fbpx
Föstudagur 26.apríl 2024
Fréttir

Namibíumál Samherja komið á hljóðbók

Ágúst Borgþór Sverrisson
Föstudaginn 11. september 2020 20:10

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Skömmu eftir hinn fræga Kveiksþátt á RÚV, og samsvarandi umfjöllun Stundarinnar, um málefni Samherja í Namibíu, þar sem meðal annars var fjallað um meintar mútugreiðslur fyrirtækisins fyrir hrossamakrílkvóta, gáfu rannsóknarblaðamennirnir sem stóðu að umfjölluninni út bókina Ekkert að fela – Á slóð Samherja í Namibíu. 

Bókin er nú komin út sem hljóðbók hjá Storytel.

Í kynningartexta segir:

„Haustið 2018 fengu blaðamennirnir Helgi Seljan, Aðalsteinn Kjartansson og Stefán Aðalsteinn Drengsson aðgang að umfangsmiklu gagnasafni sem afhent hafði verið samtökunum WikiLeaks og ljóstraði upp um vafasöm vinnubrögð útgerðarfyrirtækisins Samherja við Afríkustrendur. Gögnin sýna hvernig fyrirtækið nýtti sér þá velvild sem þróunaraðstoð Íslendinga í Namibíu hafði skapað til að komast í sambönd við valdamikla stjórnmála- og embættismenn þar í landi, hvernig sami fámenni valdakjarni hleypti Samherja fremst í biðröð eftir verðmætum veiðikvóta og hvernig Samherji launaði það ríkulega.

Uppljóstrarinn, Jóhannes Stefánsson, hafði sjálfur tekið þátt í að byggja upp útgerð Samherja í Namibíu en honum ofbauð þegar hann sá að loforð fyrirtækisins um uppbyggingu innviða þar yrðu aldrei efnd. Þvert á móti var allra leiða leitað til að skilja sem minnsta fjármuni eftir í landinu, þar á meðal voru notaðar flóknar viðskiptafléttur gegnum alþekkt skattaskjól. Í því ljósi er ekki að undra að mikil leynd hvíli yfir umsvifum Samherja í Afríku þrátt fyrir að forsvarsmenn fyrirtækisins hafi sagt opinberlega að þeir hafi ekkert að fela.

Mánuðum saman hefur teymi blaðamanna rýnt í gögnin og raðað saman þeirri sögu sem hér er sögð. Hún birtist einnig í þáttum á RÚV og Al Jazeera, og í Stundinni, auk þess sem efnið sem rannsóknin byggist á verður allt birt á vef WikiLeaks. Gríðarmikil rannsóknarvinna liggur því að baki verkefninu og niðurstöðurnar eru sláandi.

Helgi Seljan, Aðalsteinn Kjartansson og Stefán Aðalsteinn Drengsson hafa allir áralanga reynslu af fréttavinnslu og rannsóknarblaðamennsku. Meðal mála sem þeir hafa fjallað um, ýmist saman eða í samvinnu við aðra, eru Panamaskjölin, Glitnisskjölin, afhjúpun vinnumansals á Íslandi og brottkast í íslenskum sjávarútvegi.

Höfundar afsala sér öllum greiðslum vegna útgáfunnar og stefnt skal að því að höfundarlaun renni til hjálparstofnunar eða mannúðarsamtaka sem beita sér í Afríku.“

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

Fréttir
Í gær

Móðirin í Kópavogi ákærð fyrir að reyna að drepa eldri soninn líka

Móðirin í Kópavogi ákærð fyrir að reyna að drepa eldri soninn líka
Fréttir
Í gær

Björn Leví: Þess vegna telja Píratar að ekki sé hægt að vinna með Sjálfstæðisflokknum

Björn Leví: Þess vegna telja Píratar að ekki sé hægt að vinna með Sjálfstæðisflokknum
Fréttir
Fyrir 2 dögum

dk hugbúnaður flytur í nýjar höfuðstöðvar og kynnir nýtt vörumerki

dk hugbúnaður flytur í nýjar höfuðstöðvar og kynnir nýtt vörumerki
Fréttir
Fyrir 2 dögum

Ljósmyndaði nakinn mann í búningsklefa – Braut gróflega gegn kynferðislegri friðhelgi

Ljósmyndaði nakinn mann í búningsklefa – Braut gróflega gegn kynferðislegri friðhelgi