fbpx
Sunnudagur 07.júní 2026
Fréttir

500 til 600 hermenn hér á landi næstu vikurnar

Kristján Kristjánsson
Fimmtudaginn 22. október 2020 08:00

Bandarísk herflugvél á Keflavíkurflugvelli. Ljósmynd: DV/Hanna

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Reiknað er með að 500 til 600 bandarískir og kanadískir hermenn verði hér á landi næstu vikurnar. Um tvo hópa er að ræða, annars vegar 250 manna hóp frá bandaríska flughernum, sem kom hingað til lands í byrjun mánaðarins vegna loftrýmisgæslu Atlantshafsbandalagsins, og 300 manna hóp frá kanadíska flughernum sem sinnir kafbátaeftirliti.

Fréttablaðið skýrir frá þessu í dag. Haft er eftir Ásgeiri Erlendssyni, upplýsingafulltrúa Landhelgisgæslunnar, að vegna strangari sóttvarnarreglna en venjulega séu svo margir hermenn hér á landi í einu. Auk þess að fara í skimun á landamærunum fara allir hermennirnir í tveggja vikna vinnusóttkví.

„Þeir fara einnig í fjórtán daga sóttkví í sínu heimalandi áður en þeir koma til landsins. Nú standa yfir áhafnaskipti. Af þeim sökum eru tvöfaldar áhafnir á staðnum tímabundið, en skiptin taka þrjár til fjórar vikur vegna farsóttarinnar og krafna um sóttkví liðsmanna,“

er haft eftir Ásgeiri sem sagði að engin tengsl væru á milli fyrrgreindra verkefna og að tilviljun hafi ráðið því að þau hafi komið til framkvæmda á sama tíma.

„Áhafnaskiptin taka óvenjulangan tíma að þessu sinni vegna kórónaveirufaraldursins en venjulega taka þau nokkra daga,“

sagði hann.

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

Fréttir
Fyrir 2 dögum

Réttarhöld framundan í Edition-málinu – Sökuð um að hafa brugðið snöru um háls dóttur sinnar og stungið hana í hjartað

Réttarhöld framundan í Edition-málinu – Sökuð um að hafa brugðið snöru um háls dóttur sinnar og stungið hana í hjartað
Fréttir
Fyrir 2 dögum

Dagur varpar ljósi á algenga mýtu í ESB-umræðunni: „Hlustum ekki á hræðsluáróður“

Dagur varpar ljósi á algenga mýtu í ESB-umræðunni: „Hlustum ekki á hræðsluáróður“
Fréttir
Fyrir 2 dögum

Ósáttur við heilbrigðiseftirlitið, lögregluna og sýslumann – Hafi eyðilagt viðburð

Ósáttur við heilbrigðiseftirlitið, lögregluna og sýslumann – Hafi eyðilagt viðburð
Fréttir
Fyrir 2 dögum

Pútín segir að aðeins tveir möguleikar séu í stöðunni í Úkraínu

Pútín segir að aðeins tveir möguleikar séu í stöðunni í Úkraínu
Fréttir
Fyrir 3 dögum

Gagnrýnir gagnrýni Snorra – „Gerið betur en gervigreind kæra stjórnarandstaða. Lygarnar eru allar ykkar megin“

Gagnrýnir gagnrýni Snorra – „Gerið betur en gervigreind kæra stjórnarandstaða. Lygarnar eru allar ykkar megin“
Fréttir
Fyrir 3 dögum

Sætti sig ekki við að missa ökuskírteinið – Afleiðingarnar voru skelfilegar

Sætti sig ekki við að missa ökuskírteinið – Afleiðingarnar voru skelfilegar