fbpx
Laugardagur 02.maí 2026
Fréttir

Birgir framkvæmdastjóri Domino’s: „Þá myndu staðirnir fara á hliðina því þeir myndu ekki ráða við álagið“

Erla Dóra Magnúsdóttir
Þriðjudaginn 2. apríl 2019 18:00

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Pitsuverðlagsmálið vindur enn upp á sig. Birgir Örn Birgisson, framkvæmdastjóri Dominos hringdi inn í Bítið á Bylgjunni til að benda á enn aðra breytu sem vantaði inn í samanburð Gunnars Smára Egilssonar, sósíalista, á pitsuverðlagi. Sú breyta er heimsendingarkostnaðurinn. Rúsínan í pitsuendanum á málflutningi hans var þó án efa er hann gef til kynna að þessa væri skammt að vænta að heimsendingardrónar tækju til starfa hjá Domino‘s.

Birgir segir Gunnar bera saman epli og appelsínur. Samanburður Gunnars Smára hafi miðað við matseðilsverð en ekki tekið með í reikninginn kostnað við heimsendingar.

„Ef við tökum Noreg sem dæmi þar er heimsendingargjaldið 89 norskar krónur, sem er rétt um 1246 krónur, svo ég sé nákvæmur, að þetta hefur auðvitað mjög mikil áhrif á verðlagið.“

„Ef þú til dæmis tekur stóra pitsu sótta hjá okkur með tveimur áleggstegundum þá kostar hún 1840 krónur.“

„Þarna er verið að bera saman epli og appelsínur.“

Heimsendar pitsur kosti eðlilega meira en sóttar. „Fyrir okkur kostar bara, raunkostnaður meira en 1000 krónur að senda pítsu heim.“

„Ef við skoðum þetta í stóru samhengi, þá vantar þessa aukabreytu“

Hann segir jafnframt að hugmyndir Þórarins Ævarssonar, sem fjallað var um fyrr í dag, um að fækka stöðum og lækka verð, gangi ekki upp.

„Þá myndi bara hreinlega allt fara á hliðina á Facebook.“

Þar vísar Birgir til þess að svo mikið er að gera stundum í verslunum Dominos  að ekki gengi upp að anna eftirspurn með færri stöðum og kallar hann starfsmenn Dominos: „hvunndagshetjur að halda öllu á floti.“

Þáttastjórnendur spurðu hvort til skoðunar hefði komið að nota dróna við heimsendingar.

„Heyrðu veistu bara hvað það er vonandi ekki svo langt í það.“

Í öðrum óspurðum fréttum tók Birgir fram að uppáhalds pitsan hans væri El Dorado og minnti hlustendur Bylgjunnar á að í dag er þriðjudagur, sem hjá Dominos er pitsadagur. Miðstærð af pitsu með þremur áleggjum á 1000 krónur.

„Á næsta ári verðum við með 10 ára afmæli þessa tilboðs á sama verði.“

 

 

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

Fréttir
Í gær

Jón Gnarr fékk ekki greitt fyrir atriðið eins og fullyrt var í Morgunblaðinu – „Óvönduð blaðamennska“

Jón Gnarr fékk ekki greitt fyrir atriðið eins og fullyrt var í Morgunblaðinu – „Óvönduð blaðamennska“
Fréttir
Í gær

Krafðist þess að fá hlutdeild í séreign látins sambýlismanns á grundvelli erfðaskrár – Hæstiréttur hefur nú lagt línurnar

Krafðist þess að fá hlutdeild í séreign látins sambýlismanns á grundvelli erfðaskrár – Hæstiréttur hefur nú lagt línurnar
Fréttir
Fyrir 2 dögum

Krefjast skýringa og aðgerða vegna fnyks í Hafnarfirði

Krefjast skýringa og aðgerða vegna fnyks í Hafnarfirði
Fréttir
Fyrir 2 dögum

Kosningapróf Viðskiptaráðs: Hvar stendur þú?

Kosningapróf Viðskiptaráðs: Hvar stendur þú?
Fréttir
Fyrir 2 dögum

Sigríður var alein við Hlemm – „Út á hvað gengur þetta?“

Sigríður var alein við Hlemm – „Út á hvað gengur þetta?“
Fréttir
Fyrir 2 dögum

Baldur leysir Herjólf af tímabundið

Baldur leysir Herjólf af tímabundið
Fréttir
Fyrir 2 dögum

Lindex útvegar Kvennaathvarfinu náttföt, nærföt og sokka

Lindex útvegar Kvennaathvarfinu náttföt, nærföt og sokka
Fréttir
Fyrir 2 dögum

Framboðið snúist ekki um lögheimilisskráningar – „Það þurfa allir að vera með rödd til að geta bætt og lagað sveitarfélagið“

Framboðið snúist ekki um lögheimilisskráningar – „Það þurfa allir að vera með rödd til að geta bætt og lagað sveitarfélagið“