fbpx
Fimmtudagur 25.apríl 2024
Fréttir

Í kringum 70 þúsund byssur í einkaeign á Íslandi – Ekki þörf á byssuskáp fyrr en á fjórðu byssu

Tobba Marinósdóttir
Laugardaginn 19. september 2020 08:00

Barnið á meðal annars haglabyssu. Mynd úr safni

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Skotvopnaeign á Íslandi er útbreidd og aðeins algengari í níu löndum heims. Óljós skilningur er lagður í hvernig geyma eigi skotvopn hér landi. Frumvarp sem skýrt hefði lögin náði ekki fram að ganga árið 2014 og hefur ekki sést síðan.

Þrátt fyrir umtal, áskoranir og tilraunir eru vopnalögin enn óbreytt síðan 1998. Frumvarpið er ári eldra en lögin sjálf og mun því texti laganna fagna kvar-taldarafmæli eftir eitt og hálft ár. Lögin eru að margra mati úrelt og þar er margt sem byggir á hugmyndum sem ber-sýnilega eru barn síns tíma. Til dæmis er hvergi minnst á vopnaburð lögreglunnar, heldur einfaldlega vísað til þess að lögin taki ekki til vopna í eigu lögreglu, landhelgisgæslu og fleiri aðila. Annað atriði sem komið er til ára sinna er ákvæði um geymslu skotvopna. Samkvæmt gildandi lögum er ráðherra veitt heimild til þess að setja reglugerð þar sem meiri kröfur eru gerðar til geymslu skotvopna. Er þar ráðherra veitt heimild til þess að setja skilyrði um tiltekna geymslu skotvopna eftir að tilteknum skotvopnafjölda er náð.

Hanna Birna Kristjánsdóttir lagði fram frumvarp árið 2014 sem náði ekki fram að ganga. Í greinargerð með frumvarp-inu er þessi grein útskýrð svo að það sé „í öðrum ríkjum vaxandi vandamál,“ að einstaklingar séu að komast yfir skotvopn sem þeir eigi ekki að komast í, til dæmis með innbroti. „Hér á landi eru dæmi um að einstaklingar komist yfir skotvopn sem varðveitt eru á heimilum og fremji með þeim voðaverk. […] Ljóst er að fjölmargir einstaklingar eiga verulegt safn skotvopna og nauðsynlegt er að leitast við að tryggja vörslu slíkra vopna,“ segir jafnframt.

Geymsluákvæði aldrei skýrt

Í dag virðast engar kvaðir gerðar um geymslu á skotvopnum þar til einstaklingur eignast fjórðu byssuna. Þannig geta hjón átt sex skotvopn á heimili án þess að lagaleg skylda sé lögð á þau um að eignast læstan byssuskáp. Á fjórðu byssu einstaklings myndast skylda til þess að koma sér upp byssuskáp sem stenst kröfur ríkislögreglu-stjóra. Fram að því er vissu-lega skylda til þess að hafa skotvopn í læstum hirslum, þó deilt sé um hvað „hirsla“ sé og áhersla er lögð á þetta atriði hjá lögreglu og skotveiðifélagi Íslands.Vopnalögum hefur verið breytt átta sinnum en aldrei verið snert við ákvæðum um geymslu skotvopna. Árið 2014 birtist frumvarp í samráðsgátt stjórnvalda. Þar kynnti starfandi dómsmála-ráðherra, Sigmundur Davíð Gunnlaugsson, drög að breytingum á vopnalögum, sem Hanna Birna Kristjánsdóttir hafði unnið að.

Hanna Birna sagði af sér fljótlega eftir að frumvarpið var lagt fram og umrætt frumvarp um breytingar á skotvopnalögum varð því munaðarlaust með brott-hvarfi Hönnu Birnu. Síðan þá hefur lítið þokast í þær áttir sem Hanna Birna lagði til og þær breytingar sem hafa þó verið gerðar snúa að mestu að breytingum á skoteldahlutum vopnalaganna.

Lögreglumenn kallað eftir breytingum.

Lögreglumenn hafa margoft bent á nauðsyn þess að gera þessar breytingar á vopnalögum. Þannig sagði til að mynda Daníel Guðjónsson, yfirlögregluþjónn á Akureyri, í viðtali við RÚV í október 2014, um það leyti sem frumvarp Hönnu Birnu var auglýst í samráðsgátt stjórnvalda, að „lögregla fylgist ekki með því að það sé gert. „Nei, það er í rauninni ekkert eftirlit með [geymslu skotvopna],“ segir Daníel. „Og það er svona ákveðinn galli í kerfinu hjá okkur og þyrfti að vera þannig að sá sem á byssu á annað borð að hann ætti jafnframt löggiltan skotvopnaskáp. Og það er að mínum dómi afar brýnt að koma því á sem allra fyrst.“

Þjófnaður skotvopna er sem betur fer óalgengur á Íslandi. Þó eru þess dæmi. Árið 2004 var fimm rifflum og skotfærum í þá stolið í innbroti í bílskúr í Grindavík. Voru rifflarnir þá í byssuskáp sem var ólæstur og skotfærin ekki í aðskildum hirslum. Árið 2003 var haglabyssum stolið í innbroti í Keflavík og ein þeirra svo notuð til að ógna fólki í ráni í verslun Bónus í Kópavogi ári síðar. Það sama ár hljóp skot úr skotvopni sem 12 ára krakkar léku sér með á tjaldsvæði á Selfossi. Þegar lögregla kom á staðinn var einn drengur látinn.

Byssueign algeng á Íslandi

Áki Ármann Jónsson, formaður Skotveiðifélags Íslands, segir að félagið hafi ekki tjáð sig með beinum hætti um hugsanlegar breytingar, enda frumvarp aldrei borist þeim til umsagnar. Hins vegar, segir Áki, að best sé að geyma byssur í byssuskáp. „Svo eru önnur tæki líka til, gikklás til dæmis, og svo er hægt að taka lásinn úr til dæmis. Þannig væru þau ónothæf ef einhver óviðkomandi kemst í þau, nema þá bara sem barefli.“ Ljóst er að byssueign á Íslandi er algeng, en Ísland er, samkvæmt skýrslu Small Arms Survey hugveitunnar, í 10. sæti yfir fjölda skotvopna í umferð á hverja 100 íbúa, en þau eru 31.7. Innan Evrópu eru bara Finnar sem eiga fleiri vopn en Íslendingar. Ofar á listanum eru meðal annars Bandaríkin, Líbanon, Jemen, Svartfjallaland og Serbía. Jónas Hafsteinsson, lögreglufulltrúi hjá Lögreglunni á höfuðborgarsvæðinu segir heildarfjölda byssa í einkaeign vera öðru hvorum megin við 70 þúsund hér á Íslandi. Inni í þeirri tölu eru loftbyssur og jafnvel óvirkar byssur sem menn geyma vegna söfnunar. Jónas bendir jafnframt á að hann leggi mun strangari skilning í lögin en almennt gengur. Vísar Jónas til vopnalaganna áðurnefndu og segir það alveg skýrt að skotvopn eigi að geyma í læstum hirslum. Skiptir þar engu hversu mörg skotvopnin eru.

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

Fréttir
Fyrir 2 dögum

Einingaverksmiðjan og Rafmennt unnu til verðlauna á Verk og vit 

Einingaverksmiðjan og Rafmennt unnu til verðlauna á Verk og vit 
Fréttir
Fyrir 2 dögum

Harmleikurinn á Akureyri – Nágranni ber fólkinu vel söguna – „Það fer rosalega lítið fyrir þeim“

Harmleikurinn á Akureyri – Nágranni ber fólkinu vel söguna – „Það fer rosalega lítið fyrir þeim“