fbpx
Laugardagur 02.maí 2026
Fréttir

Gekk berserksgang í Hafnarfirði – Átök sambýlisfólks og stolinn bíll

Kristján Kristjánsson
Miðvikudaginn 3. apríl 2019 05:04

Myndin tengist fréttinni ekki beint.

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Skömmu fyrir miðnætti var óskað eftir aðstoð lögreglunnar að heimili í Hafnarfirði þar sem maður gekk að sögn berserksgang. Maðurinn var handtekinn en hann er grunaður um að hafa beitt maka sinn ofbeldi og brotið húsmuni. Fulltrúi frá barnaverndarnefnd kom á vettvang til að aðstoða makann og börn á heimilinu.

Í austurhluta Reykjavíkur þurftu lögreglumenn að sinna verkefni í gærkvöldi en þar hafði fyrrum maki komið á heimili og neitaði að yfirgefa það. Hann hafði þó yfirgefði húsið þegar lögreglan kom á vettvang.

Einnig þurfti lögreglan að koma að máli í vesturbæ Reykjavíkur í gærkvöldi þar sem hafði komið til handalögmála á milli sambýlisfólks. Meintur gerandi í málinu var handtekinn og fluttur á brott. Fulltrúar barnaverndarnefndar og félagsþjónustu borgarinnar komu á vettvang til að aðstoða þolandann og börn fólksins.

Þrír ökumenn voru handteknir í nótt grunaðir um að vera undir áhrifum fíkniefna.

Í gærkvöldi var fjórum mönnum vísað úr þvottahúsi í sameign fjölbýlishúss í miðborginni. Þar höfðu þeir hreiðrað um sig. Þeim var bent á úrræði Reykjavíkurborgar fyrir heimilislausa.

Á fjórða tímanum í nótt var ökumaður handtekinn í austurborginni en hann er grunaður um að hafa verið undir áhrifum fíkniefna. Þegar verið var að handtaka manninn sáu lögreglumenn bifreið skammt frá en lýst hafði verið eftir þeirri bifreið þar sem henni hafði verið stolið. Þrír voru handteknir vegna gruns um aðild að þjófnaðinum og bifreiðin var tekin í vörslu lögreglunnar.

Lögreglan sinnti nokkrum útköllum í nótt vegna hávaða frá samkvæmum sem truflaði svefn margra.

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

Fréttir
Í gær

Jón Gnarr fékk ekki greitt fyrir atriðið eins og fullyrt var í Morgunblaðinu – „Óvönduð blaðamennska“

Jón Gnarr fékk ekki greitt fyrir atriðið eins og fullyrt var í Morgunblaðinu – „Óvönduð blaðamennska“
Fréttir
Í gær

Krafðist þess að fá hlutdeild í séreign látins sambýlismanns á grundvelli erfðaskrár – Hæstiréttur hefur nú lagt línurnar

Krafðist þess að fá hlutdeild í séreign látins sambýlismanns á grundvelli erfðaskrár – Hæstiréttur hefur nú lagt línurnar
Fréttir
Fyrir 2 dögum

Krefjast skýringa og aðgerða vegna fnyks í Hafnarfirði

Krefjast skýringa og aðgerða vegna fnyks í Hafnarfirði
Fréttir
Fyrir 2 dögum

Kosningapróf Viðskiptaráðs: Hvar stendur þú?

Kosningapróf Viðskiptaráðs: Hvar stendur þú?
Fréttir
Fyrir 2 dögum

Sigríður var alein við Hlemm – „Út á hvað gengur þetta?“

Sigríður var alein við Hlemm – „Út á hvað gengur þetta?“
Fréttir
Fyrir 2 dögum

Baldur leysir Herjólf af tímabundið

Baldur leysir Herjólf af tímabundið
Fréttir
Fyrir 2 dögum

Lindex útvegar Kvennaathvarfinu náttföt, nærföt og sokka

Lindex útvegar Kvennaathvarfinu náttföt, nærföt og sokka
Fréttir
Fyrir 2 dögum

Framboðið snúist ekki um lögheimilisskráningar – „Það þurfa allir að vera með rödd til að geta bætt og lagað sveitarfélagið“

Framboðið snúist ekki um lögheimilisskráningar – „Það þurfa allir að vera með rödd til að geta bætt og lagað sveitarfélagið“