnar er með áætlun tilbúna til að mæta yfirvofandi stórsókn Rússa

Yfirmaður úkraínsku leyniþjónustunnar er með áætlun tilbúna til að mæta yfirvofandi stórsókn Rússa
Fréttir
Fyrir 23 klukkutímum

Grænkerar harma auglýsingar forsetaframbjóðenda – „Borða pulsur úr gösuðum þjáðum svínum“

Grænkerar harma auglýsingar forsetaframbjóðenda – „Borða pulsur úr gösuðum þjáðum svínum“
Fréttir
Í gær

Sendiherra Trump á Íslandi þykist vera kúreki í kosningabaráttu sinni – „Það er ekki hægt að skálda þetta“

Sendiherra Trump á Íslandi þykist vera kúreki í kosningabaráttu sinni – „Það er ekki hægt að skálda þetta“
Fréttir
Í gær

Svívirðileg brot gegn sjö ára stjúpdóttur

Svívirðileg brot gegn sjö ára stjúpdóttur
Fréttir
Fyrir 2 dögum

Móðirin í Kópavogi ákærð fyrir að reyna að drepa eldri soninn líka

Móðirin í Kópavogi ákærð fyrir að reyna að drepa eldri soninn líka
Fréttir
Fyrir 2 dögum

Björn Leví: Þess vegna telja Píratar að ekki sé hægt að vinna með Sjálfstæðisflokknum

Björn Leví: Þess vegna telja Píratar að ekki sé hægt að vinna með Sjálfstæðisflokknum