Davíð Pálsson varð fyrir líkamsárás af hálfu ókunnugs manns í miðborg Reykjavíkur um seinustu helgi. Hann segist enga hugmynd hafa um það hvers vegna maðurinn réðst á hann en óneitanlega dragi hann þá ályktun að það sé annað hvort vegna húðlitar síns eða vegna þess að útlit hans sker sig úr.
Davíð er fæddur í Kólumbíu en hefur verið búsettur á Íslandi í 18 ár. Í samtali við blaðamann DV segist hann hafa verið að skemmta sér með vinnufélögum á laugardagskvöldið en upp úr miðnætti ákváðu nokkrir úr hópnum að kíkja á skemmtanalífið í miðborginni.
Davíð segist hafa skemmt sér vel þetta kvöld og fengið fjölmörg hrós fyrir útlit sitt, en hann hafði sett á sig farða áður en hann fór út og var með hinsegin slaufu um hálsinn.
„Ég var með nokkrum vinum mínum, við fórum á Kiki og þaðan á Kaffibarinn. Svo fóru þau heim og þá fór ég aðeins á B5.“
Davíð segist hafa farið og fengið sér í svanginn síðar um nóttina og þvínæst beðið í röð eftir leigubíl.
„Ég lít upp og sé þá mann vera að nálgast mig. Ég sé að hann sér mig og við mætumst augnliti til augnlitis. Ég var viss um að hann myndi labba framhjá en þá finn ég fyrir dúndur höggi á eyrað og kinnina, hann sló mjög fast. Mér brá svo mikið og þetta var svo vont að ég fór að gráta og sá þá manninn labba burt. Ég hefði getað talað við hann en ég sleppti af því ég var í sjokki, grátandi, reiður og hefði hvort sem er ekki gert neitt af viti.“
Tveir ókunnugir einstaklingar tóku eftir því að Davíð voru í uppnámi og buðu honum aðstoð; hughreystu hann og hugguðu. „Ég er ekki viss hvort þau þekktu einstaklinginn eða ekki. Ég labba svo heim grátandi og fer að sofa.“
Davíð segist reglulega setja á sig farða og hefur hann gaman af því að hressa uppá útlitið með ýmisskonar skarti. Hann bendir á að ennþá sé langt í land þegar kemur að réttindabaráttu hinsegin fólks. Það sé sorglegt að karlmenn megi ekki mæta í bæinn með farða án þess að eiga það á hættu að vera lamdir.
„En ég hef aldrei lent í þessu áður. Ég hef reyndar oft lent í því að fólk starir skringilega á mig þegar ég hef verið með makeup eða með blómkrans í hárinu.Það er svo fáránlegt að fólk sé virkilega að skipta sér af þessu. Af hverju ætti það trufla mig hvernig manneskjan við hliðina á mér er klædd eða hvernig hún er?“