fbpx
Laugardagur 07.júní 2025
Fréttir

Gríðarleg óánægja með ákvörðun Air Iceland Connect að fella niður Hoppfargjöld: „Aumingjar“

Óðinn Svan Óðinsson
Miðvikudaginn 4. júlí 2018 17:00

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Þann 1. júní sl. ákvað flugfélagið Air Iceland Connect að hætta að bjóða upp á svokölluð hoppfargjöld en gjöldin hafa verið ódýrari valkostur í innanlandsflugi fyrir unga farþega. Gjaldið var ætlað fyrir 12-25 ára og kostaði í kringum 10.000 krónur með innrituðum farangri inniföldum. Hægt var að bóka „hoppið“ með stuttum fyrirvara en þeir sem bókuðu slíkt fargjald mættu alltaf afgangi, þannig að ef fullt var í vélina komust þeir ekki með. 

Töluverð óánægja hefur verið með ákvörðun félagsins og hafa margir tjáð sig um málið, sérstaklega á landsbyggðinni. Einn þeirra er Sigurður Guðmundsson, kaupmaður á Akureyri. Í færslu sem hann skrifar á Facebook í morgun fer hann ófögrum orðum um félagið sem hann segir síðasta einokunarfélagið.

Í færslunni birtir Sigurður skáskjót af bókunarsíðu flugfélagsins sem sýnir að gjald fyrir einn frá Akureyri til Reykjavíkur kostar tæplega 19 þúsund krónur en Sigurður hygðist kaupa far fyrir 12 ára dóttir sína. „Það sem bjargaði nú mörgu hér áður fyrr voru hoppfargjöld sem komu sér vel þegar þrjú ungmenni búa á heimilinu. Þau hafa nú verið aflögð og einfaldari gjaldskrá tekin upp að þeirra sögn. Það er nú bara helbert kjaftæði og lygi,“ skrifar Sigurður í færsluna sem sjá má hér að neðan. 

Ódýrara að fljúga til Kaupmannahafnar

Þar sem ekki voru aðrir kostir í stöðunni neyddist Sigurður til að kaupa fargjaldið en bendir á að móðurfélag Air Iceland Connect bjóði upp á ódýrari ferðir til Kaupmannahafnar. „Lét mig hafa að kaupa þetta fargjald fyrir dóttur mína enda ekkert annað í stöðunni. Móðurfélagið getur selt mér aðra leiðina til Kaupmannahafnar fyrir 14.355 krónur á laugardag sem er sami dagur og flug hennar norður. Á þeirri leið er samkeppni. Aumingjar,“ segir Sigurður að lokum.

Þóroddur Bjarnason, fyrrum formaður stjórnar Byggðastofnunnar tekur undir með Sigurði í svari við færslunni. „Þetta verður aldrei í lagi fyrr en tvö flugfélög verða í samkeppni á þessari leið. 

Óánægjan kom ekki á óvart

Fréttablaðið Norðurland fjallaði um málið fyrr í sumar þar sem Árni Gunnarsson, framkvæmdarstjóri Air Iceland Connect segir óánægjuna ekki koma sér á óvart. „Allar breytingar geta verið umdeildar en það er þó töluverður skilningur fyrir því að þetta hafi verið tekið af, enda almennt ekki þekkt í flugheiminum að bjóða upp á svona fargjöld,“ sagði Árni.

Þá bendir hann á leið sem kallast „Flugfélagar“ en með henni geta viðskiptavinir keypt sex flugleggi í einu á 59.400 krónur. Hingað til hefur sú leið aðeins verið í boði fyrir 12-20 ára en nú hefur þessum efri aldurstakmörkum verið breytt í 25 ára.

„Síðasta einokunarfélagið“

https://www.facebook.com/permalink.php?story_fbid=10214907448974183&id=1066495291

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

Fréttir
Fyrir 2 dögum

Mörg hús fyrir hælisleitendur standa ónotuð – „Sóun á almannafé skattgreiðenda“

Mörg hús fyrir hælisleitendur standa ónotuð – „Sóun á almannafé skattgreiðenda“
Fréttir
Fyrir 2 dögum

Pútín og nánustu samstarfsmenn ósammála um Úkraínu

Pútín og nánustu samstarfsmenn ósammála um Úkraínu
Fréttir
Fyrir 2 dögum

Skora á Kópavogsbæ að slaka á í hækkun leikskólagjalda – Nú þegar með hæsta gjaldið á landinu

Skora á Kópavogsbæ að slaka á í hækkun leikskólagjalda – Nú þegar með hæsta gjaldið á landinu
Fréttir
Fyrir 2 dögum

Blindfullur flugdólgur olli truflun í flugi frá Keflavík til Gdansk

Blindfullur flugdólgur olli truflun í flugi frá Keflavík til Gdansk