fbpx
Þriðjudagur 03.mars 2026
Fréttir

Konný var tilkynnt til barnaverndar eftir að hafa leitað ráða á Mæðratips

Ágúst Borgþór Sverrisson
Þriðjudaginn 12. janúar 2021 21:25

Konný Erla Erlingsdóttir. Mynd: Facebook

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Rétt fyrir áramót birti ung móðir og eiginkona, Konný Erla Erlingsdóttir, færslu í Facebook-hópnum Mæðratips þar sem hún óskaði eftir ráðum við þrálátu exemi ungs sonar síns. Drengurinn hafði þá verið á sýklalyfjum í meira en mánuð og Konný hafði prófað þrjár tegundir af sterakremi við ofnæminu en án árangurs. Drengurinn hefur þjáðst af exeminu síðan í mars á síðasta ári.

Með færslunni birti Konný myndir af ofnæmissárum drengsins en á myndunum sást ekki framan í hann og aðeins hluti líkama hans. Meginmyndefnið var exemið sjálft.

Í Mæðratips-hópnum fá konur oft afar góð ráð og sú varð raunin í þetta skipti. Kona í hópnum setti Konný í samband við smitsjúkdómalækni barna á höfuðborgarsvæðinu, en Konný býr ásamt eiginmanni sínum og tveimur ungum börnum, í litlu þorpi á suðausturlandi. Þau eiga tvö ung börn, dreng og stúlku. Konný er á 22. ári.

Þetta var gæfuspor eins og Konný segir frá í samtali við DV: „Þetta gengur mjög vel og hann er farinn að skána alveg helling. Við fórum á bráðamóttökuna því barnasmitsjúkdómalæknir vildi að við færum þangað,“ segir Konný en þangað var farið með barnið á nýársdag. Fékk drengurinn heppilegt sterakrem sem hefur dugað honum vel.

Barnaverndarnefnd hringir

Það gerðist síðan í dag að starfskona frá barnavernd hringdi í Konný þar sem tilkynning barst vegna myndbirtinganna í Mæðratips. Segir Konný að konan hafi verið kurteis en sagt að hún yrði að skrá atvikið. Hún spurði jafnframt hvernig drengurinn hefði það.

„Við vorum alveg í rusli,“ segir Konný en símtalið var vægast sagt óvænt og mikið áfall.  „Mér finnst afskaplega leiðinlegt að maður geti ekki mátað sig við fólk án þess að fá einhvern skít í andlitið,“ segir Konný og á þar við að hún hafi birt fyrirspurnina og myndirnar til þess að kanna hvort aðrar mæður í hópnum könnuðust við exem af þessu tagi og vissu hvernig best væri að bregðast við.

Konný segir að í símtalinu hafi ekki verið boðuð heimsókn eða annað eftirlit frá barnavernd vegna málsins en hún segist alveg eins eiga von á fleiri símtölum.

Konný segir svo frá málinu í Mæðratips í kvöld:

Góða kvöldið,

Ég vil byrja á að þakka þeirri sem setti mig í samband við smitsjúkdómalækni barna. Við fengum símtal frá honum og fórum strax suður í kjölfarið.

Nú er ekki langt síðan ég póstaði myndum af syni mínum með það í huga að fá ráð hjá ykkur kæru mæðrum með exemið hjá honum og sjá hvort aðrir hefðu upplifað það sama með sín börn.

Þetta er búið að vera í vinnslu síðan í mars, við erum búin að ganga á milli lækna og prufa ýmislegt og hefur það lítinn árangur borið.

Nú vill svo til að við höfum verið tilkynnt til Barnaverndar vegna þessa pósts, það er sorglegt að vita til þess að hér sé ekki hægt að leita ráða eða fá aðrar upplifanir án þess að eiga það á hættu að vera tilkynntur til Barnaverndanefndar en fólk ætti alls ekki að tilkynna fólk til Barnaverndarnefndar að óathuguðu máli.

 

 

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

Fréttir
Fyrir 12 klukkutímum

Knútur frá deCODE til Syndis

Knútur frá deCODE til Syndis
Fréttir
Fyrir 12 klukkutímum

Kona föst í víti frelsissviptinga, nauðgana og misþyrminga

Kona föst í víti frelsissviptinga, nauðgana og misþyrminga
Fréttir
Fyrir 15 klukkutímum

Undarleg sjálfsvígsalda erlendra karla á Pattaya – „Borgin tyggur fólk og spýtir því út auralausu“

Undarleg sjálfsvígsalda erlendra karla á Pattaya – „Borgin tyggur fólk og spýtir því út auralausu“
Fréttir
Fyrir 16 klukkutímum

Von á hríðarveðri á suðvesturhorninu í dag

Von á hríðarveðri á suðvesturhorninu í dag
Fréttir
Í gær

Heitt í kolunum á Litla Hrauni – Kristleifur sló samfanga sinn í gólfið

Heitt í kolunum á Litla Hrauni – Kristleifur sló samfanga sinn í gólfið
Fréttir
Í gær

Bróðir Margrétar Löf rýfur þögnina – „Þú átt ekki að geta myrt einhvern og tekið svo arf eftir hann“

Bróðir Margrétar Löf rýfur þögnina – „Þú átt ekki að geta myrt einhvern og tekið svo arf eftir hann“
Fréttir
Í gær

Sérfræðingur hefur áhyggjur af innrásinni í Íran – „Útilokað að knýja fram stjórnarskipti með loftárásum“

Sérfræðingur hefur áhyggjur af innrásinni í Íran – „Útilokað að knýja fram stjórnarskipti með loftárásum“
Fréttir
Í gær

Margir minnast Davíðs – „Hann markaði djúp spor í íslenskt samfélag“

Margir minnast Davíðs – „Hann markaði djúp spor í íslenskt samfélag“