fbpx
Föstudagur 26.apríl 2024
Fréttir

Mikil blæðing í Breiðholti – Fékk flog og braut rúðu

Ritstjórn DV
Mánudaginn 16. desember 2019 06:33

Mynd: Eyþór Árnason

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Sitthvað var skráð í dagbók lögreglunnar á höfuðborgarsvæðinu í gærkvöldi og -nótt. Á Seltjarnarnesi voru afskipti höfð af ofurölvi manni á veitingastað um hálf sjö. Maðurinn gat ekki greitt fyrir veitingar sem hann hafði fengið afgreiddar og var hann handtekinn sökum ástands.  Maðurinn var vistaður í fangageymslu lögreglu grunaður um fjársvik og hótanir gegn lögreglu.

Um og upp úr tíu í gærkvöldi voru nokkrir ökumenn stöðvaðir grunaðir um ölvun við akstur. Einnig voru skráningarnúmer klippt af tveimur bílum.

Rétt fyrir ellefu var lögreglan kölluð út vegna slyss í verslun í efra Breiðholti. Maður þar inni fékk flog, féll aftur fyrir sig og braut rúðu í hurð. Maðurinn fékk sár á hnakka og var mikil blæðing, en maðurinn var fluttur á sjúkrahús til aðhlynningar.

Rétt fyrir ellefu hafði lögregla afskipti af íbúð í fjölbýlishúsi í Grafarholti. Einn var kærður fyrir vörslu fíkniefna. Rúmlega tvö í nótt var óskað eftir aðstoð lögreglu á hótel í miðbæ Reykjavíkur. Þar var maður, sem var ekki gestur, sem vildi ekki yfirgefa hótelið. Við afskipti lögreglu af manninum fundust ætluð fíkniefni hjá manninum og er hann kærður fyrir vörslu fíkniefna.  

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

Fréttir
Í gær

Móðirin í Kópavogi ákærð fyrir að reyna að drepa eldri soninn líka

Móðirin í Kópavogi ákærð fyrir að reyna að drepa eldri soninn líka
Fréttir
Í gær

Björn Leví: Þess vegna telja Píratar að ekki sé hægt að vinna með Sjálfstæðisflokknum

Björn Leví: Þess vegna telja Píratar að ekki sé hægt að vinna með Sjálfstæðisflokknum
Fréttir
Fyrir 2 dögum

dk hugbúnaður flytur í nýjar höfuðstöðvar og kynnir nýtt vörumerki

dk hugbúnaður flytur í nýjar höfuðstöðvar og kynnir nýtt vörumerki
Fréttir
Fyrir 2 dögum

Ljósmyndaði nakinn mann í búningsklefa – Braut gróflega gegn kynferðislegri friðhelgi

Ljósmyndaði nakinn mann í búningsklefa – Braut gróflega gegn kynferðislegri friðhelgi