fbpx
Föstudagur 26.apríl 2024
Fréttir

Hulunni svipt af dularfullu auglýsingunni

Erla Dóra Magnúsdóttir
Fimmtudaginn 15. október 2020 08:08

skjáskot/39.is

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Undanfarið hefur dularfull auglýsing vakið nokkra athygli. Auglýsingin er einföld í sniðum og sýnir töluna 39 á appelsínugulum bakgrunn, en engan frekari texta er að finna og óljóst hvað talan 39 stendur fyrir.

Nú hefur hulunni verið svipt af auglýsingunni. Talan 39 stendur fyrir þau sjálfsvíg sem áttu sér stað á Íslandi árið 2019. Auglýsingin er á vegum Geðhjálpar, en nýtt blað Geðhjálpar kemur einmitt út í dag.

Í fréttatilkynningu segir:

Sjálfsvíg eru einn af mælikvörðum geðheilsu í samfélaginu á hverjum tíma. Þau eru endapunktur og óafturkræf. Árið 2019 tóku 39 Íslendingar líf sitt. Tilgangurinn með því að birta tölu sjálfsvíga á Íslandi á síðasta ári er fyrst og fremst að beina sjónum að orsakaþáttum geðheilbrigðis. Þannig má auka umræðu um geðheilsu og orsakaþætti hennar og þannig stuðla að framförum. Sjálfsvíg eru staðreynd sem samfélög þurfa að lifa með en þeim á ekki að fylgja skömm og/eða afneitun. Skynsamlegra er að horfast í augu við þau, viðurkennum en reynum jafnframt að koma í veg fyrir þau og draga úr tíðni þeirra. Leiðin til þess er að bæta og rækta geðheilsu þjóðarinnar og gefa henni gaum.

Enn fremur segir í tilkynningu að áhersla samfélagsins í málefnum geðheilbrigðis hafi um langa hrýð miðast að einkennum, meðferð og endurhæfingu á vanda sem þegar er kominn upp í staðinn fyrir að horfa til orsakaþátta.

Þetta er það sem við köllum að vera fyrir neðan fossinn. Fyrir neðan fossinn fer fram meðferð og endurhæfing á einkennum. Þar er vissulega víða pottur brotinn. Þar þarf að skoða hugmyndafræði, þvinganir og nauðung, fábreyttar aðferðir við meðferð, vannýtta heilsugæslu, mikla starfsmannaveltu, vond kjör starfsmanna, takmarkaða aðkomu notenda og aðstandenda, heftan aðgang að sálfræðimeðferð, einhæfni í nálgun sálfræðinga, gamaldags nálgun í aðstandendavinnu, takmörkuð búsetuúrræði, skort á virkniúrræðum og húsakost geðþjónustu á Íslandi.

Því er skorað á Íslendinga að standa saman og setja geðheilsu í forgang í samfélaginu.

Við búum öll við geðheilsu og á lífsleiðinni göngum við öll í gegnum eitthvað sem hefur áhrif á hana. Nú finnum við á eigin skinni og sjáum það á fólkinu í kringum okkur hvað einangrun, óvissa og breytingar á athöfnum daglegs lífs geta haft mikil áhrif. Orsakaþættir geðheilsu eru fjölmargir og það skiptir máli hvernig við hugum að þeim og ræktum.

Taktu þátt og saman setjum við geðheilsu í forgang í samfélaginu. Þú getur skrifað undir áskorun þess efnis hér: www.39.is.

 

Fólk með sjálfsvígshugsanir er minnt á Hjálparsíma Rauða krossins, 1717, og netspjallið. Einnig er hægt að leita til Píeta samtakanna og síminn opinn allan sólarhringinn og er 552-2218 og vefsíðan www.pieta.is.

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

Fréttir
Í gær

Móðirin í Kópavogi ákærð fyrir að reyna að drepa eldri soninn líka

Móðirin í Kópavogi ákærð fyrir að reyna að drepa eldri soninn líka
Fréttir
Í gær

Björn Leví: Þess vegna telja Píratar að ekki sé hægt að vinna með Sjálfstæðisflokknum

Björn Leví: Þess vegna telja Píratar að ekki sé hægt að vinna með Sjálfstæðisflokknum
Fréttir
Fyrir 2 dögum

dk hugbúnaður flytur í nýjar höfuðstöðvar og kynnir nýtt vörumerki

dk hugbúnaður flytur í nýjar höfuðstöðvar og kynnir nýtt vörumerki
Fréttir
Fyrir 2 dögum

Ljósmyndaði nakinn mann í búningsklefa – Braut gróflega gegn kynferðislegri friðhelgi

Ljósmyndaði nakinn mann í búningsklefa – Braut gróflega gegn kynferðislegri friðhelgi