Svo sem segir hér að ofan hætti Ásta Guðrún Helgadóttir sem þingflokksformaður Pírata í gær, vegna ágreinings við samflokksmenn sína. Þá hætti Björn Leví Gunnarsson einnig í stjórn þingflokksins. Stjórnin er nú skipuð þeim Einari Brynjólfssyni, sem er formaður, Birgittu Jónsdóttur og Smára McCarthy. Þetta er sama tríó og fór fyrir Pírötum í stjórnarmyndunarviðræðum í byrjun ársins. Það má velta fyrir sér hvort það hafi dregið eitthvað úr fyrirheitum Pírata um valddreifingu og lýðræði. Í það minnsta virðast völd í flokknum vera að færast hægt og bítandi á færri hendur og sífellt fleiri þurfa að ganga plankann.