fbpx
Laugardagur 07.júní 2025
Fréttir

Harpa felldi sauðnaut á Grænlandi – Gefandi að veiða með konum

Kristjón Kormákur Guðjónsson, Auður Ösp
Þriðjudaginn 29. maí 2018 22:00

Harpa Hlín Þórðardóttir með hreindýrinu sem hún felldi á Grænlandi. Er Harpa afar stolt af þessari veiði en hún veiddi hreindýr á Grænlandi árin 2012 og 2013.

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Harpa felldi einnig sauðnaut á Grænlandi árið 2017.

„Ég byrjaði að hafa áhuga á fluguveiði þegar ég fór að vinna við skipulagningu veiðiferða. Það má eiginlega segja að ég hafi dottið á kaf í veiðiheiminn, því við hjónin störfum bæði við þetta og vinir okkar og samstarfsfólk er flest á kafi í sportinu.“

Þetta segir Harpa Hlín Þórðardóttir sem er sérfræðingur í stang- og skotveiði. Hún hefur fellt elg í Eistlandi og sauðnaut á Grænlandi. Þá hefur hún stofnað veiðiklúbb fyrir konur, en nýjasta afrek Hörðu er að hún er nú í undanúrslitum í Extreme Huntress en um er að ræða bandaríska þætti um veiðikonur. Í þáttunum spreyta konurnar sig í ýmsum þrautum. Vonast Harpa til að standa uppi sem sigurvegari og hljóta titilinn Extreme Huntress 2019.

DV lék forvitni á að vita hvernig áhuginn á skotveiði er til kominn og hvert sé eftirminnilegasta eða stærsta dýr sem hún hafi fellt.

Harpa fer reglulega með öðrum konum í veiðihópnum T&T international í ferðir erlendis.

„Ég drakk í mig þekkingu reyndra manna en engra kvenna því veiðikonur voru bara ekki í kringum mig. Það var eðlilegt framhald af stangveiðinni að prófa skotveiði en það er erfitt að útskýra fyrir þeim sem ekki hafa prófað hvernig veiðin grípur mann. Fyrir mig þá er eins og það hafi kviknað á nýjum skilningarvitum. Ég finn sambland af spennu, afslöppun, tengingu við náttúruna og svo fer ég upp og niður allan tilfinningaskalann. Þú finnur fyrir spennu, vonbrigðum, gleði, smá öfund, að gleðjast með öðrum, svefnleysi og mér finnst ég hafa kynnst sjálfri mér upp á nýtt.“

Harpa var óviss um hvort hún ætti að prufa skotveiði en sagði við sjálfa sig að ef henni þætti óþægilegt að fella dýr með skotvopni væri alltaf hægt að hætta við. „Þegar ég skaut fyrsta dýrið þá leið mér svipað og þegar ég veiddi fyrsta laxinn. Ég fylltist stolti og fannst þetta aldrei rangt, ég legg mikla áherslu á að borða hreinan mat og nýta það sem náttúran gefur.“

Sumir þeirra sem stunda fiskveiðar telja skotveiði eða jaðarveiði þar sem dýr á borð við sauðnaut eru felld, af hinu slæma. Harpa bendir á að allt sé nýtt af skepnunni.

„Mín upplifun er sú að þú finnur ekki meiri náttúru- og dýraverndunarsinna en einmitt veiðimenn. Ég veit mörg dæmi þess að veiðifólk bjargar dýrum úr ógöngum, girðingum eða upp úr vatni og lagfæra umhverfi þeirra.“‘

Harpa er einnig lagin með veiðistöngina.

Eftirminnilegasta veiðiferðin

Harpa segir ánægjulegast að fara í veiðiferðir með fólki sem sé að taka sín fyrstu skref í skotveiði. „Gleðin er svo einlæg þegar fólk nær að skilja náttúruna og umhverfi sitt betur og að veiða fyrsta dýrið er eitthvað sem allir muna eftir,“ segir Harpa en aðspurð um eftirminnilegustu bráðina svarar hún: „Væntanlega fyrsta dýrið sem ég skaut í Skotlandi og stóri hreindýrstarfurinn sem ég fékk í Grænlandi. Annars förum við reglulega fjölskyldan að veiða gæs upp á Melum en þá tökum við oft eitt barna okkar með en þeim finnst áhugavert að taka þátt í þessu með okkur.“

Gefandi að veiða með konum

Harpa bætir við að hún veiði eingöngu dýr þar sem kjötið sé nýtt. Hún fer reglulega með öðrum konum í veiðihópnum T&T international í ferðir erlendis en hópurinn stefnir til Eistlands í haust. „Það er virkilega gefandi að veiða með öðrum konum og gaman að læra hver af annari.“

Harpa er, eins og áður segir, í undanúrslitum í Extreme Huntress. Ef þú vilt hjálpa Hörpu að komast áfram í úrslit, þá er hægt að kjósa hana áfram hér.

https://vimeo.com/266154838

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

Fréttir
Fyrir 2 dögum

Mörg hús fyrir hælisleitendur standa ónotuð – „Sóun á almannafé skattgreiðenda“

Mörg hús fyrir hælisleitendur standa ónotuð – „Sóun á almannafé skattgreiðenda“
Fréttir
Fyrir 2 dögum

Pútín og nánustu samstarfsmenn ósammála um Úkraínu

Pútín og nánustu samstarfsmenn ósammála um Úkraínu
Fréttir
Fyrir 2 dögum

Skora á Kópavogsbæ að slaka á í hækkun leikskólagjalda – Nú þegar með hæsta gjaldið á landinu

Skora á Kópavogsbæ að slaka á í hækkun leikskólagjalda – Nú þegar með hæsta gjaldið á landinu
Fréttir
Fyrir 2 dögum

Blindfullur flugdólgur olli truflun í flugi frá Keflavík til Gdansk

Blindfullur flugdólgur olli truflun í flugi frá Keflavík til Gdansk