fbpx
Fimmtudagur 18.apríl 2024
Fréttir

Barnaníðingur dásamaður í Morgunblaðinu – „Megi hann hvíla í ljósinu eilífa“

Kristjón Kormákur Guðjónsson
Föstudaginn 10. ágúst 2018 09:10

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Séra Helgi Hróbjartsson er látinn. Hann starfaði um árabil sem kristniboði og síðan prestur hér á landi. Vakti Helgi aðdáun og eftirtekt fyrir óeigingjarnt starf. Þegar ráðist var í gerð heimildarmyndar um Helga fékk hún nafnið Engill af himnum. Og það var alltaf líf í kringum Helga sem hafði einstakt lag á að tengjast fólki. Hann var óvenju vel af Guði gerður, hávaxinn herðabreiður og fríður sínum.

Þá var Helgi stærstur og sterkastur í sínum bekk á yngri árum og fylginn sér í leikjum. Hlátur hans var smitandi því hann sá gjarnan það skoplega í tilverunni. Helgi var einstakur og gæddur ótal hæfileikum á sviði tónlistar, hafði hann gáfu til að spila á harmóníku og píanó og syngja undurvel. Helgi var alinn upp á kristnu heimili þar sem kristniboðshugsjónin logaði skært og snemma drakk hann í sig hina heilnæmu kenningu og kristniboðshugsjónina. Helgi var einnig gæddur sérstakri náðargáfu að boða Guðsorð til vakningar og blessunar. Helgi hefur nú fullnað skeiðið og öðlast þann sigursveig réttlætis sem honum var geymdur á himnum. Mest má það þakka Guði sem gaf okkur Helga, megi hann hvíla í ljósinu eilífa. Hann Helgi Hróbjartsson var eftirminnilegur maður. Og hann var líka barnaníðingur.

Lýsingar hér að ofan, allar nema sú síðasta um níð hans á börnum er að finna í hinum ýmsu minningargreinum í Morgunblaðinu sem birtar hafa verið í vikunni. Ekki er stafkrók um það að finna að Helga hafi árið 2010 verið vikið úr kirkjunni eftir að hafa játað kynferðisbrot gegn þremur piltum. Þau brot voru 25 ára gömul. Í minningargreinum Morgunblaðsins tíðkast yfirleitt ekki að segja frá syndum fólks, um slíkt er talað undir rós. Ef hinn látni framdi voðaverk er oftast talað um það undir rós, jafnvel sagt að í lífi hans hafi skipst á skin og skúrir. Ekkert slíkt er að finna í minningargreinum um níðingsprestinn Helga Hróbjartsson. Á síðum Morgunblaðsins er ekki einn regndropa að finna, ekki ský á himni, aðeins endalaust sólskin. Í minningargreinum um Helga Hróbjartsson ríkir fegurðin ein, en níðingspresturinn viðurkenndi sjálfur að hafa brotið á þremur börnum. Það átti eftir að koma á daginn að málin voru fleiri.

Játaði fyrir fagráði

DV fjallaði ítarlega um kynferðisbrot séra Helga árið 2010. Á haustmánuðum það ár játaði Helgi fyrir fagráði kirkjunnar að hafa brotið á börnum. Í umfjöllun DV sagði að málið hefði verið mönnum sem þekktu til Helga mikið áfall enda var hann ekki þekktur fyrir annað en óeigingjarnt starf og ósérhlífni heima og erlendis. Á Íslandi starfaði hann sem prestur í Þorlákshöfn, Hrísey og á Akureyri. Það var á Norðurlandi sem Helgi braut á börnum. Erlendis var Helgi trúboði um árabil í Eþíópíu en líka Senegal. DV ræddi einnig við mann sem átti vin sem var misnotaður af Helga, þegar hann var 15 ára í ferð á vegum kirkjunnar.

„Hann lýsti því þannig að presturinn hefði komið inn til hans um miðja nótt, skriðið undir sængina hjá honum og átt eitthvað við hann. Hann hefði svo vaknað við það að hann væri að á káfa á honum.“

Nokkrum árum síðar eftir mikla vanlíðan framdi maðurinn sjálfsmorð. „Það er ekki hægt að rekja sjálfsvígið beint til þessa atviks, en það hefur ekki hjálpað til. Þessi strákur var með brotna sjálfsmynd og veikur fyrir. Svona krakkar verða helst fyrir þessari reynslu. Þeir eru auðveldasta bráðin. Hann var feiminn, óöruggur og inn í sig. Hann átti oft erfitt,“ sagði viðmælandi DV og bætti við á öðrum stað: „Kynferðislegt ofbeldi hefur auðvitað áhrif á fleiri en þá sem verða fyrir ofbeldinu, þetta hefur áhrif á alla sem vita af því. Nú er vinur minn dáinn og þá finnst mér það einhvern veginn of seint fyrir mig að fara að skipta mér af þessu máli. Þetta er bara ömurlegt allt saman. Ég fæ alveg kökk í hálsinn þegar ég tala um þetta.“

Helgi var mikið erlendis og starfaði þar með börnum.

Svona maður hættir ekki

Barnaníðingar eru oft hvers manns hugljúfi út á við og búa yfir kænsku til að dyljast. Þeir eru úlfar í sauðargæru. Þolendur Helga eru eflaust mun fleiri, en þekkt er að aðeins brot af þeim sem beittir eru hinu skelfilega ofbeldi hafi styrk til að leita réttar síns. Kvaðst vinur mannsins sem Helgi braut á vera sannfærður um að þolendur væru fleiri.

„Enda viðurkenndi hann brot sín gagnvart hinum piltunum þremur fyrir fagráðinu. Þú sérð það að vinur minn var ekki einn þeirra. Ég á bágt með að trúa því að svona maður hætti bara. Það sem við vitum núna er líklega bara toppurinn á ísjakanum og ég myndi gjarna vilja sjá yfirvöld setja af stað rannsókn á slóð hans. Kanna það hvort það séu fleiri fórnarlömb þarna úti eða ekki.“

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt