fbpx
Fimmtudagur 25.apríl 2024
Fréttir

Getur ekki borgað fyrir fæðingu íslensks sonar: „Stundum fimm þúsund og stundum tíu þúsund“

Háir vextir – Á svörtum lista – Mæður borga fæðingar

Kristinn H. Guðnason
Miðvikudaginn 27. desember 2017 20:00

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Francisca Essien, 27 ára kona frá Gana, fæddi son sinn á Landspítalanum fyrir fjórum árum. Þar sem hún var ekki sjúkratryggð fékk hún háan reikning sem hún gat ekki borgað þó að sonur hennar sé íslenskur ríkisborgari. Sá reikningur hefur nú vaxið með hverju árinu og Landspítalinn hefur sýnt lítinn samningsvilja.

346 þúsund krónur fyrir fæðingu

Francisca kom hingað til lands árið 2012 en fyrir þann tíma hafði hún búið á Spáni í þrjú eða fjögur ár.

Af hverju komstu hingað?
„Ég veit það ekki. Einn daginn pakkaði ég í tösku og sagðist vera farin. Svo var ég allt í einu hér. Ég þekkti engan þegar ég kom hingað en var fljót að kynnast mörgu fólki.“

Hún kynntist íslenskum manni sem hún var í sambandi með en það varði stutt. Ávöxtur sambandsins var sonur sem fæddist í mars árið 2013. Francisca er ganverskur ríkisborgari og ekki sjúkratryggð og því fékk hún reikning upp á 346 þúsund krónur fyrir fæðingarþjónustu – upphæð sem hún réð engan veginn við að borga. „Þeir vildu að ég borgaði reikninginn en ég sagði þeim að ég gæti það ekki.“

Um tíma gat hún ekki unnið því hún fékk ekki gæslu fyrir soninn en síðar vann hún nokkur hlutastörf yfir skemmri tíma. Hún reyndi að borga eitthvað inn á skuldina en það dugði ekki fyrir vöxtunum. „Stundum gat ég borgað fimm þúsund og stundum tíu þúsund.“ Francisca, sem býr í félagslegri íbúð á vegum Kópavogsbæjar, hafði yfirleitt ekki nema 120 þúsund krónur á mánuði.

Sett á svartan lista lánastofnana

Á Íslandi er lítið samfélag Ganverja og leitaði hún til þessara vina sinna um ráð. Henni var bent á að fara með málið til umboðsmanns barna. „Hjá umboðsmanni fékk ég þau svör að ég yrði að borga það sem ég gæti í að minnsta kosti tvö ár og svo kæmi eitthvað í ljós.“ Nú þegar hefur Francisca náð að greiða niður 85 þúsund krónur en reikningurinn hefur verið sendur til TCM innheimtuþjónustu. Fyrir jólin fékk hún innheimtubréf og er skuldin komin upp í 581 þúsund.

„Ég get ekkert gert. Ég get ekki einu sinni fengið fyrirfram greitt greiðslukort“

Ert þú áhyggjufull um jólin?
„Já, sérstaklega þegar ég fæ innheimtubréf eins og þetta. Þau koma á hálfs árs fresti. Þegar ég fæ þau hugsa ég með mér hvernig í ósköpunum ég eigi að geta borgað.“ Francisca er komin á svartan lista hjá lánastofnunum og það veldur henni miklum vandræðum. „Ég get ekkert gert. Ég get ekki einu sinni fengið fyrirfram greitt greiðslukort.“

Árið 2015 eignaðist hún annan son, en hún er enn einstæð. Francisca er nú í vinnu hjá Hótel Sögu og fær aðstoð vina sinna með synina tvo.

Vildi nota jólapening til að greiða upp skuldina

Faðir Franciscu býr í Bretlandi og hann sendi henni nýverið 300 þúsund krónur til að nota í jólagjafir, mat og fleira. Hún vill hins vegar nota þennan pening til þess að greiða upp skuldina. Vinir hennar voru reiðubúnir að bæta við það sem upp á vantaði í upprunalegu skuldina en vaxtagreiðslurnar eru vandamálið. „Mér var sagt að ef ég borgaði þessar 350 þúsund krónur þyrfti ég samt að borga helminginn af vöxtunum. Loksins hef ég peninga til að borga reikninginn en vextirnir eru orðnir of háir þannig að ég yrði áfram í skuld sem ég get ekki greitt upp. Ég sagði að ég gæti aldrei borgað þetta upp. Þótt ég fengi tíu ár.“

Hún segir það mjög skrítið að Landspítalinn vilji ekki taka við þessari greiðslu frekar en engu. „Ef ég fæ ekki að nota þennan pening til að hreinsa upp skuldina nota ég hann að sjálfsögðu frekar til að halda upp á jólin fyrir syni mína.“

Móðir ber ein fjárhagslega ábyrgð á fæðingu

Málið vekur upp þá spurningu hvort elsti sonurinn, sem er íslenskur ríkisborgari, eigi ekki rétt á að fæðast án þess að þurfa að greiða fyrir það. Anna Baldursdóttir hjá Landspítalanum segir að það sé ekki sjálfgefið að íslensk börn séu sjúkratryggð en að Sjúkratryggingar Íslands setji þær reglur en ekki Landspítalinn. „Öll börn eiga rétt á að fæðast en reglurnar snúa að því hverjir séu sjúkratryggðir og hverjir ekki. Það skiptir engu máli hvers lenskir þeir eru. Börn verða ekki sjálfkrafa sjúkratryggð við fæðingu ef foreldrarnir eru það ekki.“

Anna segir jafnframt að faðirinn beri enga fjárhagslega ábyrgð á fæðingunni sjálfri. „Konan kemur til fæðingar og hún fær þjónustuna. Margir átta sig ekki á þessu og erfitt fyrir fólk að lenda í þessu, alveg glatað.“

Gangið þið hart gegn fólki í slíkum tilvikum eða sýnið þið samningsvilja?
„Það verður enginn rúinn inn að skinni hér. Yfirleitt er farið í einhvers konar mildar aðgerðir þar sem reynt er að semja um þessi mál. Þetta fer í innheimtuferli, en ef einstaklingurinn sýnir greiðslu- og samningsvilja þá er samið um þetta. Síðan er hægt að sækja um niðurfellingu við sérstakar aðstæður. Það er nefnd hjá okkur sem skoðar slík mál. Við afskrifum milljónir á hverju ári.“ Anna segist ekki vita hvort einstaklingar lendi á svörtum lista lánastofnana í slíkum tilvikum.

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

Fréttir
Í gær

Ljótar sögur ganga um starfsmenn Langanesbyggðar – Björn sveitarstjóri talar um „eitrað andrúmsloft“ á staðnum

Ljótar sögur ganga um starfsmenn Langanesbyggðar – Björn sveitarstjóri talar um „eitrað andrúmsloft“ á staðnum
Fréttir
Í gær

Mörg dæmi um að frændhygli, kunningsskapur og pólitísk fyrirgreiðsla ráði för – „Og svo spurði ég um spillingu“

Mörg dæmi um að frændhygli, kunningsskapur og pólitísk fyrirgreiðsla ráði för – „Og svo spurði ég um spillingu“
Fréttir
Fyrir 2 dögum

Slys við Dalveg: Bíl ekið inn í skrifstofu Útlendingastofnunnar

Slys við Dalveg: Bíl ekið inn í skrifstofu Útlendingastofnunnar
Fréttir
Fyrir 2 dögum

Jólaskotárásin á Hvaleyrarholti – Faðirinn skýldi 9 ára dóttur sinni fyrir skothríðinni

Jólaskotárásin á Hvaleyrarholti – Faðirinn skýldi 9 ára dóttur sinni fyrir skothríðinni
Fréttir
Fyrir 2 dögum

Ljósmyndaði nakinn mann í búningsklefa – Braut gróflega gegn kynferðislegri friðhelgi

Ljósmyndaði nakinn mann í búningsklefa – Braut gróflega gegn kynferðislegri friðhelgi
Fréttir
Fyrir 2 dögum

Mætti tveimur rottum í Skeiðarvoginum í morgun

Mætti tveimur rottum í Skeiðarvoginum í morgun