Um þrjú-leytið í dag barst lögreglu tilkynningu um umferðarslys á Suðurlandsvegi við Hofgarða, skammt norðan við Fagurhólsmýri. Um er að ræða rútuslys með 53 innanborðs og valt rútan út fyrir veg. Lögregla og aðrir viðbragðsaðilar eru á leið á vettvang en allt viðbragð miðast við hópslys og áætlun í samhengi við það. Umfang og stig meiðsla fólks er ekki ljóst en eitthvað er um beinbrot og skrámur. Þyrla Landhelgisgæslunnar var strax kölluð út og samhæfingastöð í Skógarhlíð virkjuð.