fbpx
Fimmtudagur 25.apríl 2024
Fréttir

Sandra var áreitt – „Óþægileg og niðurlægjandi upplifun“

Auður Ösp
Laugardaginn 30. nóvember 2019 13:00

Sandra Mjöll Markúsdóttir. Ljósmynd/Skjáskot af vef Universitas.

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

„Eftir að hafa melt þetta atvik, þá sé ég að það er ekkert saklaust við þetta. Þetta er ein af fjölmörgum birtingarmyndum þessa heimsfaraldurs sem ofbeldi og mismunun gegn konum er og vangetu manna til að viðurkenna konur sem jafningja en ekki hluti sem þeir eiga tilkall til. Það á ekki að normalisera svona hegðun eða draga úr alvarleika hennar, það leyfir henni aðeins að viðgangast,“ segir Sandra Mjöll Markúsdóttir, lögfræðinemi við Háskólann í Ósló, en á dögunum gengu tveir ókunnugir karlmenn um stúdentaþorpið og áreittu fjölda kvenna, meðal annars Söndru Mjöll. Hún segir rekstraraðila stúdentaþorpsins hafa brugðist fagmannlega við.

Sandra Mjöll stundar nám í lögfræði og er í skiptinámi við Háskólann í Ósló. Meðan á náminu stendur býr hún á stúdentagörðunum í Kringsjå.

„Ég hafði ekki hugsað mér að pósta þessu, einfaldlega því mér fannst þetta atvik sem ég lenti í ekki neitt sérstaklega alvarlegt og ekkert til að vekja athygli á, enda virðist þetta saklaust í stóra samhenginu. Ég skipti þó um skoðun og ákvað að deila þessu,“ segir  Sandra Mjöll í færslu á Facebook-síðu sinni en mennirnir tveir áreittu hana á stúdentabarnum Union 864 nú á dögunum.

„Í síðustu viku gengu tveir óþekktir menn um stúdentaþorpið mitt og áreittu stelpur, meðal annars mig. Mennirnir löbbuðu upp að mér þar sem ég sat og var að spila með tveimur vinum mínum. Mennirnir horfðu á þá, á meðan þeir bentu á mig, og spurðu þá hvort að ég væri vinkona eða kærasta, því jú, þeir þurftu að fá staðfestingu frá karlkyns vinum mínum hvort það væri í lagi að áreita mig eða ekki. Þeir heimtuðu svo símanúmerið mitt og eftir að ég neitaði þeim staðfastlega nokkrum sinnum þá tók annar þeirra upp á því að ota peningum að mér í þeirri von að ég segði já. Í tilviki annarrar stelpu brugðust þeir við með því að kalla hana tík og eltu hana eftir að hún neitaði að gefa þeim símanúmerið sitt. Dæmin eru fleiri.“

Sandra ræðir einnig um atvikið við stúdentablað Háskólans í Ósló og stúdentablað OsloMet-háskólans. Í samtali við blaðið segir Sandra að þessi upplifun hafi verið óþægileg og niðurlægjandi og sömuleiðis gífurleg vanvirðing við hana sjálfa, og allar konur.

Fram kemur að daginn eftir atvikið hafi Sandra lesið færslu inni á Facebook-hópi fyrir skiptinema í skólanum þar sem önnur stúlka sagðist hafa orðið fyrir áreitni af hálfu tveggja ókunnugra manna á svæðinu þennan dag. Sagðist hún hafa horft upp á mennina áreita fjölda annarra kvenna.

Í kjölfarið stigu fjölmargar konur fram og sögðust einnig hafa orðið fyrir áreitni af hálfu mannanna tveggja þennan dag.

Fram kemur að í kjölfar atviksins hafi öryggisreglur verið hertar á svæðinu og sömuleiðis lögreglu gert viðvart. Það hefur þó enn ekki tekist að hafa uppi á mönnunum tveimur.

Sandra Mjöll segist vera ánægð með að málinu sé fylgt eftir. Mikilvægt sé að þolendur kynferðisáreitni upplifi að á þá sé hlustað, og fái viðeigandi stuðning, hvort sem um er að ræða óviðeigandi snertingu eða orðbragð.

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

Fréttir
Í gær

Spáir ekki dropa úr lofti í Reykjavík fyrr en í maí – Sumarið lítur sérstaklega vel út

Spáir ekki dropa úr lofti í Reykjavík fyrr en í maí – Sumarið lítur sérstaklega vel út
Fréttir
Í gær

Stofna góðgerðarfélag til minningar um Þuríði Örnu – Blásið til tónleikaveislu 1. maí

Stofna góðgerðarfélag til minningar um Þuríði Örnu – Blásið til tónleikaveislu 1. maí
Fréttir
Fyrir 2 dögum

Íbúar brjálaðir út í Hafnarfjarðarbæ: „Þetta er til háborinnar skammar og engin lausn“

Íbúar brjálaðir út í Hafnarfjarðarbæ: „Þetta er til háborinnar skammar og engin lausn“
Fréttir
Fyrir 2 dögum

Réðst á dreng sem ætlaði að gera dyraat

Réðst á dreng sem ætlaði að gera dyraat