fbpx
Þriðjudagur 17.júní 2025
Fréttir

Einar krefst þess að barnaverndarnefnd segi af sér og vonast til að hún fari í meiðyrðamál við sig

Ágúst Borgþór Sverrisson
Laugardaginn 13. febrúar 2021 08:55

Einar Gautur Steingrímsson. Mynd: Lausnir lögmannsstofa

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Einar Gautur Steingrímsson lögmaður krefst þess að Barnaverndarnefnd Reykjavíkur segi af sér. Þetta gerir lögmaðurinn í einfaldri yfirlýsingu á Facebook-síðu sinni: „Barnaverndarnefnd Reykjavíkur verður að segja af sér.“

Tilefnið er mál sem fjallað var um á Vísir.is í fyrradag, en þar kemur fram að starfsmenn Barnaverndar Reykjavíkur og Barnaverndarnefndar Reykjavíkur hafa verið kærðir til lögreglu vegna meintra lyga um móður í erfiðleikum.

Í kærunni segir lögmaður konunnar að rangt sé farið með staðreyndir um hegðun konunnar í stefnu að forsjársviptingarmáli gegn henni. Í gögnum með stefnunni sé því ranglega haldið fram að hún hafi mætt illa í boðuð viðtöl, takmarkað nýtt sér stuðning og ekki sinnt boðuðu eftirliti. Segir í kærunni að hún hafi þvert á móti mætt í næstum öll boðuð viðtöl og hún hafi sinnt stuðningsúrræðum vel.

Sagt er að viðhorf Barnaverndarnefndar Reykjavíkur til konunnar hafi breyst til hins verra í kjölfar þess að hún féll einu sinni á vímuefnaprófi og að nýr starfsmaður hjá nefndinni tók við máli hennar í desember 2019.  Þvert gegn því sem stendur í gögnum barnaverndarnefndarinnar um frammistöðu konunnar hafi hún mætt í 21 vímuefnapróf frá því í janúar 2020 og hafi nánast alltaf skilað hreinu prófi.

Í kærunni segir, skv. frétt Vísis:

„Í úrskurðum barnaverndarnefndar og greinargerðum starfsmanna embættisins virðist afbökun á staðreyndum og raklaus ósannindi vera notuð kerfisbundið til að varpa rýrð á kæranda og í þeim tilgangi að svipta hana börnum hennar. Að slíkt sé framið endurtekið, ítrekað, af hálfu opinberra starfsmanna, í þeim tilgangi að slíta sundur móður og börn, er grafalvarlegt og skv. alm. hgl. glæpsamlegt. Það þarf ekki að útskýra mannréttindabrotin, sem í þessu felast einnig. Öll gögn sem sanna þessa glæpi eru lögð fram með kærunni. Hæstiréttur hefur litið mun vægari glæpi opinberra starfsmanna, mjög alvarlegum augum. Hafa verður í huga, hversu ríkt og mikilvægt verndarandlag er hér um að ræða, börn kæranda og friðhelgi einkalífs og fjölskyldu.

Er þess krafist, að þeir sem bera ábyrgð á framangreindum brotum, verði látnir sæta ábyrgð.“

„Mér varð í alvöru ómótt“

Einar Gautur lögmaður skýrir frekar afstöðu sína í ummælum undir færslu sinni á Facebook. Hann segir að sér hafi orðið ómótt við að sjá það sem hann kallar lögleysu, valdníðslu og lygar gagnvart konunni. Þá segist hann vonast til þess að Barnaverndarnefnd Reykjavíkur fari í meiðyrðamál við sig vegna þessara ummæla en hann gerir sér litlar vonir um að svo verði:

„Ég hef séð til þeirra þvílíka lögleysu, valdníðslu og lygar að þeir verða að hætta. Þá hef ég í huga málið hér neðar á síðu minni. Þetta fólk verður að fara frá. Mér varð í alvöru ómótt þegar ég sá hvernig menn höguðu sér. Það á að taka á þessu núna en ekki eftir 30 ár eins og hefur tíðkast. Vonandi fara þeir í meiðyrðamál við mig svo hægt sé að rétta um fullyrðingar mínar. Hef enga trú á því að þeir leggi í þá vegferð, því miður.“

 

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

Snúa sér að Sancho
Fréttir
Fyrir 2 dögum

Egill tjáir sig um áformin umdeildu – „Hún er algjörlega forljót“

Egill tjáir sig um áformin umdeildu – „Hún er algjörlega forljót“
Fréttir
Fyrir 2 dögum

Sálfræðingur sem fékk ekki starfsleyfi á Íslandi fór aftur í sálfræðinám en það dugði ekki til

Sálfræðingur sem fékk ekki starfsleyfi á Íslandi fór aftur í sálfræðinám en það dugði ekki til