fbpx
Föstudagur 26.apríl 2024
Fréttir

Hver er Þórdís Kolbrún? „Hlæið, brosið og hættið að röfla“

Ritstjórn DV
Fimmtudaginn 14. mars 2019 18:00

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Þórdís Kolbrún Reykfjörð Gylfadóttir er yngst kvenna í Íslandssögunni til að taka við ráðherraembætti. Hún varð ráðherra ferðamála, iðnaðar og nýsköpunar aðeins 29 ára gömul í janúarmánuði árið 2017. Þá verður Þórdís Kolbrún dómsmálaráðherra eftir að Sigríður Andersen ákvað að stíga til hliðar. Í tilefni þess birtir DV nærmynd sem birt var á DV í tilefni þess að hún varð þá næst yngst allra íslenskra ráðherra, aðeins Eysteinn Jónsson var yngri en hann var 27 ára þegar hann settist á þing fyrir Framsóknarflokkinn og varð fjármálaráðherra fyrir margt löngu eða árið 1934. Þórdís Kolbrún er því yngsta konan til að verða ráðherra.

DV heyrði á sínum tíma í móður Þórdísar, Fjólu Katrínu Ásgeirsdóttur, og vinkonum hennar Emilíu Ottesen og Evu Laufey Hermannsdóttur og fékk að vita hverjir væru kostir og veikleikar ráðherrans.

„Á maður ekki að vera einlægur og hreinskilinn eins og hún er og ég reyndar líka?“ segir Fjóla en á erfitt með að finna galla hjá dóttur sinni. „Hún hefur alltaf verið skemmtileg, með létta lund og kraftmikil. Ég var í vandræðum með hana þegar hún var lítil, ég fékk ekkert að gera fyrir hana og þýddi ekkert að reyna að reima skóna hennar eða greiða henni. Það vildi hún gera sjálf.“

Þórdís, sem er lögfræðimenntuð, var í framhaldsskóla þegar hún hóf að skipta sér af pólitík. Hún tók sæti í stjórn SUS árið 2007 og varð formaður Þórs, félags ungra Sjálfstæðismanna á Akranesi. Hún var á lista flokksins það sama ár í Norðvesturkjördæmi. Árið 2013 var hún aftur á lista flokksins og kosningastjóri fyrir alþingiskosningar í Norðvesturkjördæmi. Með skóla var Þórdís framkvæmdastjóri þingflokksins og í desember 2014 réð Ólöf Nordal Þórdísi sem aðstoðarmann í innanríkisráðuneytinu.

Þórdís er í sambúð með Hjalta S. Mogensen en saman eiga þau tvö börn, Marvin Gylfa, fjögurra ára, og Kristínu Fjólu, sem er um þriggja mánaða. Þórdís er alin upp á Akranesi en er ættuð af Vestfjörðum og Ströndum.

„Hlæið, brosið og hættið að röfla“

Þórdís hefur vakið athygli fyrir einlæga pistla á Facebook-síðu sinni. Í júlí 2015 fjallaði hún um sáran missi þegar hún greindi frá því að á þeim tíma væru fimm ár liðin frá því að fyrrverandi kærasti hennar, Óskar Stefánsson, lést af slysförum árið 2010.

„Hann hafði verið kærasti minn í þrjú ár, kennt mér á lífið, kennt mér að gagnrýna – sem er beisiklí það sem ég vinn við í dag – kennt mér að drekka rauðvín, sem ég elska, kennt mér að efast – sem er mjög mikilvægt, sérstaklega þegar maður vinnur með valdhöfum og í stjórnmálum.“

Sagði Þórdís erfitt að sætta sig við það að hann fengi ekki að njóta lífsins og þakkaði honum fyrir að kenna sér að meta gjafirnar í lífinu.

„Ég þakka fyrir – á hverjum degi – fyrir son minn, fólkið mitt, tækifærin mín og líf mitt […] Njótið, þakkið fyrir ykkur, hlæið, brosið og hættið að röfla. Við erum heppin að fá að taka þátt í lífinu.“

„Í baráttunni mun lítil stúlka fylgja mér í bumbunni“

„ Hún hefur alla tíð verið rosalega geðgóð.“

Þórdís notaði aftur samskiptamiðla þegar hún greindi frá því að hún hygðist bjóða fram krafta sína fyrir síðustu kosningar. Við það tækifæri sagði ráðherrann: „Í baráttunni mun lítil stúlka fylgja mér í bumbunni.“ Ástæðan fyrir framboðinu var einföld: áhugi á stjórnmálum, þau væru krefjandi og gefandi. Kröfur og viðhorf hefðu breyst á síðustu árum. Líklega hefur Þórdís ekki átt von á því að nokkrum mánuðum síðar yrði hún ráðherra í nýrri ríkisstjórn.

„Krafa um jafnari þátttöku karla og kvenna, sem og víðtækari skírskotun til allra aldurshópa með auknum áhrifum ungs fólks blasir við öllum sem vilja sjá. Þá er það eðlileg og skýr krafa að almannahagsmunir ráði för í stjórnmálum. Ég er sammála þessum sjónarmiðum og gef kost á mér á grundvelli þeirra.“

„Foreldrar sem ekki bólusetja börnin sín, skammist ykkar“

Þann 10. desember síðastliðin vöktu skrif Þórdísar um veikindi dóttur hennar mikla athygli. Þá greindi hún frá því á samskiptamiðlum að dóttir hennar hefði greinst með kíghósta aðeins tæplega sex vikna gömul. Var um eina skráða tilfellið á árinu. Á Vísi var haft eftir Þórdísi: „Foreldrar sem ekki bólusetja börnin sín; skammist ykkar og lesið ykkur til.“ Þá sagði hún einnig:

„Fyrir móður sem hefur gengið með barn í níu mánuði og passað upp á það inni í verndaðri bumbu, gert allt af líkama og sál til að koma því í heiminn og starað svo á það í nokkrar vikur, gefið því brjóst og hugsað um það er erfitt að horfa upp á barnið sitt agnarsmátt fimm kíló verða blátt í framan í hóstaköstum og þurfa vanmáttug að treysta á fólk sem veit og kann betur að hjálpa henni.“

Í samtali við DV segir Fjóla, að dóttir Þórdísar hafi fyrir viku, eftir sex vikna dvöl á spítala verið útskrifuð.

Bjóst ekki við þessu

Eva Laufey Hermannsdóttir er góð vinkona Kolbrúnar

„Njótið, þakkið fyrir ykkur, hlæið, brosið og hættið að röfla.“

Það vakti athygli þegar Þórdís var skipuð ráðherra í nýrri ríkisstjórn aðeins 29 ára gömul. Á samskiptamiðlum var nokkuð um að bent væri á reynsluleysi hennar á meðan aðrir nýliðar á ráðherrastóli s.s. Benedikt Jóhannsson sluppu við gagnrýni af svipuðum toga. Fjóla bendir á að dóttir hennar sé búin að lifa og hrærast í pólitík frá því hún var í fjölbrautaskóla.

„Það er hálf hallærislegt að finna ekki galla hjá stúlkunni. Ég get bara hrósað henni fyrir dugnað og hversu fljót hún er, hún fer um eins og stormsveipur. Hún hefur alla tíð verið rosalega geðgóð sem mér hefur alltaf þótt mikill og góður kostur í fari fólks.“

Pólitík frá föðurfjölskyldunni

„Guðmundur Ingólfsson, afi hennar, var mikill Sjálfstæðismaður. Hann sat í bæjarstjórn Ísafjarðar frá 1971 til 1986 og var átta ár forseti bæjarstjórnar,“ segir Fjóla og bætir við að hún og Gylfi, eiginmaður hennar, séu bæði frá Vestfjörðum. Þá á Þórdís einnig ættir sínar að rekja til Skjaldabjarnarvíkur á Ströndum en langafi hennar var Kristján Guðjónsson sem var faðir Guðjóns Arnars Kristjánssonar, fyrrverandi þingmanns. Þá er amma hennar Jóna Valgerður Kristjánsdóttir sem sat eitt kjörtímabil fyrir Kvennalistann.

„Hún er svo hrein og bein að ég held að það yrði seint sem að hún færi í einhver hlutverk. Það er gott að ungu fólki sé gefið tækifæri. Núna gengur lífið yndislega en hún fékk dóttur sína heim af spítalanum síðastliðinn föstudag. Hún fór sex vikna inn á spítala og var sex vikur inni og var óhugnanlega veik,“ segir Fjóla. „Nú er staðan öllu betri. Barnið orðið heilbrigt og þetta er eintóm hamingja.“

Vinkonur ljóstra upp um kosti og galla

Emilíu Ottesen gekk nokkuð betur en Fjólu að nefna galla, reyndar aðeins einn, í fari vinkonu sinnar. Í samtali við DV lýsir hún hennar eina galla á eftirfarandi hátt:

Hann er óstundvísi. Hún er búin að lofa mér því að sá galli heyri sögunni til. Ég er með það loforð skriflegt.“

Kostirnir eru að sögn Emilíu að Þórdís búi yfir þeim eiginleika að hafa einlægan áhuga á skoðunum annarra og eigi auðvelt með að setja sig í spor þeirra sem hún á samtal við.

„Hún er líka einstaklega klár og staðföst og fyrir vikið tekur hún upplýstar og sanngjarnar ákvarðanir. Það þarf varla að taka það fram en ég treysti henni 110 prósent og hlakka til að fylgjast með henni takast á við þetta verkefni. Hún hefur líka mikinn á huga á góðum kökum og rauðvíni sem mér, persónulega finnst mikill kostur, en fyrst og fremst er hún heimsins besta vinkona.“

„Þórdís Kolbrún er mörgum kostum gædd en hún er fyrst og fremst heiðarleg, með stórt hjarta og ákveðin,“ segir Eva Laufey Hermannsdóttir.

,,Hún er réttsýn og virðir skoðanir annarra sem er afar mikilvægt í hennar starfi. Hún bakar einnig bestu eplakökurnar og fátt betra en að sitja með henni, borða köku og spjalla um lífið.“

„Gallarnir eru fáir, helsti gallinn er kannski sá að hún er svakalega dugleg og hefur mikið að gera sem þýðir að ég hitti hana ekki eins oft og ég vildi, en það er nú bara sjálfselska í mér,“ segir Eva Laufey, hlær og bætir við: „Hér með panta ég köku og rauðvínskvöld! Ég er að rifna úr stolti yfir henni og bíð spennt eftir sjá hana vaxa í nýju starfi.“

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

Fréttir
Í gær

Móðirin í Kópavogi ákærð fyrir að reyna að drepa eldri soninn líka

Móðirin í Kópavogi ákærð fyrir að reyna að drepa eldri soninn líka
Fréttir
Í gær

Björn Leví: Þess vegna telja Píratar að ekki sé hægt að vinna með Sjálfstæðisflokknum

Björn Leví: Þess vegna telja Píratar að ekki sé hægt að vinna með Sjálfstæðisflokknum
Fréttir
Fyrir 2 dögum

dk hugbúnaður flytur í nýjar höfuðstöðvar og kynnir nýtt vörumerki

dk hugbúnaður flytur í nýjar höfuðstöðvar og kynnir nýtt vörumerki
Fréttir
Fyrir 2 dögum

Ljósmyndaði nakinn mann í búningsklefa – Braut gróflega gegn kynferðislegri friðhelgi

Ljósmyndaði nakinn mann í búningsklefa – Braut gróflega gegn kynferðislegri friðhelgi